Óttaðist fyrrverandi kærasta í tæpan áratug

Edda Péturs­dóttir segist í rúm níu ár hafa lifað við stöðugan ótta um að fyrr­verandi kærasti hennar myndi láta verða af ítrekuðum hótunum um að dreifa kynferðis­legum mynd­böndum af henni, sem hann hafi tekið upp án hennar vitundar meðan þau voru enn saman. Maðurinn sem hún segir að sé þekktur á Íslandi hafi auk þess áreitt hana með stöðugum tölvu­póstsendingum og smáskila­boðum. Hún segir lögreglu hafa latt hana frá því að tilkynna málið.

Hótaði að dreifa myndböndum af henni
Hótaði að dreifa mynd­böndum af henni Edda segir að mað­ur­inn hafi sent sér hátt í 80 tölvu­bréf og fjöl­mörg sms eftir að þau hættu saman. Í sumum þeirra hóti hann að dreifa kyn­ferð­is­legum mynd­böndum af henni.

Edda Péturs­dóttir segir frá því hvernig kærasti hennar hélt henni í heljar­greipum óttans með því að ógna henni með kynferðis­legum myndum sem hann hafi hótað að birta, eftir sambands­slitin. Edda segir í samtali við Stundina að maðurinn hafi beitt sig andlegu ofbeldi á meðan þau voru saman, en hún er gestur Eddu Falak í hlaðvarps­þættinum Eigin Konur, sem verið er að sýna á vef Stundarinnar. 

„Hann hefur alltaf verið stærri og stærri á meðan ég sjálf hef ekki þorað að hafa mig mikið í frammi af því að auðvitað er þessi ógn alltaf til staðar ef þessi vídeó eru til og það er ekkert þægilegt. Manni líður ekki vel með það. Segjum að ég hefði farið í leiklist eða pólitik þar sem ég væri kannski áberandi í sviðs­ljósinu þá hef ég alltaf þessa ógn bak við eyrað að þessi myndbönd gætu bara birst þá og þegar,“ segir Edda í …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    samkvæmt þessum atburðalýsingum virðist þetta vera lögreglunni og Putin að kenna ? . . þar fyrir utan er það bara sorglegt að allir séu ekki alltaf fullkomir á öllum tímum lífs síns . . .
    -13
  • PK
    Páll Kristjánsson skrifaði
    Ef lögreglan gerir ekkert ÞURFUM VIÐ þá ekki að taka lögin í okkar hendur ???
    0
  • Stefanía Hilmarsdóttir skrifaði
    Þú ert hetja ❤Nafngreina þennan óþokkar!
    12
    • Heidrun Hauksdottir skrifaði
      Hvers vegna hrópar þú á nafngreiningu? Skilur þú ekki vandamálið eða langar bara að vísa á einhvern annan?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár