Ólígarkinn okkar

Kjör­ræð­is­maður Íslands og fisk­inn­flytj­andi í Hvíta-Rúss­landi er kall­aður „veski“ ein­ræð­is­herr­ans Aleksand­ers Lukashenko. Íslensk stjórn­völd harð­lega gagn­rýnd og sögð hafa beitt sér gegn því að ESB beiti hann við­skipta­þving­unum.

Andrei lá illa meiddur á stein­steyptu en ísi­lögðu torg­inu. Við­staddir ótt­uð­ust hið versta. Kylfur, skildir og her­manna­stíg­vél óeirða­lög­regl­unnar höfðu engu eirt. Um allt Sjálf­stæð­is­torgið var illa áttað, alblóð­ugt fólk. 

Á öðrum stað í borg­inni hafði lög­reglu­bíl verið lagt í veg fyrir og stöðvað för hóps á leið að torg­inu. Án nokkurar við­vör­unar stukku fram óein­kenn­is­klæddir menn með lamb­hús­hettur og hófu að berja á fólk­inu með kylfum; undir ærandi hvell­sprengjum. Vladimir lá með­vit­und­ar­lít­ill eftir í göt­unni og nær­staddir nán­ast því drógu hann í skjól og þaðan í bíl sem flutti hann á sjúkra­hús.

Frá torg­inu brun­aði nú bíll í átt að þessu sama sjúkra­húsi. Í aft­ur­sæt­inu voru Andrei og kona hans, Iryna, sem lýsti atburðum kvölds­ins í sím­tali: „Við höfðum ákveðið að koma öll saman og óska eftir því að stjórn­völd semdu við okkur. Síðan birt­ust örygg­is­sveit­irnar og án nokk­urs fyr­ir­vara tvístr­uðu þeir mann­fjöld­anum og fóru að berja fólk með kylfum. Maðurinn minn varð illa fyrir barð­inu á þeim en ég slapp næstum ómeidd.“

Iryna komst ekki lengra með frá­sögn­ina sem flutt var í beinni útsend­ingu á rúss­neskri útvarps­stöð. Bíllinn hafði verið stöðv­aður af örygg­is­lög­regl­unni. Far­þeg­arnir heyrð­ust kvarta undan harka­legum aðförum; það væri verið að snúa upp á hendur þeirra og berja þau í and­litið. Dimm rödd heyr­ist segja: „Tíkur“. Svo rofnar sím­talið. 

Stuttu síðar koma svo útsend­arar KGB á sjúkra­húsið og ræna Vladimir af sjúkra­beði sínu.  

Tvö ár líða þar til fjöl­skyldur þeirra hitta þá aftur. Andrei Sannikov og Vladimir Neklyaev höfðu unnið sér það eitt til saka að hafa boðið sig fram til for­seta. Næstu árum eyða þeir í fang­elsi þar sem þeir hafa verið pynt­aðir og lífi þeirra stöðugt ógnað. Og jafn­vel eftir að þeim er sleppt eru þeir ekki lausir. Fang­els­is­garð­ur­inn hefur bara stækkað. Þeim er meinað að yfir­gefa heima­land sitt, Hvíta-Rússland.

Kannski mega þeir prísa sig sæla yfir því að sleppa svona „vel“. Yfir­lýstir stjórn­ar­and­stæð­ingar hafa átt það til að hverfa alveg af yfir­borði jarðar í Hvíta-Rúss­landi. 

Hundruð manna voru fang­elsuð og pyntuð eftir mót­mælin á Sjálf­stæð­is­torg­inu í Minsk að kvöldi kjör­dags 19. des­em­ber 2010, en fjallað er um þau og atburð­ina sem lýst var hér á undan í heim­ild­ar­mynd­inni „Á flótta undan síð­asta ein­ræð­is­herra Evrópu“.

Fimm for­seta­fram­bjóð­endur voru fang­els­aðir í Hvíta-Rúss­landi 2010. Þúsundir kröfð­ust þess að for­seta­kosn­ing­arnar yrðu end­ur­teknar að kvöldi kjör­dags. Fyrir lokun kjör­staða höfðu yfir­völd lýst Aleksander Lukashenko rétt­kjör­inn for­seta. Hann hafði fengið hátt í 80% atkvæða, að því er full­yrt var.

Eins og í fyrri kosn­ingum í land­inu, frá sjálf­stæði þess 1991 – og allt til dags­ins í dag – höfðu alþjóð­legir eft­ir­lits­menn og stofn­anir talið fram­kvæmd kosn­ing­anna mein­gall­aða og til­kynnt úrslit, í besta falli hæpin. 

Ísland átti sinn full­trúa í þessum kosn­ingum. Kjör­ræð­is­maður Íslands var umboðs­maður for­seta­fram­boðs Lukashenko og lagði sitt á vog­ar­skál­arnar til að tryggja áfram­hald­andi völd manns­ins sem hefur sjálfur kallað sig síð­asta ein­ræð­is­herra Evrópu. 

Veski einræðisherrans

„Loðnu­hrogn, sem Íslend­ingar veiða úr Atl­ants­haf­inu og Hvít-Rússar umbreyta í „kav­íar í fyrsta gæða­flokki“, er fyrir mat­væla­mark­að­inn bylt­ing lík þeirri sem seinna varð Facebook. Hugmynd „Santa“ var fljótt nýtt um allan heim. Í augum íslenskra sjó­manna, sem höfðu nán­ast frá tíma vík­ing­anna átt í vand­ræðum með að koma í lóg stórum hluta afla síns, varð Mos­hen­sky nán­ast að þjóð­hetju.“

Svona hefur honum verið lýst, íslenska kjör­ræð­is­mann­inum í Hvíta-Rúss­landi. Einum rík­asta og áhrifa­mesta auð­jöfur heima­lands síns. Manninum sem sagður er einn nán­asti banda­maður Aleksand­ers Lukashenko og í hópi manna sem upp­nefndir eru „veski Lukashenko“.

Okkar maður Mos­hen­skyAleksander Mos­hen­sky er tal­inn einn áhrifa­mesti og rík­asti Hvít-Rússinn. Hann hefur verið stór­tækur í fisk­við­skiptum við Íslend­inga – ekki síst eftir að Rússar settu inn­flutn­ings­bann á íslenskan fisk.

Þrátt fyrir að hann sé tal­inn einn áhrifa­mesti ólíg­ar­k­inn í Hvíta-Rúss­landi og hafa efn­ast í skjóli ólýð­ræð­is­legra stjórn­valda sem skeyta hvorki um lög né mann­rétt­indi, eru íslensk stjórn­völd sögð hafa beitt sér ítrekað gegn því að þessi stór­tæki fisk­kaup­andi sæti ref­is­að­gerðum af hendi Evr­ópu­sam­bands­ins. Sem taldar eru áhrifa­mesta vopnið gegn vel­gjörð­ar­manni hans, Aleksander Lukashenko. 

Kóngurinn af Brest

Aleksander Mos­hen­sky er fæddur árið 1970 og mennt­aður stærð­fræð­ingur. Hann ólst upp í hér­að­inu Brest í vest­ur­hluta Hvíta-Rúss­lands og er oft kall­aður „kóng­ur­inn af Brest“.

Kon­ungs­dæmi hans nær í dag langt út fyrir heima­hér­aðið. Ársvelta fyr­ir­tækja­sam­steypu hans er í kringum 220 millj­arðar króna. Hún sam­anstendur af 40 fyr­ir­tækjum, þar sem hátt í 25 þús­und manns starfa á starfs­stöðvum í Rúss­landi og Úkraínu auk Hvíta-Rúss­lands. 

Veldi Aleksand­ers Mos­hen­sky rekur upp­haf sitt til árs­ins 1993. Faðir hans heit­inn, Mikhael, stofn­aði ásamt þýskum við­skipta­fé­laga, fyr­ir­tæki sem flutti fyrst inn rækju og vann í neyt­enda­um­búðir en síðan síld undir eigin vöru­merki, Santa Bremor, sem er enn hryggjar­stykkið í veld­inu. Sonurinn tók við eftir frá­fall föður síns um alda­mótin og kynnti fljótt til sög­unnar íslensk loðnu­hrogn, sem brauð­á­legg, við miklar vin­sældir. Santa Bremor er í dag risi í sjáv­ar­út­vegi fyrrum Sov­ét­ríkj­anna. Í land­luktu landi.

Veldið heitir í dag Santa Group og er annað stærsta fyr­ir­tæki Hvíta-Rúss­lands. Savutchkin, mjólk­ur­vinnslan, er líkt og Santa Bremor, stór angi þess. Þriðja stærsta mjólk­ur­vinnsla í Austur-Evrópu sem selur vörur sínar til fjölda landa. Keðja yfir 200 mat­vöru­versl­ana, hótel og veit­inga­staðir eru einnig hluti af veldi Mos­hen­sky, auk vöru­flutn­inga­fyr­ir­tækis og stærstu mat­væla­heild­sölu lands­ins.  

„Lukashenko var sá sem opn­aði dyr Rúss­lands fyrir Mos­hen­sky“

Bestur í Belarus

Mos­hen­sky hefur ár eftir ár verið ýmist efstur á lista eða meðal efstu manna í vali á áhrifa­mestu mönnum í við­skipta­lífi Hvíta-Rúss­lands. Það kom því eflaust fáum á óvart þegar Mos­hen­sky var í vali fjöl­miðla í Hvíta-Rúss­landi árið 2018 útnefndur fremstur meðal jafn­ingja þegar velja átti þann athafna­mann sem skarað hefði fram úr þann ald­ar­fjórð­ung sem lið­inn var frá sjálf­stæði lands­ins. 

Efna­hags­líf Hvíta-Rúss­lands er talið eitt það mið­stýrð­asta í heimi. Ólíkt því sem var í Rúss­landi fylgdi lítil einka­væð­ing lokum Sov­ét­tím­ans. Ríkið er því enn umsvifa­mikið og ráð­andi á flestum sviðum og vald for­set­ans þar nán­ast ótak­markað. Þess vegna eru umsvif Mos­hen­sky og auð­söfnun áhuga­verð.

Þessu ægi­valdi rík­is­ins fylgir svo spill­ing, ógagn­sæi og mis­notkun lög­gæslu og dóm­stóla. Það hefur því reynst jafn auð­velt að svipta menn eignum sínum eins og frelsi, fyrir litlar eða engar sakir. Því hafa fyrrum kollegar Mos­hen­sky  fengið að kynn­ast, þegar þeir féllu í ónáð í for­seta­höll­inni í Minsk. 

Vinir á góðri stundu Aleksander Lukashenko, ein­ræð­is­herra Hvíta-Rúss­lands, afhendir nafna sínum, Mos­hen­sky, Föð­ur­lands­orð­una árið 2013. Orðan er ein æðsta við­ur­kenn­ing lands­ins.

En ekki Mos­hen­sky. Hann er í náð­inni.

Þegar rík­asti maður lands­ins, og fram til þess, nán­asti sam­starfs­maður Lukashenko, Yury Chyzh, féll í ónáð árið 2016, sagði hvít-rúss­neski fjöl­mið­ill­inn charter97 Mos­hen­sky hafa tekið sæti Yuri. Haft var eftir ónafn­greindum heim­ild­ar­mönnum, að það væri ekk­ert leynd­ar­mál að „Aleksander [Mos­hen­sky] væri upp­á­hald“ Lukashenko og fylgdi for­set­anum jafn­vel í árlegt skíða­frí til Sochi í Rúss­landi.

Lukashenko hefur und­an­farin ár vakið athygli í brekkum skíða­svæð­anna í Sochi í Rúss­landi, en þó ekki síður skíða­fé­lagi hans, Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti. Samband þeirra tveggja var löngum nokkuð stirt. En eftir því sem alþjóða­sam­fé­lag­inu hefur ofboðið ástandið í Hvíta-Rúss­landi hefur vin­átta Rúss­lands­for­seta við kollega sinn í Minsk vaxið. Og veitt Rússum færi á að nýta Hvíta-Rússland til inn­árasar í Úkraínu, sem dæmi.

Gaman samanVladimir Pútín, for­seti Rúss­lands, og Aleksander Lukashenko, for­seti Hvíta-Rúss­lands, skelltu sér einu sinni sem oftar saman í brekk­urnar í Sochi í febr­úar 2019.

Þetta batn­andi sam­band leið­tog­anna er, í sömu grein, sagt hafa nýst Mos­hen­sky í við­skiptum í Rúss­landi, en þar á hann orðið stórt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki auk þess sem fyr­ir­tæki hans eiga þar orðið sinn stærsta markað. 

„Það vita allir að Lukashenko var sá sem opn­aði dyr Rúss­lands fyrir Mos­hen­sky og veitti honum þar með stuðn­ing til að hefja stór­felldan inn­flutn­ing til Rúss­lands,“ var haft eftir ónafn­greindum heim­ild­ar­manni, sem sagður var þekkja vel til, í frétt charter97.

Lukashenko gerði Mos­hen­sky að for­manni sam­eig­in­legs við­skipta­ráðs Hvíta-Rúss­lands og Rúss­lands, sem stofnað var árið 2018. For­manns­stólnum deilir Mos­henski með rúss­anum Dimitry Mazepin, einum þekktasta ólíg­arka Rúss­lands, eig­anda Uralkali efnaris­ans og aðal­stuðn­ings­að­ila Haas-liðs­ins í Formúlu 1. 

Kollegar í Rúss­landiDmitry Mazepin, er einn þekkt­asti ólíg­arki Rúss­lands, en hann er vell­auð­ugur og var helsti stðn­ings­maður Haas-liðs­ins í Formúlu 1. Nokkrum dögum fyrir inn­rás­ina í Úkraínu færði hann þó eign­ar­hald ann­ars kappakst­ursliðs yfir á breskt nafn. Haas-liðið hefur síðan sagt upp sam­starfi við hann og rekið son hans, sem var annar öku­manna liðs­ins. Milli þeirra Mazepin og Vlai­dimirs Putin er gott sam­band, sem sést best á því að Mazepin var kall­aður til fundar með Putin, sama dag og sá síð­ar­nefndi fyr­ir­skip­aði inn­rás­ina inn í Úkraínu. Kjör­ræð­is­maður Íslands deilir for­mennsku í við­skipta­ráði Rússa og Hvít-Rússa með Mazepin.

Laurent Vinatier, sér­fræð­ingur í mál­efnum fyrrum Sov­ét­ríkj­anna, lýsti við­skipta­lífi Hvíta-Rúss­lands í grein sem hann kall­aði Árangur ein­ræð­is­herr­ans árið 2012. Þar sagði Vinatier mik­il­væg­asta hæfi­leika athafna­manns í land­inu vera þann að geta hald­ist í náð hins eig­in­lega for­stjóra alls við­skipta­lífs­ins; Aleksander Lukashenko. Aleksander Mos­hen­sky er þar nefndur sér­stak­lega á nafn í þessu sam­hengi.

„Fyrir Lukashenko eru þeir fyrst og fremst verk­stjórar sem sjá um að fram­fylgja skip­unum hans“
Laurent Vinatier,
sér­fræð­ingur í mál­efnum fyrrum Sov­ét­ríkja

Með leyfi forseta

Tengsl Mos­hen­sky við Lukashenko voru til umfjöll­unar á frétta­vefnum UDF, sem haldið er úti af sam­tökum stjórn­ar­and­stæð­inga, árið 2018. Þar er upp­haf veld­is­ins rakið til aðgangs að toll­fríu iðn­að­ar­svæði og skatt­fríð­indum, sem úthlutað var til útval­inna af Lukashenko. Sjálf for­senda rekst­urs Santa Bremor er einnig sögð und­ir­seld duttl­ungum Lukashenko, enda inn­flutn­ingur sjáv­ar­af­urða, og þar með öll aðföng, háð sér­stökum leyf­is­veit­ingum hans. 

Mos­hen­sky er líka sagður hafa notið þess­arar vel­vildar for­set­ans við kaup á verð­mætum rík­is­eignum. Árið 2018 gerðu hann og Lukashensko einka­samn­ing um kaup Mos­hen­sky á meiri­hluta í risa­stórri osta­verk­smiðju af rík­inu, fyrir hátt í sjötta millj­arð króna. Þessi einka­væð­ing vakti spurn­ingar, enda var engum öðrum gert kleift að bjóða í hlut rík­is­ins sem í ofaná­lag var sagt hafa fengið und­ar­lega lágt verð fyrir eign­ina. Ári síðar seldi ríkið Mos­hen­sky svo mjólk­ur­vinnslu  fyrir tæpa 3 millj­arða króna, sam­kvæmt frétt fjöl­mið­ils­ins Belsat.

Mjólk­ur­póst­ur­inn Mos­hen­skyLukashenko og Mos­hen­sky skála í einni af afurðum mjólk­ur­vöru­fyr­ir­tæk­is­ins Savutchkin. Mos­hen­sky hefur verið upp­nefndur Mjólk­ur­póstur Lukashenko, vegna sam­bands þeirra tveggja.

Engan byltingar-bisness

Þegar Mos­hen­sky tók þátt í að tryggja Lukashenko emb­ætti árið 2010, sagð­ist hann  „áhuga­maður um stöð­ug­leika“ sem feng­ist frekar  með Lukashenko en ein­hverjum „bylt­ingar-bis­ness“, hafði Interfax eftir Mos­hen­sky, sem sagði hlut­verk sitt að koma skoð­unum for­set­ans til skila og tala fyrir þeim, bæði við fólk og fyr­ir­tæki.

Fram­bjóð­endur stjórn­ar­and­stöð­unnar kvört­uðu á sama tíma til kjör­stjórnar lands­ins yfir því að fyr­ir­tæki Mos­hen­sky hafi bannað þeim að vekja athygli á fram­boðum sínum, á sama hátt og öðrum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum mann­rétt­inda­sam­taka.

Aðdáun Mos­hen­sky á Lukashenko virð­ist gagn­kvæm, því hann valdi Mos­hen­sky sem full­trúa á svo­kallað „Lands­þing fólks­ins“, sem haldið er á fjög­urra ára fresti í Hvíta-Rúss­landi. Að nafn­inu til eiga þar að koma saman full­trúar almenn­ings og atvinnu­lífs og ráða ráðum sínum um mál­efni þjóð­ar­innar. Í reynd hafa þetta þó verið sagðar skraut­sýn­ingar Lukashensko.

Saman í stúkunniMos­hen­sky og Lukashenko saman í heið­urs­stúkunni við róðra­braut­ina í Zaslavl í nágrenni Minsk, á Evr­ópu­leik­unum sem haldnir voru í Hvíta-Rúss­landi í júní 2019.

Sama á reyndar við um skipan Mos­hen­sky í fjölda opin­berra ráða og nefnda, sem öll heyra undir Lukashenko. Í stjórnum Við­skipta­ráðs Hvíta-Rúss­lands, þró­un­ar­banka Hvíta-Rúss­lands og ráð­gjaf­ar­nefnda um við­skipti og tolla­mál. Hann var síð­ast í fyrra skip­aður af Lukashenko í sér­stakt opin­bert frum­kvöðla­ráð Hvíta-Rúss­lands.

Mos­hen­sky er einnig for­maður Róðra­sam­bands Hvíta-Rúss­lands og á sæti í stjórn „Íþrótta­fé­lags for­set­ans“, sem hefur meðal ann­ars það hlut­verk að velja full­trúa þjóð­ar­innar til keppni á alþjóða­vett­vangi. Með honum í stjórn þar sitja tveir elstu synir Lukashenko. 

Fulltrúi Íslands

Við­skipti Aleksand­ers Mos­hen­sky við íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hófust um alda­mótin. Fram að því hafði Mos­hen­sky keypt síld af Norð­mönnum en vildi auka við fram­leiðslu sína og fór þess vegna ásamt fylgd­ar­liði sínu til Íslands að leita við­skipta­tengsla. Næstu árin fór Mos­hen­sky því að kaupa loðnu­hrogn og frosna síld frá Íslandi.

Á næstu árum styrkti Mos­hen­sky þessi tengsl sín og heim­sótti Ísland reglu­lega. Eftir eina slíka heim­sókn árið 2004 barst utan­rík­is­ráðu­neyt­inu bréf frá Jakobi Sig­urðs­syni, aðstoð­ar­for­stjóra SÍF, Sölu­sam­bandi íslenskra fisk­fram­leið­enda, þar sem hann vildi vekja athygli íslenskra stjórn­valda á manni sem hann taldi henta prýði­lega í hlut­verk kjör­ræð­is­manns í Hvíta-Rúss­landi. Aleksander Mos­hen­sky væri bæði vel tengdur íslenskum fyr­ir­tækjum og ekki síður yfir­völdum í Hvíta-Rúss­landi.

Utan­rík­is­ráðu­neytið tók strax vel í beiðn­ina, sam­kvæmt upp­lýs­ingum um aðdrag­anda skip­un­ar­innar, sem Stundin fékk aðgang að í krafti upp­lýs­inga­laga. Í gögn­unum sést að eina skoð­unin sem utan­rík­is­ráðu­neytið virð­ist hafa fram­kvæmt sjálf­stætt á Mos­hen­sky, var fundur hans með íslenska sendi­herr­anum í Moskvu. 

Annars var byggt á upp­lýs­ingum sem Mos­hen­sky afhenti sjálfur eða í gegnum starfs­mann Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­manna­eyjum, sem Mos­hen­sky hefur átt í miklum við­skiptum við, auk þess sem náin vin­átta mun hafa skap­ast milli hans og for­stjóra Vinnslu­stöðv­ar­innar.

Á sér­stöku umsókn­ar­eyðu­blaði um stöðu kjör­ræð­is­manns til­tók Mos­hen­sky helstu upp­lýs­ingar um sjálfan sig. Og þó að í umsókn­inni sé tekið fram að ræð­is­manns­efnið þurfi að skila inn með­mæla­bréfum, íslenskum og erlendum, virð­ist sem íslensk stjórn­völd hafi látið tvö með­mæla­bréf Hvít-Rússa duga ásamt upp­haf­legu bréfi SÍF-stjór­ans. Hin tvö und­ir­rit­uðu kjör­ræð­is­menn Póllands og Úkraínu í Hvíta-rúss­landi.

Aleksander Mos­hen­sky varð kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi þegar Geir H. Haarde und­ir­rit­aði skip­un­ar­bréf hans haustið 2006.

Slíkum titli fylgja engin form­leg völd eða fríð­indi, starfið er ólaunað og veitir ekki form­lega stöðu diplómata. Engu að síður gefur tit­ill­inn ákveðna vigt, sér­stak­lega þegar kemur að því að fá og við­halda aðgengi að emb­ættis- og við­skipta­lífi við­kom­andi landa.

Ræð­is­manns­tit­ill í Hvíta-Rúss­landi er sagður hafa aðra þýð­ingu en víð­ast hvar. Fjöl­mið­ill­inn RadioFreeEurope fjall­aði í árs­byrjun í fyrra um hvernig ræð­is­manns­skrif­stofur þjóða eins og Aust­ur­ríkis, Bangla­desh, Ekvador, Gvatemala, Chile og Simbabve, eru allar hjá þekktum hvít-rúss­neskum athafna­mönnum. 

Einn und­ir­manna Mos­hen­sky, hjá Santa Bremor, er til að mynda ræð­is­maður Ung­verja­lands, sem hefur ólíkt flestum Evr­ópu­sam­bands­ríkjum lagst gegn sam­eig­in­legum refsi­að­gerðum gegn Lukashenko og stuðn­ings­mönnum hans.

Í umfjöll­un­inni er sér­stak­lega fjallað um íslenskan ræð­is­manns­titil Mos­hen­sky, sem full­yrt er að hafi nýst honum til að verj­ast þeim þving­unum sem plagað hafa aðra úr hópi svo­kall­aðra „veskja“ Lukashenko.

Það vekur óneit­an­lega athygli að sjá hve oft er vitnað til ræð­is­manns­tit­ils Mos­hen­sky þegar um hann er fjallað í erlendum fjöl­miðlum. Titlinum er óspart flaggað til dæmis í sam­skiptum hans við erlend ríki.

Kjör­ræð­is­maður heim­sækir sendi­ráð PakistanaMynd sem pakist­anska sendi­ráðið í Minsk birti á sam­fé­lags­miðlum í febr­úar 2021, þar sem sagt var frá heim­sókn Aleksander Mos­hen­sky, við­skipta­manns og kjör­ræð­is­manns Íslands, í sendi­ráðið.

Pakist­anska sendi­ráðið í Minsk birti myndir af Mos­hen­sky og sendi­herr­anum í febr­úar í fyrra á Twitter þar sem sagði: „Í dag tók sendi­herr­ann á móti herra Alex­ander Mos­hen­sky, einum þekktasta kaup­sýslu­manni Hvíta-Rúss­lands, eig­anda JV Santa Bremor fyr­ir­tækja­sam­steypunnar og heið­urs­konsúl Íslands í Hvíta-Rúss­landi.“

Vörn fyrir veskið

Áður en leið­togi Hvíta-Rúss­lands hóf beinan stuðn­ing við inn­rás Rússa í Úkraínu í lok febr­úar, og eft­ir­lét Rússum land­svæði undir eld­flauga­palla, hafði Evr­ópu­sam­bandið alls fimm sinnum á síð­ustu tveimur árum hert á refsi­að­gerðum gegn ein­stak­lingum í stjórn­mála- og við­skipta­lífi Hvíta-Rúss­lands.

Alls eru nú 183 hvít-rúss­neskir ein­stak­lingar og 26 lög­að­ilar, það er fyr­ir­tæki eða félaga­sam­tök, á svörtum lista Evr­ópu­sam­bands­ins. Því fylgja mjög íþyngj­andi aðgerðir af hálfu aðild­ar­ríkja sam­bands­ins; fryst­ing eigna, ferða­bann og bann við því að stunda við­skipti við við­kom­andi. 

Í hópnum eru nú fjöl­margir svo­kall­aðra ólíg­arka lands­ins. Rökin fyrir aðgerðum gegn þeim eru til að mynda aug­ljós tengsl við Lukashenko sjálfan; að hafa auðg­ast á hinum ógegn­sæju einka­væð­ing­ar­að­gerðum hans, setið í opin­berum ráðum eða nefndum og notið skatt­fríð­inda af hálfu stjórn­valda í Minsk. 

Öll eiga þessi rök við um Aleksander Mos­hen­sky og fyr­ir­tæki hans. Því hefur sú spurn­ing oft­sinnis komið upp: hvers vegna maður, sem manna í millum er upp­nefndur „veski Lukashenko“, skuli ekki sæta refsi­að­gerðum ESB, jafn­vel þó vitað sé að nafn hans hafi ítrekað verið á lista þeirra sem stóð til að refsa, en verið fjar­lægt stuttu áður en aðgerð­irnar fengu form­legt sam­þykki.

Þetta hefur þó ítrekað gerst. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar og frá­sögnum við­mæl­enda, virð­ist  hags­muna­gæsla íslenskra stjórn­valda fyrir hönd Mos­hen­sky vega þar þungt.

Dularfullt hvarf Fiski-barónsins

Eftir for­seta­kosn­ing­arnar árið 2010 fóru augu margra að bein­ast að Hvíta-Rúss­landi og þrýst­ingur á alþjóða­sam­fé­lagið að beita sér gegn kerf­is­bund­inni kúgun og mann­rétt­inda­brotum jókst. Sér­fræð­ingar sem unnu skýrslu fyrir Evr­ópu­þingið bentu á það í skýrslu árið 2012 að ekki væri nóg að ráð­ast í hefð­bundnar þving­un­ar­að­gerðir gegn stjórn­völdum og spilltum emb­ætt­is­mönnum. 

Hópur auð­manna, sem í skjóli stjórn­ar­innar í Minsk fjár­magn­aði og efn­að­ist af völdum hennar á víxl, ætti ekki að fá að stunda við­skipti eins og hverjir aðrir innan Evr­ópu­sam­bands­ins. En jafn­framt var þess getið að í valdi auðs síns hefðu þeir aðgang að öfl­ugum lobbí­istum. Sjö nöfn auð­manna eru nefnd í skýrsl­unni. Einungis tveir þeirra hafa nú, ára­tug síðar, ekki sætt refsi­að­gerðum. Mos­hen­sky er annar þeirra.

Engu að síður hefur nafn hans marg­sinnis verið nefnt í aðdrag­anda þess að herða á við­skipta­þving­anir ESB gegn Hvít-Rússum:

„[E]r lík­legt að listi Evr­ópu­sam­bands­ins muni inni­halda nafn auð­jöf­urs­ins, Aleksand­ers Mos­hen­sky, sem er grun­aður um að vera fjár­hags­legur bakjarl hvít-rúss­neskra stjórn­valda og hafa auðg­ast í krafti þess,“ sagði í frétt Eur­oRadio í júní 2012. Á sama tíma hafði sjón­varps­stöðin Belsat eftir Gunnari Wiegand, sendi­full­trúa ESB, að Mos­hen­sky yrði lík­lega lát­inn sæta við­skipta­þving­unum. 

Fjöl­mið­ill­inn EU Observer í Brussel hafði í  árs­lok 2011 sagt hann í sigti ESB og að ráð­herrar Evr­ópu­sam­bands­ins hefðu hert á gild­is­sviði þving­ana svo þær mættu ná til „ein­stak­linga og lög­að­ila sem auðg­uð­ust í krafti stuðn­ings“ við stjórn­ina í Minsk. Nafn Mos­hen­sky og tveggja ann­arra voru nefnd lík­leg­ust. 

Þegar svo aðgerð­irnar voru kynntar voru kollegar Mos­hen­sky úr stétt ólíg­arka báðir á list­anum. En ekki hann. Kolleg­arnir fengu þó aðgerð­unum hnekkt með dómi nokkrum árum síðar. En vera þeirra á list­anum hafði ein og sér nei­kvæð áhrif á við­skipti þeirra.

Næsta ára­tug stækk­aði veldi Mos­hen­sky gríð­ar­lega. Velta fyr­ir­tækja­sam­steypu hans nán­ast tvö­fald­að­ist. Hann komst yfir verð­mætar rík­is­eignir og fékk auk þess áfram að auka við auð sinn, án afskipta Lukashenko. Að sama skapi marg­föld­uð­ust við­skipti hans við íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki.

En á meðan versn­aði ástand mann­rétt­inda­mála í Hvíta-Rúss­landi. Enn var þrengt að frjálsri tján­ingu, blaða­mönnum og hverjum þeim sem and­mælti stefnu stjórn­ar­innar í Minsk. Dauða­refs­ingum beitt til að fulln­usta dóma, sem þóttu hæpnir í besta falli.

Hátt í 900 manns sitja nú í fang­elsi í Hvíta-Rúss­landi fyrir skoð­anir sínar, að sögn mann­rétt­inda­sam­taka. Frá­sagnir af ógeð­felldum pynt­ingum og skipu­lögðum kyn­ferð­is­brotum gegn konum í haldi, hafa vakið óhug heims­byggð­ar­innar. Á fjórða tug lög­manna hefur verið svo sviptur rétt­indum sínum, fyrir það eitt að reyna að tala máli skjól­stæð­inga sinna úr hópi sam­visku­fanga.

Tsikanovskaya mætir

Steininn tók úr í ágúst árið 2020 þegar enn einu sinni var efnt til for­seta­kosn­inga í Hvíta-Rúss­landi og aug­ljóst þótti að brögð væru í tafli. Enn einu sinni fagn­aði Lukashenko sigri með 80% stuðn­ing þjóð­ar­innar. Og aftur var ljóst að mikið vant­aði upp á að fram­kvæmd kosn­ing­anna, hvað þá að úrslitin sem kynnt voru, stæð­ust skoðun.

Siarhei Tsik­hanov­skyi, ríf­lega fer­tugur bar­áttu­maður fyrir mann­rétt­indum, sem hafði meðal ann­ars haldið úti vin­sælli Youtube-rás, til­kynnti um fram­boð sitt gegn Lukashenko í byrjun maí. Hann var hand­tek­inn tveimur dögum seinna og gefið að sök að hafa ráð­ist á lög­reglu­menn. Myndbönd af hand­töku hans og aðdrag­anda hennar gefa þó ekk­ert slíkt til kynna. 

Tsik­hanov­sky hefur setið í fang­elsi síðan og má jafn­vel vænta þess að dúsa þar fram yfir sex­tugt eftir að hafa verið sak­felldur fyrir að hafa á vídeó-bloggi sínu hvatt til ólög­legrar upp­reisnar gegn stjórn­völdum.

Eig­in­kona hans, túlk­ur­inn og ensku­kenn­ar­inn Svetlana Tsik­hanovskaya, ákvað hins vegar  að bjóða sig fram í mót­mæla­skyni við hand­töku eig­in­manns síns. Og jafn­vel þó Svetlana hafi þurft að dvelja í felum stóran hluta kosn­inga­bar­átt­unnar, henni og börnum hennar verið hótað mann­ráni, fundir stuðn­ings­manna hennar leystir upp eða bann­aðir, mátti ljóst vera að hún hefði notið marg­falt meiri stuðn­ings en hinar opin­beru tölur gáfu til kynna.

Henni tókst að safna að baki sér fjölda hreyf­inga og fylk­inga sem mót­fram­bjóð­endum Lukashensko hafði áður mis­tek­ist. Sem sýndi sig þegar allt að 70 þús­und manns mættu á kosn­inga­fund hennar, þrátt fyrir yfir­vof­andi hót­anir yfir­valda.

Fjöldi þjóða neitar að við­ur­kenna Lukashenko sem for­seta og segir Tsik­hanovskayu raun­veru­legan lýð­ræð­is­lega kjör­inn leið­toga þjóðar sinnar. Ísland þar á meðal. Sjálf flúði hún land ekki löngu eftir kosn­ing­arnar og hefur síðan verið and­lit lýð­ræð­is­sinna í Hvíta-Rúss­landi og ferð­ast um og vakið athygli ráða­manna á ástand­inu í heima­land­inu. Til dæmis hingað til Íslands í boði íslenskra stjórn­valda. 

Viðbrögð almenn­ings í Hvíta-Rúss­landi við for­seta­kosn­ing­unum og eft­ir­leik þeirra, vöktu athygli. Þúsundir streymdu út og mót­mæltu því sem sagt var valda­rán Lukashenko. Næstu daga og vikur héldu mót­mælin áfram en örygg­is­lög­reglan svar­aði af hörku. Talið er að hún hafi myrt á annan tug manna. Hundruð manna sættu fang­elsun og pynt­ingum.

Moshensky aftur í sigti ESB

Alþjóða­sam­fé­lagið gat illa litið undan og Banda­ríkin og ESB hertu enn refsi­að­gerðir. Í árs­lok 2020 lá á borði Ráð­herra­nefndar Evr­ópu­sam­bands­ins langur listi dóm­ara, stjórn­mála­manna og við­skipta­jöfra sem stutt höfðu eða auðg­ast af stuðn­ingi við Lukashenko.

Íslenski ræð­is­mað­ur­inn í Hvíta-Rúss­landi var ofar­lega á þeim lista fólks sem mátti nú vænta harðra refsi­að­gerða, enda hefur það vakið athygli hvernig Mos­hen­sky hefur ítrekað verið gestur Lukashenko, meðal ann­ars við emb­ætt­is­töku hans 2020 og í nýárs­fagn­aði ári síðar. Í umfjöllun dag­blaðs­ins Nas­haniva í aðdrag­and­anum var þó sér­stak­lega getið um að kannski hefði Mos­hen­sky tek­ist að koma nafni sínu af list­anum. 

Vísað var í óstað­festar heim­ildir þess efnis að Mos­hen­sky hefði ræst út og notið aðstoðar íslenskra stjórn­valda til að koma sér undan því að lenda í hörðum refsi­að­gerðum ESB. „[Mos­hen­sky] sann­aði fyrir stjórn­völdum á Íslandi – landi sem hann flytur inn millj­óna doll­ara virði af fiski – að verði hann fyrir refsi­að­gerðum þýði það umtals­vert tap fyrir Íslend­inga. Og að sögn hafi íslensk stjórn­völd brugð­ist við og beitt sér til þess að hafa áhrif á ákvörðun Evr­ópu­sam­bands­ins.“

Valdaránið variðLögregla og hin alræmda leyni­þjón­usta Hvíta-Rúss­lands, KGB, hafa fang­elsað og pyntað hund­ruði almennra borg­ara sem reynt hafa að mót­mæla göll­uðum kosn­ingum og vald­níðslu. Svo var einnig árið 2020 þegar síð­ast var kosið í land­inu.

Sagði Íslandslobbí fiskisögu

Mos­hen­sky var inntur eftir þessu í sömu frétt og svar­aði því ekki skýrt hvort íslensk stjórn­völd hefðu beitt sér fyrir hans hönd. Hann kall­aði rök­semdir um áhrif við­skipta sinna á fjar­veru sína af list­anum vera „fiski­sögu“. Nær væri að líta til þess að fyr­ir­tæki hans hefðu ekk­ert haft með ofbeldi gegn mót­mæl­endum í Hvíta-Rúss­landi að gera. 

„Sú ákvörðun byggir ekki á því hver selur fisk, heldur því hvort Santa Bremor sé fyr­ir­tæki sem eigi að sæta refsi­að­gerðum,“ sagði Mos­hen­sky sem gekkst þó við því að hafa gripið til aðgerða í því skyni að koma sér og fyr­ir­tæki sínu undan refsi­að­gerðum, en neit­aði að svara hverjar þær væru. 

Þegar svo end­an­legur listi ESB var sam­þykktur í lok árs 2020 var nafn Mos­hen­sky þar hvergi sjá­an­legt, frekar en áður. 

„Það komst ein­hver rotta í list­ann og fjar­lægði þaðan flest þau nöfn sem mögu­lega hefðu geta skaðað Lukashenko. Þau voru öll fjar­lægð,“ var haft eftir Nikolai Khalezin, einum þekktasta tals­manni hóps land­flótta Hvít-Rússa sem hafði þrýst á ESB um refsi­að­gerð­irnar. Hann vís­aði jafn­framt til þess að öflug hags­muna­gæsla rúss­neskra og hvít-rúss­neskra stjórn­valda hefði haft áhrif. Sést hefði til Mos­hen­sky á skíðum með þeim Lukashenko og Pútín, að sögn Nikolai. 

Í maí 2021 dró enn til tíð­inda í sam­skiptum Aleksander Lukashenko við umheim­inn. Hann sendi þá her­þotur til móts við far­þega­flug­vél Ryanair flug­fé­lags­ins og skip­aði henni að lenda. Þó opin­bera ástæðan hafi verið sprengju­hótun, kom fljótt í ljós að sú skýr­ing var hreint yfir­varp. Aðal­á­stæðan var sú að hand­taka Raman Pratasevich, blaða­mann og yfir­lýstan gagn­rýn­anda Lukashenko, sem var far­þegi í vél­inni. Pratasevich er enn haldið í far­banni eftir fanga­vist og pynt­ingar og gæti átt yfir höfði sér allt að 15 ára fang­elsi.

Stuttu síðar fannst þekktur gagn­rýn­andi Lukashenko, Vitaly Shishov, lát­inn í Kænu­garði. Shisov hafði flúið Hvíta-Rússland og verið virkur í and­ófi gegn Lukashenko og aðstoð við þá sem flúðu ofsóknir stjórnar hans. Þó and­lát Shisov hafi átt að gefa til kynna að hann hefði hengt sig, bendir margt til þess að honum hafi ein­fald­lega verið ráð­inn bani af útsend­urum Lukashenko.

Bandarískir áhrifamenn gegn Moshensky

Alþjóða­sam­fé­lagið brást aftur við með harðri for­dæm­ingu. Í umræðum fyrir banda­rískri þing­nefnd kall­aði David Kramer, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­inn­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, eftir taf­ar­lausum aðgerðum. „Við þurfum að fara á eftir veskjum stjórn­ar­innar í Minsk. Mönnunum sem veita Lukashenko fjár­hags­legan styrk til að sitja sem fast­ast,“ sagði Kramer og nefndi nöfn fimm manna sem beita ætti slíkum aðgerðum. Íslenski kjör­ræð­is­mað­ur­inn, Mos­hen­sky, var einn þeirra.

Enn einu sinni var ákveðið að herða á við­skipta­þving­unum ESB gegn Hvíta-Rúss­landi. Og aftur slapp Mos­hen­sky. Í kjöl­farið birti hvít-rúss­neski fjöl­mið­ill­inn RadioFreeEurope frétta­skýr­ingu þar sem sagði:

„Nokkrar sjálf­stæðar heim­ildir segja að hann hafi átt að enda á list­anum. Mos­hen­sky sjálfur við­ur­kenndi meira að segja að hann hefði „gert ákveðnar ráð­staf­anir“ svo hann þyrfti ekki að sæta neinum þving­unum,“ segir í grein­inni þar sem svarið er sagt liggja í sam­bandi hans við íslensk stjórn­völd. 

„Fyr­ir­tæki Mos­hen­sky kaupir gríð­ar­legt magn sjáv­ar­af­urða frá Íslandi. Og er þar að auki kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi. Það er því ekki óhugs­andi að hinir erlendu við­skipta­fé­lagar Mos­hen­sky hafi hent til hans bjarg­hring. Ástæðan er ein­föld: Við­skipta­þving­an­irnar myndu bitna á þeim, rétt eins og honum.“

Hissa hagsmunaverðir

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem aðgengi­legar eru á heima­síðu sam­taka lobbí­ista gagn­vart ESB, hefur alþjóð­lega ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið APCO worldwide séð um að gæta hags­muna Aleksand­ers Mos­hen­sky gagn­vart ESB.

Sér­fræð­ingar fyr­ir­tæk­is­ins, sem hefur í kúnna­hópi sínum alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki, rík­is­stjórnir og alþjóða­sam­tök, virð­ast þó ekki hafa þurft að hafa mikið fyrir vinnu sinni fyrir Mos­hen­sky. Íslensk stjórn­völd sáu um þá vinnu, að sögn Ástu Guðrúnar Helga­dóttur, fyrr­ver­andi alþing­is­manns, sem starfað hefur í fjölda ára í Brussel.

„Í seinni hluta maí í fyrra fékk ég óvænt skila­boð frá kunn­ingja mínum í Brussel, en hann og sam­starfs­menn hans voru þá að velta fyrir sér sam­skiptum Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins í tengslum við hags­muna­gæslu þeirra fyrir til­tek­inn kúnna sem stund­aði fisk­við­skipti í Hvíta-Rúss­landi,“ segir Ásta Guðrún í sam­tali við Stundina. Kúnninn sem um ræðir var Mos­hen­sky og kunn­ing­inn starfs­maður APCO ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins. Erindið að sögn Ástu var í raun að reyna að skilja hvernig Mos­hen­sky hefði kom­ist hjá aðgerðum ESB.

„Ísland hefði ein­fald­lega lagst á árar með Mos­hen­sky og tek­ist að bjarga honum undan þessum þving­unum“
Ásta Guðrún Helga­dóttir,
fyrrum þing­maður Pírata

„Erindi þessa fólks við mig var því í raun að reyna að átta sig á því hvernig og af hverjum svona ákvörðun væri tekin. Þetta er fólk sem hefur atvinnu af því að lobbía fyrir stór­fyr­ir­tæki og sam­tök og búið að gera það í ára­tugi. Þau höfðu aldrei séð neitt þessu líkt,“ segir Ásta, sem sat á Alþingi fyrir Pírata á árunum 2015-2017, og sat þá meðal ann­ars í utan­rík­is­mála­nefnd.

Ásta Guðrún Helga­dóttirfyrr­ver­andi þing­maður Pírata

„Mér fannst þetta auð­vitað stór­skrýtið en um leið vissi ég af feng­inni reynslu að þetta gat vel hafa farið svona fram. Ég sat sjálf á þingi og fylgd­ist með því þar hvernig sér­hags­muna­öfl gátu, að því er virt­ist mjög auð­veld­lega, fengið stjórn­völd til að ganga erinda sinna. Það virð­ist vera sem Hvíta-Rússland hafi verið notað sem milli­liður til að koma sér fram­hjá við­skipta­þving­unum Rússa og undir voru því gríð­ar­legir hags­munir, sem aug­ljóst er að metnir voru verð­mæt­ari en þeir að þrengja að hags­munum vald­hafa í Hvíta-Rúss­landi.“

Frásögn Ástu kemur heim og saman við frá­sagnir fjölda fólks sem Stundin hefur rætt við und­an­farnar vikur, bæði úr röðum blaða­manna sem fjallað hafa um við­skipta­þving­an­irnar og umræður um þær í Brussel, þeim sem reyndu að koma þeim í gegn, og eins innan íslensku utan­rík­is­þjón­ust­unnar. 

Úr röðum hvít-rúss­neskra lýð­ræð­is­sinna sem barist hafa fyrir veru Mos­hen­sky á list­anum er altalað að íslensk stjórn­völd séu fyrst og fremst ástæða þess að Mos­hen­sky hafi sloppið til þessa.

Í sam­tölum við ein­stak­linga innan íslensku utan­rík­is­þjón­ust­unnar var því lýst hvernig íslenska sendi­ráðið í Brussel hafði fylgst náið með allri umræðu um mögu­legar auknar við­skipta­þving­anir gegn valda­mönnum í Hvíta-Rúss­landi ef vera kynni að Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands og mik­il­vægur við­skipta­vinur íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, ætti á hættu að lenda í sigti ESB. Sendi­ráðið hafi svo einnig haft milli­göngu um að þrýsta á um það að Mos­hen­sky yrði hlíft.

Sendiherra Íslands neitar að svara

Kristján Andri Stef­áns­son, sendi­herra Íslands í Brussel, neit­aði að svara því með hvaða hætti hann eða aðrir emb­ætt­is­menn sendi­ráðs­ins hefðu beitt sér fyrir hönd Mos­hen­sky, eða hvernig staðið hefði verið að því, í sam­tali við Stundina. 

„Ég verð að vísa þér á utan­rík­is­ráðu­neytið vegna þessa,“ var það eina sem Kristján vildi láta hafa eftir sér um málið. Spurður hvers vegna hann vildi ekki svara þessum spurn­ingum, sagði hann að sér þætti eðli­legt að ráðu­neytið svar­aði fyrir málið.

Ráðuneytið grennslaðist fyrir

Stundin fékk að lokum skrif­legt svar frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, þar sem sam­skiptum íslenskra stjórn­valda við ESB, vegna Mos­hen­sky, var ekki lýst nánar en að í lok árs 2020 hafi verið brugð­ist við orðrómi um að Mos­hen­sky kynni að verða á þving­un­ar­lista ESB. 

„Íslensk stjórn­völd leit­uðu eftir frek­ari upp­lýs­ingum meðal sam­starfs­ríkja innan ESB og mið­aði eft­ir­grennslan stjórn­valda að því að upp­lýsa hvort að til stæði að setja ræð­is­mann­inn á lista, og ef svo væri, á hvaða for­sendum. Þá var leit­ast við að skilja hvaða áhrif það mundi hafa á útflutn­ing íslenskra fyr­ir­tækja til Belarús ef þving­un­ar­að­gerðir beindust að honum eða fyr­ir­tækjum hans. Var þetta gert í því skyni að hafa svig­rúm til að bregð­ast við ef svo væri enda hefði vera hans á slíkum lista haft afleið­ingar fyrir þjón­ustu hans í þágu íslenskra hags­muna,“ sagði í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Jafn­framt að Ísland hefði í þessum „sam­tölum“ lagt áherslu á „stuðn­ing Íslands við aðgerðir ESB“.

Utan­rík­is­ráðu­neytið til­tekur sér­stak­lega að Mos­hen­sky hafi ekki verið á þving­un­ar­lista ESB, þá eða núna, en svarar því ekki hvort það teng­ist eitt­hvað sam­tölum íslenskra stjórn­valda við ESB áður en end­an­legir listar voru sam­þykktir. Enda liggur fyrir, meðal ann­ars sam­kvæmt yfir­lýs­ingum Mos­hen­sky sjálfs, að nafn hans hefur ítrekað verið á list­anum sem lagður er fyrir ráð­herra­ráð ESB.

Ekki náinn bandamaður, segir ráðherra

Stundin óskaði einnig eftir við­brögðum sitj­andi utan­rík­is­ráð­herra við gagn­rýni á stöðu Mos­hen­sky sem kjör­ræð­is­manns. Einkum og sér í lagi í sam­hengi við stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar ráð­herr­ans við Svetlönu Tik­hanovskayu og lýð­ræði og mann­rétt­indi, þá sem saka stjórn­völd um valda­rán og mann­rétt­inda­brot.

Svetlana Tik­hanovskaya hefur á und­an­förnum árum lagt höf­uð­á­herslu á að bæði Banda­ríkin og ESB útfæri við­skipta­þving­anir sínar frekar en nú er, og þá í auknum mæli gegn þeim sem hafa hagn­ast á sam­starfi við stjórn­völd í Hvíta-Rúss­landi, meðal ann­ars Aleksander Mos­hen­sky. 

Í skrif­legu svari utan­rík­is­ráð­herra til Stund­ar­innar segir að stuðn­ingur íslenskra stjórn­valda við Svetlönu Tik­hanovskayu sé skýr og ein­dreg­inn og staða ræð­is­manns­ins hafi engum skugga varpað á gott sam­band hennar og stjórn­valda á Íslandi. 

„Það hefur verið mat ráðu­neyt­is­ins að það sé orðum aukið að kjör­ræð­is­maður Íslands sé mjög náinn banda­maður Lúk­asjenkós“
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir
utan­rík­is­ráð­herra, úr skrif­legu svari

„Í sam­tölum við Svetlönu hefur verið rætt um stöðu ræð­is­manns­ins og hún upp­lýst um að Íslandi sé ekki kunn­ugt um mann­rétt­inda­brot eða skoð­ana­kúgun innan hans fyr­ir­tækja. Þá er rétt að taka fram að það hefur verið mat ráðu­neyt­is­ins að það sé orðum aukið að kjör­ræð­is­maður Íslands sé mjög náinn banda­maður Lúk­asjenkós og því hefur ekki þótt vera til­efni til þess að end­ur­skoða stöðu hans hvað sem síðar kann að verða,“ sagði í svari Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra til Stund­ar­innar.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur Svetlana þó viðrað áhyggjur sínar af þeirri stað­reynd að Mos­hen­sky skuli vera kjör­ræð­is­maður Íslands. Það kemur reyndar ekki sér­stak­lega á óvart. Opinber tals­maður Svetlönu, Franak Vyacorka, sagði í við­tölum við fjöl­miðla eftir að ljóst var að Mos­hen­sky og annar þekktur ólíg­arki, sluppu á síð­ustu stundu undan aðgerðum ESB í des­em­ber 2020, að „myrkra­verk hefðu verið framin þegar tókst að lobbía og hvít­þvo" þekkta banda­menn Lukashenko. 

Í árétt­ingu við fyrra svar ráð­herra sagði um það:

„Að sjálf­sögðu vitum við af afstöðu Svetlönu Tik­hanovskayu til ræð­is­manns­ins og hlustum á það sem þau hafa sagt.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigga Svanborgar skrifaði
    Þessi rakning er svo lýsandi fyrir vinnubrögð íslenskra embættismanna. Ráðningu kjörræðismanna hefur alltaf verið í höndum spilltra manna sem ráða inn sína líka......til að viðhalda meintum mikilfengleika sínum
    3
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    ENN eitt skítabixið á vakt Sjálfstæðisflokksins !!!
    3
  • Jón Ragnar Björnsson skrifaði
    Var ekki sett viðskiptabann með fisk á Rússland eftir hertöku þeirra á Krímskaga? Man ekki betur er íslensk sjávarútvegsfyrirtæki andmæltu, en hættu því fljótt.

    Var ástæðan sú að þau fundu greiða leið til Rússlans gegn um Hvíta Rússland?
    9
    • ÁHG
      Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
      Þú ert allur að koma til.
      1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Ólíkt höfumst við að. Siðmenntaðar þjóðir eins og Kýpur reka fyrirvaralaust og án skýringa ræðumenn sína ef grunur leikur á spillingu en við verjum þá.
    9
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Enn ein sköminn sem við megum bera fyrir Íslenska auðmenn.
    17
  • SVB
    Skjöldur Vatnar Björnsson skrifaði
    Þetta er nú stríð elítunnar svo að mafíurnar í mörgum löndum er að vinna í málinu. Lífi almennra borgara er alltaf fórnað í svona leikjum.
    10
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Reginhneiksli ef satt og rétt.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar
FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár