Endurskoðun siðareglna ráðherra taki mið af þyrluflugi eins þeirra

Tíu dæmi eru um að ráð­herrar og aðrir ráða­menn fljúgi með loft­förum Land­helg­is­gæsl­unnar. Í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar er það harð­lega gagn­rýnt en sér­staka gagn­rýni fær Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir fyrir þyrlu­flug sitt með Gæslunni 2020, þegar hún skrapp úr hesta­ferð með fjöl­skyld­unni á fund í Reykja­vík.

Endurskoðun siðareglna ráðherra taki mið af þyrluflugi eins þeirra
Baðst afsök­unar Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir ráð­herra baðst á sínum tíma afsök­unar á flug­ferð­inni en ljóst er að Rík­is­end­ur­skoðun vill meira en það: nauð­syn­legt sé að setja nýja reglur. Mynd: xd.is

Einungis ein þyrla var til­tæk hjá Land­helg­is­gæsl­unni þegar ákveðið var að skutla dóms­mála­ráð­herra fram og til baka á milli Reyn­is­fjöru og Reykja­víkur árið 2020. Níu önnur dæmi eru um að ráða­menn hafi verið far­þegar um borð í flug­förum gæsl­unnar. Ráð­stöf­unin er harð­lega gagn­rýnd í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um starf­semi gæsl­unnar.

Stundin greindi frá þyrlu­ferð Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, sem þá var dóms­mála­ráð­herra, í ágúst árið 2020. Hún hafði verið í hesta­ferð með fjöl­skyldu sinni en skroppið á fund í Reykja­vík, þar sem hún var ekki meðal þeirra sem tóku til máls né tók hún þátt í vinnu­hópum á fund­inum. 

Um þyrlu­flug ráð­herr­ans segir í skýrsl­unni: „Ferðir ráð­herra eða ann­arra ein­stak­linga með flug­vélum, þyrlum eða skipum sem Land­helg­is­gæslan hefur til umráða, í einka­er­indum, eru alvar­lega athug­un­ar­verðar.“ 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    "Hvítvínskonan" verður aldrei hvítþvegin af þessari þyrluferð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu