Ráðherra um þyrluferðina: „Verðum að ganga á undan með góðu fordæmi“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir að boð um þyrlu­ferð hafi komið upp í sam­tali sem hún átti við Georg Lárusson, for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unnar, af öðru til­efni. Hún hafi viljað mæta í per­sónu á fund um COVID-19 til að und­ir­strika mik­il­vægi til­efn­is­ins.

Ráðherra um þyrluferðina: „Verðum að ganga á undan með góðu fordæmi“
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Ráðherra segir það hafa verið mis­tök að þiggja boðið. Mynd: xd.is

„Eftir á að hyggja voru það mis­tök af minni hálfu að þiggja þetta boð um flug­ferð­ina. Við sem gegnum ábyrgð­ar­stöðum á vegum rík­is­ins og þá ekki síst ráð­herrar verðum að ganga á undan með góðu for­dæmi.“

Þetta segir Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. Stundin greindi frá því á mánu­dag að þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar hefði flutt Áslaugu Örnu úr hesta­ferð sem hún var í með föður sínum á fund­inn „Að lifa með veirunni“ í Reykja­vík og til baka fimmtu­dag­inn 20. ágúst. Ráðherra var ekki meðal ræðu­manna á fund­inum, en hlýddi á ræður og yfir­gaf fund­inn þegar hann var rétt um hálfn­aður. Fundinum var streymt á net­inu. Flogið var með hana til baka í hesta­ferð­ina og fór þyrlan þaðan í Borg­ar­fjörð í næsta verk­efni.

Sjald­gæft er að Land­helg­is­gæslan fljúgi með ráð­herra og þegar það ger­ist teng­ist það oft­ast störfum stofn­un­ar­innar eða utan­rík­is­málum, svo sem heim­sóknum erlendra ráða­manna eða varnaræf­ingum. Segir Áslaug Arna að Georg Lárusson, for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar, hafi boðið henni farið í sam­tali sem þau áttu af öðru til­efni.

„Mér var tjáð að það hefði ekki áhrif á önnur verk­efni þyrl­unnar, kostnað eða flug­á­ætlun“

„Eins og áður hefur komið fram var mér boðið af for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unnar að slást með í för þyrlu stofn­un­ar­innar sem var í verk­efnum þennan dag,“ segir Áslaug Arna. „Þetta kom upp í sam­tali sem við áttum af öðru til­efni dag­inn áður. Ég þáði boðið þar sem mér var tjáð að það hefði ekki áhrif á önnur verk­efni þyrl­unnar, kostnað eða flug­á­ætlun.

Ég taldi mik­il­vægt að sýna mál­efn­inu stuðn­ing í verki með því að mæta á fund­inn „Að lifa með veirunni“ enda var efnt til hans að til­lögu sótt­varna­læknis og almanna­varn­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra. Mark­miðið er mik­il­vægt þ.e.a.s. að skapa vett­vang fyrir aukið sam­ráð í bar­átt­unni við þann vágest sem veiran er.“

Spurningar Stundarinnar og svör ráðherra

1. Af hverju sótti ráð­herra fund­inn „Að lifa með veirunni“ fimmtu­dags­morg­un­inn 20. ágúst frekar en til dæmis að fylgj­ast með honum net­leiðis?

Líkt og að framan segir taldi ég mik­il­vægt að mæta sjálf til að und­ir­strika mik­il­vægi til­efn­is­ins.

2. Var eitt­hvað annað til­efni með ferð ráð­herra til Reykja­víkur? 

Nei.

3. Óskaði ráð­herra eftir flug­inu sjálf?

Forstjóri Land­helg­is­gæsl­unnar bauð upp á þessa flug­ferð í sam­tali sem við áttum af öðru til­efni dag­inn áður. 

4. Hvenær var tekin ákvörðun um að ráð­herra færi á fund­inn og hvenær var tekin ákvörðun um að ferðin yrði farin með þyrl­unni?

Ég taldi rétt að vera á staðnum og boð um að fara með þyrl­unni kom dag­inn áður.

5. Telur ráð­herra það rétta nýt­ingu á tíma, mannauð og fjár­munum Land­helg­is­gæsl­unnar að flytja ráð­herra á þennan fund?

Eins og hefur komið fram í til­kynn­ingu frá Land­helg­is­gæsl­unni var að hennar mati ekki um að ræða auka­kostnað né aukna fyr­ir­höfn eða skerta við­bragðs­getu þar sem þyrlan var full­mönnuð til útkalls. 

6. Telur ráð­herra það rétta nýt­ingu á tíma, mannauð og fjár­munum Land­helg­is­gæsl­unnar að flytja ráð­herra í frí?

Vísa í svar við spurn­ingu nr. 5.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár