Áslaug Arna viðurkennir mistök

Dóms­mála­ráð­herra segir það hafa verið mis­tök að fljúga með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar úr fríi á Suð­ur­landi á fund í Reykja­vík og til baka. Hún hyggst ekki þyggja sams konar boð aftur og segir til­efni til að end­ur­skoða verk­lag.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Dóms­mála­ráð­herra seg­ist hafa skiln­ing á gagn­rýni vegna þyrlu­ferð­ar­innar. Mynd: xd.is

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir það hafa verið mis­tök að þiggja flug með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar á fund úr og aftur í hesta­ferð sem hún var í á Suð­ur­landi. Þetta kemur fram í frétt RÚV. 

Stundin greindi frá því í gær að þyrlan hefði flutt Áslaugu Örnu úr hesta­ferð sem hún var í með föður sínum á fund­inn „Að lifa með veirunni“ í Reykja­vík og til baka fimmtu­dag­inn 20. ágúst. Ráðherra var ekki meðal ræðu­manna á fund­inum, en hlýddi á ræður og yfir­gaf fund­inn þegar hann var rétt um hálfn­aður. Fundinum var streymt á net­inu. Flogið var með hana til baka í hesta­ferð­ina og fór þyrlan þaðan í Borg­ar­fjörð í næsta verk­efni.

Sjald­gæft er að Land­helg­is­gæslan fljúgi með ráð­herra og þegar það ger­ist teng­ist það oft­ast störfum stofn­un­ar­innar eða utan­rík­is­málum, svo sem heim­sóknum erlendra ráða­manna eða varnaræf­ingum. Áslaug Arna og dóms­mála­ráðu­neytið hafa ekki svarað fyr­ir­spurn um málið sem Stundin sendi í gær.

„For­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar lagði þetta til og var vegna verk­efnis á þessu svæði og full­viss­aði mig um það að þetta hefði hvorki áhrif á verk­efni eða flug­á­ætlun og hefði engan auka­kostnað eða fyr­ir­höfn í för með sér,“ sagði Áslaug Arna við RÚV. „En það er ljóst að þetta hefur tíðkast þegar það passar inn í verk­efni Gæsl­unnar og það voru mis­tök af minni hálfu að sam­þykkja þetta boð.“

Aðspurð um hvort hún hefði skiln­ing á gagn­rýni vegna þessa sagði hún svo vera. „Já, ég skil það vel. Eftir á að hyggja hefði ég ekki átt að þiggja boðið en að sama skapi var ég full­viss um að þetta hefði engin áhrif á kostnað, verk­efni, flug­á­ætlun né fyr­ir­höfn Gæsl­unnar.“

Áslaug sagði jafn­framt til­efni til þess að end­ur­skoða verk­lag og að hún hyggð­ist ekki þiggja sams­konar boð aftur. 

Spurningar Stundarinnar til ráðherra

1. Af hverju sótti ráð­herra fund­inn „Að lifa með veirunni“ fimmtu­dags­morg­un­inn 20. ágúst frekar en til dæmis að fylgj­ast með honum net­leiðis?

2. Var eitt­hvað annað til­efni með ferð ráð­herra til Reykja­víkur?

3. Óskaði ráð­herra eftir flug­inu sjálf?

4. Hvenær var tekin ákvörðun um að ráð­herra færi á fund­inn og hvenær var tekin ákvörðun um að ferðin yrði farin með þyrl­unni?

5. Telur ráð­herra það rétta nýt­ingu á tíma, mannauð og fjár­munum Land­helg­is­gæsl­unnar að flytja ráð­herra á þennan fund?

6. Telur ráð­herra það rétta nýt­ingu á tíma, mannauð og fjár­munum Land­helg­is­gæsl­unnar að flytja ráð­herra í frí?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár