673. spurningaþraut: Á síðasta degi febrúar er spurt

673. spurningaþraut: Á síðasta degi febrúar er spurt

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er sá ábúð­ar­mikli rit­höf­undur á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á morgun væri hlaup­árs­dagur ef svo bæri undir. En hvenær verður næsti hlaup­árs­dagur?

2.  Á hlaup­árs­degi fyrir um ald­ar­fjórð­ungi lauk lengsta hern­að­ar­um­sátri um nútíma­borg sem sagan kann frá að greina. Það stóð í nærri fjögur ár sam­fleytt eða í 1.425 daga. Hvað heitir sú evr­ópska borg sem svo lengi var setið um?

3.  Brynja Hjálms­dóttir fékk á dög­unum bók­mennta­verð­laun fyrir ljóð sitt „Þegar dagar aldrei dagar aldrei“. Hvað nefn­ast verð­launin sem hún fékk?

4.  Gunnar Þorri Pét­urs­son fékk aftur á móti þýð­ing­ar­verð­launin um dag­inn fyrir þýð­ingu sína á bók­inni Tjerno­byl-bænin, þar sem Nóbels­höf­undur nokkur ræðir við fólk sem lenti í ham­för­unum í Tjerno­byl. Hvað heitir þessi höf­undur?  

5.  Faðir Gunnars Þorra er rit­höf­undur og fyrsta skáld­saga hans var ein vin­sælasta íslenska bókin á sjö­unni — það er að segja átt­unda ára­tugnum. Hvað heitir sú bók?

6.  „Rumble in the Jungle“ var nefndur box­bar­dagi sem fram fór í því ríki sem þá nend­ist Saír árið 1974. Hvaða tveir box­arar börð­ust þar?

7.  En hvað heitir ríkið Saír núna?

8.  Árið 1872 lést átt­ræður Banda­ríkja­maður sem hafði fundið upp ýmis­legt um dag­ana, þar á meðal nýtt staf­róf. Staf­rófið hans var mjög mikið notað langt fram á 20. öld en tölvu­tækni og þess háttar gerði það að lokum óþarft. Hvað skyldi þetta staf­róf hafa verið kallað. 

9.  Ósk­arsverð­launin verða afhent eftir rúmar þrjár vikur. Ein kvik­mynd er til­nefnd til fleiri verð­launa en aðrar, eða tólf. Hvað heitir hún?

10.  Um hvaða land fellur áin Don?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fána má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  2024.

2.  Sarajevo.

3.  Ljóð­stafur Jóns úr Vör.

4.  Svetlana Alexievich. Hvort heldur nafnið nægir.

5.  Punktur punktur komma strik.

6.  Muhammed Ali og Foreman.

7.  Kongó. Það eru raunar til tvö Kongó-ríki og greint er á milli með því að kalla þau ann­ars vegar lýð­veldi og hins vegar alþýðu­lýð­veldi en Kongó er hið eig­in­lega nafn og dugar því hér.

8.  Morse.

9.  The Power of the Dog.

10.  Rússland.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Rit­höf­und­ur­inn er Tolstoj hinn rúss­neski.

Fáninn er sá kín­verski.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár