Leit er hafin að Sigurði

Lög­reglan lýsir eftir Sigurði Kort Haf­steins­syni sem hefur ekki sést frá því á fimmtu­dags­morgun.

Leit er hafin að Sigurði
Þyrlan við leit Óskað er eftir upp­lýs­ingum frá almenn­ingi. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar hefur seinni part­inn í dag sveimað yfir strand­lengj­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna leitar í sam­vinnu við Lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Leitað hefur verið á Suð­ur­strönd Sel­tjarn­ar­ness, við Kársnes í Kópavogi og nærri Bessa­stöðum. 

Sigurður Kort Haf­steins­sonEr saknað frá því á fimmtu­dags­morgun.

Fyrr í dag lýsti lög­reglan eftir Sigurði Kort Haf­steins­syni, 65 ára, sem hefur ekki sést síðan á fimmtu­dags­morgun. „Hann er 184 sm á hæð, grann­vax­inn og með grá­sprengt hár,“ segir í eft­ir­lýs­ingu lög­reglu. „Sigurður er klæddur í bláar galla­buxur, dökk­bláan jakka og með húfu (hugs­an­lega rauða). Síðast er vitað um ferðir Sigurðar í vest­urbæ Kópavogs snemma á fimmtu­dags­morgun, 17. febr­úar. Þau sem geta gefið upp­lýs­ingar um ferðir Sigurðar, eða vita hvar hann er að finna, eru vin­sam­leg­ast beðin um að hafa taf­ar­laust sam­band við lög­regl­una í síma 112.“

Á sama tíma og leitin stendur yfir fer veður versn­andi og almanna­varnir hafa lýst yfir óvissu­stigi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár