664. spurningaþraut: Hver er að horfa á mörgæsir?

664. spurningaþraut: Hver er að horfa á mörgæsir?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hversu hátt er undir stöng­ina í venju­legu fót­bolta­marki? Eru það 1,68 metrar — 2,00 metrar — 2,44 metrar — eða 3,12 metrar?

2.  Ísa­fjarð­ar­bær varð til árið 1996 fjórir þétt­býl­is­staðir sam­ein­uð­ust Ísafirði. Nefnið þrjá þeirra!

3.  Árið 1985 var ung íslensk stúlkan valin Ungfrú heimur. Hvað heitir hún?

4.  'Ndrang­heta er óform­legt nafn á óform­legum sam­tökum í til­teknu Evr­ópu­landi. Ýmislegt er á huldu um 'Ndrang­heta, en yfir­leitt telj­ast sam­tökin ein af und­ir­deildum ... hvaða sam­taka?

5.  Hvað heitir for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar?

6.  Í hverri hinna núver­andi heims­álfa bjó Tyrann­osaurus Rex?

7.  Árið 1924 var í fyrsta sinn hald­inn ákveð­inn við­burður og hefur farið mjög reglu­lega fram síðan. Þetta gerð­ist í Chamonix í Frakk­landi laust eftir ára­mót. Atburð­ur­inn vekur yfir­leitt mikla athygli þótt stöku sinnum bland­ist stjórn­mála­þrætur inn í atburða­rás­ina. Hvaða atburður var þetta sem uphófst þarna?

8.  Hvað kall­að­ist grað­hesta­skyr?

9.  Í hvaða landi er borgin Dortmund?

10.  Bing, Buffay, Geller, Green, Scully og Tribb­i­ani. Hvaða nafn á ekki heima í þess­ari röð?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvern þekk­iði hér að horfa á mör­gæsir?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  2,44 metrar.

2.  Suð­ur­eyri, Þingeyri, Hnífs­dalur og Flateyri. Hafa þarf þrjú rétt.

3.  Hólm­fríður Karls­dóttir.

4.  Ítölsku mafí­unnar. Þessi deild er upp­runnin í Kalabríu.

5.  Magda­lena And­ers­son.

6.  Norður-Ameríku.

7.  Fyrstu vetr­ar­ólymp­íu­leik­arnir.

8.  Kekkjótt skyr.

9.  Þýska­landi.

10.  Scully. — Hin nöfnin fimm eru nöfn á per­sónum í sjón­varps­þátta­röð­inni Friends en Scully kemur úr X-Files. Ekki er þó nauð­syn­legt að hafa það allt á hreinu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Jill Biden for­seta­frú í Banda­ríkj­unum.

Á neðri mynd­inni er Elísabet, síðar Breta­drottn­ing, önnur frá hægri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár