663. spurningaþraut: Hér er spurt um ættbálk spendýra og frumefni!

663. spurningaþraut: Hér er spurt um ættbálk spendýra og frumefni!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver situr þar hest sinn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Við hvaða fjörð stendur Osló, höf­uð­borg Noregs?

2.  En við hvaða fjörð stendur Búð­ar­dalur?

3.  Mjög vin­sæl tón­list­ar­kona heitir Laurie Blue Adkins — en þá vantar reyndar fyrsta skírn­ar­nafn hennar, og einmitt það nafn sem hún er lang­þekkt­ust undir. Hvaða skírn­ar­nafn notar Adkins þegar hún kemur fram? 

4.  Ítalski upp­finn­inga­mað­ur­inn Gugli­elmo Marconi var tals­vert í sviðs­ljós­inu upp úr alda­mót­unum 1900 og þar á meðal hér á Íslandi þar sem upp­finn­ing hans kom við sögu í miklum inn­an­lands­deilum. Um hvað sner­ist þessi helsta upp­finn­ing Marconis?

5.  Hver er þrumuguð nor­rænna manna?

6.  Hver er ein­faldasta skil­grein­ingin á frum­efni? 

7.  Hve mörg voru hin svo­nefndu undur forn­aldar?

8.  Af hvaða dýra­teg­und er teikni­mynda­per­sónan Grettir eða Garfield?

9.  Í hvaða þekktri rokk­hljóm­sveitir hafa bræður að nafni Gallag­her lengi deilt af hörku?

10.  Hér var fyrir ekki löngu spurt um hvaða ætt­bálkur spen­dýra hefði innan sinna vébanda flestar teg­undir, og reynd­ust það vera nag­dýr. En hvaða spen­dýra­ætt­bálkur kemur næst þar á eftir? Ég mæli með að fólk hugsi þetta aðeins áður en svarað er. 

***

Auka­spurn­ing sú hin seinni:

Hvar er brúin hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Osló­fjörð.

2.  Hvamms­fjörð

3.  Adele.

4.  Loft­skeyti. Þið fáið líka rétt fyrir „útvarp“ þó það sé svona á mörk­unum.

5.  Þór.

6.  Ekki hægt að skipta því upp í önnur efni.

7.  Sjö.

8.  Köttur.

Garfield, ellegar Grettir

9.  Oasis.

10.  Leð­ur­blökur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er mál­verk Davids af Napóleon.

Neðri myndin er af Eyr­ar­sunds­brúnni milli Dan­merkur og Sví­þjóðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár