Björgvin Páll að skoða framboð fyrir Framsókn í borginni

Björgvin Páll Gúst­avs­son hand­knatt­leiks­maður íhugar að gefa kost sér sem borg­ar­stjóra­efni Fram­sóknar. Hann vilji taka þar þátt í bylt­ingu í mál­efnum barna.

Björgvin Páll að skoða framboð fyrir Framsókn í borginni
Vill taka þátt í bylt­ingu í mál­efnum barna Björgvin Páll íhugar nú alvar­lega að gefa kost á sér sem borg­ar­stjóra­efni Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Wikipedia

Björgvin Páll Gúst­avs­son, lands­liðs­mark­vörður í hand­knatt­leik, er að velta fyrir sér að gefa kost á sér sem odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Frá þessu greinir hann Twitter.

Björgvin segir í færslu sinni að hann hafi, kvöldið sem hann lenti á Íslandi eftir Evr­ópu­mótið í hand­knatt­leik á dög­unum, fengið sím­tal frá þjóð­þekktum ein­stak­lingi sem hann bæri mikla virð­ingu fyrir. Til­gangur sím­tals­ins hafi verið að skora á Björgvin að gefa kost á sér sem borg­ar­stjóra­efni Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Björgvin segir að umræddur maður þekki vel ástríðu hans fyrir mál­efnum barna og hafi viljað sjá hann taka slag­inn enda þyrfti „að taka borg­ina“ og snúa við málum þar. „Það skrýtna er að þessi hug­mynd hljóm­aði ein­hverra hluta vegna ekki svo galin og ég er virki­lega hrærður yfir þeirri trú sem þessi góði vinur hefur á mér.“

„Það að merkja X við B, fyrir Björgvin og börnin er eitt­hvað sem hljómar alla vega vel“

Björgvin rekur að hann hafi sýn á hvernig auka megi vellíðan barna, bæta skóla­kerfið og hlúa að for­eldrum. „Því meira sem ég hugsa þetta því meiri trú hef ég á því að þetta gæti smollið. Minn til­gangur í líf­inu er að vera góð fyr­ir­mynd og auka vellíðan en síð­ustu vikur og mán­uði hef ég velt því mikið fyrir mér hvert sé næsta skref hjá mér í að hafa sem mest áhrif.“

Björgvin lýsir því að hann sé „ekki bara haand­bolta­kall“, hann sé líka öll reynsla sín í líf­inu, sex ára strák­ur­inn sem beit kennar­ann sinn, strák­ur­inn sem átta ára var tek­inn með hníf í skól­anum og lagður inn á BUGL. „Strák­ur­inn sem skóla­kerfið brást, strák­ur­inn sem fékk aldrei grein­ing­una mína og lyfin mín.“

Björgvin segir að hann hafi unnið síð­ustu ár með börnum innan skóla­kerf­is­ins og utan þess og vilji hafa áhrif. „En er ég efni í næsta borg­ar­stjóra í Reykja­vík? Ég hrein­lega veit það ekki... Ef ég tæki slag­inn þá væri það einna helst til þess að taka þátt í bylt­ingu er kemur að mál­efnum barna. Það að merkja X við B, fyrir Björgvin og börnin er eitt­hvað sem hljómar alla vega vel.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Þú þart ekkert að geta, bara vera þekktur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár