658. apurningaþraut: Um hvaða borg settust Tyrkir tvívegis en náðu eigi?

658. apurningaþraut: Um hvaða borg settust Tyrkir tvívegis en náðu eigi?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá Björku í hlut­verki sínu í kvik­mynd og fékk hún mörg verð­laun fyrir. Hvað heitir myndin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver leik­stýrði þeirri mynd?

2.  En í hvaða frægu kvik­mynd frá 1996 kom fyrir aðal­per­sóna sem kall­að­ist Marge Gund­er­son?

3.  Og hver lék Marge Gund­er­son?

4.  Hver gaf út á Bret­landi árið 1928 skáld­sög­una Orlando, þar sem segir frá einkar lang­lífri per­sónu?

5.  Við hvaða vík eða vog eða flóa eða fjörð stendur bær­inn Húsavík?

6.  Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir situr í borg­ar­stjórn Reykja­víkur fyrir ... hvaða flokk?  

7.  Antonio Costa er for­sæt­is­ráð­herra í landi einu, og vann nýlega kosn­ingar þar í landi og þótti frekar óvænt. En í hvaða landi?

8.  Árið 1529 sett­ust tyrk­neskar her­sveitir um borg eina í Evrópu og mun­aði ekki miklu að þær næðu henni. Hálfri annarri öld síðar, 1683, voru Tyrkir aftur á ferð­inni og reyndu að ná sömu borg, en mistókst aftur. Sumir telja að það hefði orðið mjög afdrifa­ríkt fyrir þróun Evrópu ef Tyrkir hefðu náð borg­inni. En hvaða borg var þetta?

9.  Fyrir 30 árum voru sýndar vin­sælar sjón­varps­myndir í Bret­landi um lög­reglu­mann­inn Morse sem leysti erfið saka­mál í Oxford. Hann var leik­inn af John Thaw. Tuttugu árum seinna hófst önnur sjón­varps­s­ería þar sem lög­reglu­maður að nafni Endeavour (leik­inn af Shaun Evans) leysir líka erfið saka­mál — líka í Oxford. Hver eru tengsl per­són­anna Endeavours og Morse í þessum tveim þátta­röðum?

10.  Guðrún Katrín Þor­bergs­dóttir fékkst við margt um dag­ana, rak verslun, var fram­kvæmda­stjóri Póst­manna­fé­lags Íslands, og fleira. Hvar­vetna var hún virt vel. Hún var líka þekkt fyrir síð­ara hjóna­band sitt. Þá var hún gift ... hverjum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá eitt af hinum sjö undrum forn­aldar sem var í ... hvaða borg?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Lars von Trier.

2.  Fargo.

3.  Frances McDormand.

4.  Virginia Woolf.

5.  Skjálf­anda.

6.  Sós­í­alista­flokk­inn.

7.  Portúgal.

8.  Vín­ar­borg.

9.  Þeir eru sami mað­ur­inn.

10.  Ólafi Ragnari Gríms­syni.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Myndin sem Björk lék í heitir Dancer in the Dark.

Vitinn mikli var í Alex­andríu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár