659. spurningaþraut: Guðmundur Sigurjónsson og fleira fólk

659. spurningaþraut: Guðmundur Sigurjónsson og fleira fólk

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Skömmu‘ áður en vind­ur­inn sofnar uppi á hæð­unum, eins og morg­un­döggin sprettur svit­inn fram. And­ar­taki áður en nýr dagur kemur með póst­inum ákveður sólin að hylja sinn harm.“ Hvað er þetta?

2.  Í kjöl­far Skaft­ár­elda komu ... ?

3.  Hún fædd­ist um árið 850 — ef hún var til á annað borð — og átti tvö börn með eig­in­manni sínum, Þor­steinn hét sonur hennar en Þórný dóttir. Hún er talin for­móðir allra inn­fæddra Íslend­inga — ef hún var þá til á annað borð! Hvað hét hún?

4.  Á árunum kringum 2010 reis upp stjórn­mála­hreyf­ing innan banda­ríska Repúblikana­flokks­ins sem þótti heldur pópúl­ísk. Hreyf­ingin rann svo inn í stuðn­ings­manna­blokk Trumps og er vart lengur minnst á hana. Hvað var þessi hreyf­ing kölluð?

5.  „Ekki skal gráta Björn bónda, heldur ...“ hvað?

6.  Hvaða fyr­ir­bæri er Maríulax?

7.  Hvað heitir danski fót­bolta­karl­inn sem fékk hjarta­á­fall í leik á Evr­ópu­mót­inu í fót­bolta síð­ast­liðið sumar?

8.  Hvað heitir for­seti Sýrlands sem virð­ist ætla að halda völdum þrátt fyrir borg­ara­stríð í ára­tug?

9.  Í hvaða landi fellur fljótið Indus til sjávar?

10.  Guð­mundur Sig­ur­jóns­son varð annar Íslend­inga til þess að ná á alþjóða­vett­vangi til­teknum áfanga, sem er eft­ir­sóttur mjög. Það var árið 1975. Á eftir Guðmundi hefur svo rúm­lega tugur Íslend­inga náð sama áfanga, og voru þeir heil­miklar þjóð­hetjur á sínum tíma þótt nokkuð hafi dregið úr athygl­inni und­an­farið. Hvaða áfanga náði Guð­mundur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Blind­sker eftir Bubba Morthens.

2.  Móðu­harð­indi.

3.  Hallveig Fróða­dóttir (kona Ingólfs Arn­ar­sonar). Hallveig dugar reyndar.

4.  Tea Party, Teboðs­hreyf­ingin.

5.  Safna liði.

6.  Fyrsti lax sem ein­hver veiðir.

7.  Christan Eriksen.

8.  Assad.

9.  Pakistan.

10.  Hann var stór­meist­ari í skák.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er sporð­dreki.

Á neðri mynd­inni er Kristín Jóhann­es­dóttir leik­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár