Læknar á Karolinska gagnrýna aukastarf Björns Zoëga á Íslandi

Félag lækna við Karol­inska-sjúkra­húsið gagn­rýnir auk­starf for­stjór­ans, Björns Zoëga, á Íslandi. Formaður félags­ins segir málið snú­ast um trúnað og spyr hvernig það megi vera að Björn geti sinnt öðru starfi sam­hliða for­stjóra­starf­inu.

Læknar á Karolinska gagnrýna aukastarf Björns Zoëga á Íslandi
Félag lækna á Karol­inska gagn­rýnir auka­starf Björns Félag lækna við Karol­inska-sjúkra­húsið, sem Yvonne Dellmark, fer fyrir gagn­rýnir auka­starf Björns Zoega fyrir heil­brigð­is­ráð­herra, Willum Þór Þórsson, á Íslandi.

Læknar á Karol­inska-sjúkra­hús­inu í Svíþjóð gagn­rýna auka­starf for­stjóra spít­al­ans, Björns Zoëga, fyrir heil­brigð­is­ráð­herra á Íslandi og segja að það sé sér­stakt að hann geti sinnt því starfi sam­hliða for­stjóra­starf­inu.

Þetta kemur fram í við­tali við for­mann félags lækna á Karol­inska-sjúkra­hús­inu, Yvonne Dellmark,  í sænska blað­inu Dagens Nyheter sem fjallað hefur umtals­vert um auka­starf Björns á Íslandi og þau laun sem hann fær á mán­uði. „...þetta sýnir að það eru mis­mun­andi skil­yrði sem gilda fyrir stjórn­endur á sjúkra­hús­inu en aðra starfs­menn. Þetta er trún­að­ar­spurn­ing sem gerir málið sér­stak­lega alvar­legt,“ segir hún við Dagens Nyheter. 

Aukastarfið vekur meiri athygli

Í blað­inu kemur fram að auka­starf Björns hafi vakið meiri athygli en þau laun sem hann fær. Eins og Stundin hefur greint frá þá er hann með tæp­lega 5 millj­ónir á mán­uði, nærri 4 millj­ónir á Karol­inska-sjúkra­hús­inu og tæp­lega 1.1 fyrir auk­starfið á Íslandi sem þó er bara hluta­starf. 

Dagens Nyheter bendir hins vegar á það, líkt og Stundin hefur áður gert, að jafn­vel þó að auka­starfið á Íslandi sé skil­greint sem „100 pró­sent“ starf, og að laun séu greidd sam­kvæmt því, þá sinni Björn því aðeins í hjá­verkum. Björn hefur sagt að hann sinni auka­starf­inu á Íslandi í frí­tíma sínum og um helgar og að því eigi það ekki að koma niður á for­stjóra­starf­inu. 

Þrengt að starfsfólki varðandi aukastörf

Eins og kemur fram í við­tal­inu við Yvonne Dellmark þá hefur verið þrengt að starfs­fólki á Karol­inska-spít­al­anum sem verið hefur í auka­störfum sam­hliða störfum sínum þar og þess vegna vekur málið sér­staka athygli. Sam­bæri­leg þróun hefur verið á Íslandi þar sem Land­spít­al­inn hefur reynt að búa þannig um hnút­ana að læknar starfi  sem minnst ann­ars staðar en á spít­al­anum, til að mynda í stofu­rekstri sem sér­greina­læknar. 

„Starfs­fólk hefur þurft að taka afstöðu á milli auka­starfs­ins og starfs síns á Karol­inska“
Ivonne Dellmark, for­maður félags lækna við Karol­inska

Um þetta segir Yvonne: „Starfs­fólk hefur þurft að taka afstöðu á milli auka­starfs­ins og starfs síns á Karol­inska og við höfum misst þriðj­ung allra sér­fræð­inga á einni af deildum spít­al­ans. Ekki hefur verið gef­inn slaki til und­an­tekn­inga frá þess­ari reglu,“ segir hún og því horfi það ein­kenni­lega við að for­stjóri spít­al­ans geti og megi vera í þessum tveimur störfum sam­tímis. 

Hún gagn­rýnir einnig þá hug­mynd að Björn geti sinnt báðum stör­f­unum: „Starfið sem for­stjóri sjúkra­húss­ins krefst stöðugrar aðkomu og nær­væru. Það er auð­vitað hann sem er ábyrgur fyrir sjúkra­hús­inu,“ segir hún. 

Í sam­tali við Dagens Nyheter segir Björn að hann líti ekki svo á að málið snú­ist um spurn­ingar um trúnað gagn­vart Karol­inska-sjúkra­hús­inu. „Ég lít svo á að þetta snú­ist um þekk­ingu sem ég bý yfir, ekki sem spurn­ingu um trúnað. Annars hefði ég ekki tekið að mér þetta starf,“ segir Björn. 

For­stjór­inn lítur því ekki svo á, sam­kvæmt þessu, að þær spurn­ingar sem for­maður lækna­fé­lags Karol­inska spyr um auka­starf hans á Íslandi feli í sér vanda­mál. Björn hefur sagt að ef hann geti ekki sinnt báðum stör­f­unum þá muni hann hætta sem ráð­gjafi heil­brigð­is­ráð­herra á Íslandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Margur verður af aurum api! Siðblindan lætur ekki að sér hæða.
    0
  • Benedikt Sigurðarson skrifaði
    Þrengist nú að þessum "Messí-asi" Willums - og fyrst DN er að fylgja málinu eftir mundu margir segja að það fari að styttast í störfum hans þarna á Karólínska
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Og siðferði er málinu óviðkomandi sem eðlilegt er hann er jú Íslendingur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laun Björns Zoëga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár