Sænskt stórblað fjallar um launamál Björns Zoëga og spyr hvort hann sé ofurmaður

Í öðrum leið­ara Dagens Nyheter í dag er fjallað um laun Björns Zoëga, for­stjóra Karol­inska-sjúkra­húss­ins í Svíþjóð, og er launa­hækkun hans sett í sam­hengi við hækk­anir hjá hjúkr­un­ar­fræð­ingum. Blaðið skilur ekki hvernig Björn getur verið í tveimur störfum í Svíþjóð og Íslandi.

Sænskt stórblað fjallar um launamál Björns Zoëga og spyr hvort hann sé ofurmaður
Furðar sig á laun­unum Í leið­ara sænska blaðs­ins Dagens Nyheter í dag furðar höf­und­ur­inn sig á launa­málum Björns Zoega og auka­vinnu hans fyrir Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra.

Sænska stór­blaðið Dagens Nyheter fjallar um launa­mál Björns Zoëga, for­stjóra Karol­inska-sjúkra­húss­ins í Svíþjóð og ráð­gjafa heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins á Íslandi, í öðrum leið­ara blaðs­ins í dag og varpar fram þeirri spurn­ingu hvort hann sé ofur­maður. 

Launamál Björns hafa verið til umfjöll­unar í sænska blað­inu en hann er með 270 þús­und sænskar krónur á mán­uði, 3,9 millj­ónir króna, og þar með 90 þús­und sænskum krónum, 1,3 millj­ónum króna, meira í mán­að­ar­laun en for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, Magda­lena Anderson.

„Ef vinnu­á­lagið og ábyrgðin er svo mikil að slík laun séu rétt­læt­an­legt ættu maður þá ekki ganga út frá því við­tak­andi laun­anna hafi ekki líka tíma og orku til að sinna öðru starfi á öðrum stað?“

Björn er auk þess með tæp­lega 1,1 milljón íslenskra króna á mán­uði fyrir að vera sér­stakur ráð­gjafi heil­brigð­is­ráð­herr­ans á Íslandi, Willums Þórs Þórs­sonar. Bæði þessi störf Björns eru skil­greind sem 100 pró­sent störf eins og Stundin hefur fjallað um. Dagens Nyheter setur störf og laun Björns í Svíþjóð í sam­hengi við þetta auka­starf hans á Íslandi. 

Leiðari Dagens NyheterEr Björn ofur­menni, spyr leið­ara­höf­undur Dagens Nyheter, sem fjallar um laun hans fyrir tvö hund­rað pró­sent störf.

Umfjöllun Dagens Nyheter fjallar hins vegar ekki ein­göngu um per­sónu og laun Björns sem slíks heldur stærra sam­fé­lags­legt sam­hengi þar sem sú launa­hækkun sem hann fékk í fyrra, 12 pró­sent, er sett í sam­hengi við það að á sama tíma fengu hjúkr­un­ar­fræð­ingar í Stokk­hólm­sléni 2,8 pró­senta launa­hækkun.

Launa­hækkun Björns var því ríf­lega fjór­falt hærri en launa­hækkun hjúkr­un­ar­fræð­ing­anna á erf­iðu ári í rekstri sænska heil­brigð­is­kerf­is­ins þar sem COVID-far­ald­ur­inn setti stórt strik í reikn­ing­inn. Um þetta segir í leið­ar­anum: „Heil­brigð­is­starfs­fólkið á gólf­inu hefur barist vel í COVID-far­aldr­inum en ef tekið er mið af launa­þró­un­inni þá hefur inn­legg þeirra ekki verið nálægt því eins mik­il­vægt og for­stjór­ans.“

Sænska blaðið setur launa­mál Björns svo í sam­hengi við auka­starf hans á Íslandi, sem blaðið á erfitt með að skilja að hann geti sinnt sam­hliða for­stjóra­starf­inu á Karol­inska, og spyr þeirrar spurn­ingar hvað Stokk­hólms-lén, sem rekur sjúkra­húsið, fái eig­in­lega fyrir þessar tæpu 4 millj­ónir á mán­uði.

„Þetta vekur spurn­ingar um hvað Stokk­hólms-lén fær eig­in­lega fyrir þessar 270600 sænsku krónur á mán­uði. Ef vinnu­á­lagið og ábyrgðin er svo mikil að slík laun séu rétt­læt­an­legt ættu maður þá ekki ganga út frá því við­tak­andi laun­anna hafi ekki líka tíma og orku til að sinna öðru starfi á öðrum stað?“

Tekið skal fram að Björn hefur sagt að hann muni láta af störfum sem ráð­gjafi Willums Þórs á Íslandi ef hann getur ekki sinnt báðum stör­f­unum. „Það mun koma í ljós á næstu mán­uðum hvort það gengur að sinna báðum stör­f­unum sam­tímis. Ef það gengur ekki þá mun ég hætta að vera ráð­gjafi, það erum við heil­brigð­is­ráð­herr­ann sam­mála um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Svanhvít Sigurgeirsdóttir skrifaði
    Skiljanlega botna Svíar ekkert í Íslenskri spillingu, þegar verið er að moka til sín úr Ríkiskassanum.
    0
  • Gunnhildur Sigurjónsdóttir skrifaði
    Og maður bíður í ofvæni eftir ráðgjöfinni - að honum takist að leysa stjórnunarvanda Landspítalans, eins og hann gerði á Karolinska. Virkar ekki traustvekjandi með ofurlaunin
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Gott dæmi um viðbjóðslegan klíkuskap. Þessi "aðstoðarmaður" er bara sýndarmennska. Segir okkur líka að það er engin þörf á þessum "aðstoðarmönnum". Sem forstjóri sjúkrahúss segir manni að það sé fullt starf en ekki aukastarf hvað þá hitt ........
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Gott dæmi um viðbjóðslegan klíkuskap. Þessi "aðstoðarmaður" er bara sýndarmennska. Segir okkur líka að það er engin þörf á þessum "aðstoðarmönnum". Sem forstjóri sjúkrahúss segir manni að það sé fullt starf en ekki aukastarf hvað þá hitt ........
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Auðvitað þarna eru málin rædd opinberlega og á gagnrýninn hátt. Þessi Supermaður sem flúði áður frá Íslandi vegna óviðunandi aðstæðna á vinnustað sínum, á nú að laga allt á súperlaunum. Íslensk heimska!
    0
  • SL
    Sigmundur Lýðsson skrifaði
    Halló Ingi Freyr.
    Þetta er eins og að fá Messi í Val eða KR(segir heilbrigðisráðherra)og er það nú ekkert smá 🤨😳🥴
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laun Björns Zoëga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár