Læknar á Karolinska gagnrýna aukastarf Björns Zoëga á Íslandi

Félag lækna við Karolinska-sjúkra­húsið gagnrýnir aukstarf forstjórans, Björns Zoëga, á Íslandi. Formaður félagsins segir málið snúast um trúnað og spyr hvernig það megi vera að Björn geti sinnt öðru starfi samhliða forstjóra­starfinu.

Félag lækna á Karolinska gagnrýnir aukastarf Björns
Félag lækna á Karol­inska gagn­rýnir auka­starf Björns Félag lækna við Karol­inska-sjúkra­húsið, sem Yvonne Dellmark, fer fyrir gagn­rýnir auka­starf Björns Zoega fyrir heil­brigð­is­ráð­herra, Willum Þór Þórsson, á Íslandi.

Læknar á Karolinska-sjúkra­húsinu í Svíþjóð gagnrýna aukastarf forstjóra spítalans, Björns Zoëga, fyrir heilbrigðis­ráðherra á Íslandi og segja að það sé sérstakt að hann geti sinnt því starfi samhliða forstjóra­starfinu.

Þetta kemur fram í viðtali við formann félags lækna á Karolinska-sjúkra­húsinu, Yvonne Dellmark,  í sænska blaðinu Dagens Nyheter sem fjallað hefur umtals­vert um aukastarf Björns á Íslandi og þau laun sem hann fær á mánuði. „...þetta sýnir að það eru mismun­andi skilyrði sem gilda fyrir stjórn­endur á sjúkra­húsinu en aðra starfs­menn. Þetta er trúnaðar­spurning sem gerir málið sérstak­lega alvarlegt,“ segir hún við Dagens Nyheter. 

Aukastarfið vekur meiri athygli

Í blaðinu kemur fram að aukastarf Björns hafi vakið meiri athygli en þau laun sem hann fær. Eins og Stundin hefur greint frá þá er hann með tæplega 5 milljónir á mánuði, nærri 4 milljónir á Karolinska-sjúkra­húsinu og tæplega 1.1 fyrir aukstarfið á Íslandi sem þó er bara hluta­starf. 

Dagens Nyheter bendir hins vegar á það, líkt og Stundin hefur áður gert, að jafnvel þó að auka­starfið á Íslandi sé skilgreint sem „100 prósent“ starf, og að laun séu greidd samkvæmt því, þá sinni Björn því aðeins í hjáverkum. Björn hefur sagt að hann sinni auka­starfinu á Íslandi í frítíma sínum og um helgar og að því eigi það ekki að koma niður á forstjóra­starfinu. 

Þrengt að starfsfólki varðandi aukastörf

Eins og kemur fram í viðtalinu við Yvonne Dellmark þá hefur verið þrengt að starfs­fólki á Karolinska-spítalanum sem verið hefur í auka­störfum samhliða störfum sínum þar og þess vegna vekur málið sérstaka athygli. Sambærileg þróun hefur verið á Íslandi þar sem Land­spítalinn hefur reynt að búa þannig um hnútana að læknar starfi  sem minnst annars staðar en á spítalanum, til að mynda í stofu­rekstri sem sérgreina­læknar. 

„Starfs­fólk hefur þurft að taka afstöðu á milli auka­starfs­ins og starfs síns á Karol­inska“
Ivonne Dellmark, for­maður félags lækna við Karol­inska

Um þetta segir Yvonne: „Starfs­fólk hefur þurft að taka afstöðu á milli auka­starfsins og starfs síns á Karolinska og við höfum misst þriðjung allra sérfræðinga á einni af deildum spítalans. Ekki hefur verið gefinn slaki til undan­tekninga frá þessari reglu,“ segir hún og því horfi það einkenni­lega við að forstjóri spítalans geti og megi vera í þessum tveimur störfum samtímis. 

Hún gagnrýnir einnig þá hugmynd að Björn geti sinnt báðum störfunum: „Starfið sem forstjóri sjúkra­hússins krefst stöðugrar aðkomu og nærværu. Það er auðvitað hann sem er ábyrgur fyrir sjúkra­húsinu,“ segir hún. 

Í samtali við Dagens Nyheter segir Björn að hann líti ekki svo á að málið snúist um spurningar um trúnað gagnvart Karolinska-sjúkra­húsinu. „Ég lít svo á að þetta snúist um þekkingu sem ég bý yfir, ekki sem spurningu um trúnað. Annars hefði ég ekki tekið að mér þetta starf,“ segir Björn. 

Forstjórinn lítur því ekki svo á, samkvæmt þessu, að þær spurningar sem formaður lækna­félags Karolinska spyr um aukastarf hans á Íslandi feli í sér vandamál. Björn hefur sagt að ef hann geti ekki sinnt báðum störfunum þá muni hann hætta sem ráðgjafi heilbrigðis­ráðherra á Íslandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Margur verður af aurum api! Siðblindan lætur ekki að sér hæða.
    0
  • Benedikt Sigurðarson skrifaði
    Þrengist nú að þessum "Messí-asi" Willums - og fyrst DN er að fylgja málinu eftir mundu margir segja að það fari að styttast í störfum hans þarna á Karólínska
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Og siðferði er málinu óviðkomandi sem eðlilegt er hann er jú Íslendingur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laun Björns Zoëga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár