Sauðfjárbóndi segir ekkert upp úr búskapnum að hafa

Verð á áburði hefur því sem næst tvö­fald­ast milli ára. Kostn­að­ar­auki fyrir bændur vegna þess nemur 2,5 millj­örðum króna. Gróa Jóhanns­dóttir, sauð­fjár­bóndi í Breiðdal, segir áburð­ar­kaup éta upp 60 pró­sent þess sem hún fær fyrir inn­legg sitt í slát­ur­hús. „Það er í raun bilun í manni að vera að standa í þessu.“

Sauðfjárbóndi segir ekkert upp úr búskapnum að hafa
Vill vera sauð­fjár­bóndi Gróa, sem hér er ásamt ærinni Gibbu, segir að hún geti ekki hugsað sér að hætta búskap en hins vegar verði að vera hægt að hafa lífs­við­ur­væri af honum. Hún ótt­ast að það sé að verða von­laust.

Hækkanir á áburð­ar­verði munu að óbreyttu éta upp 60 pró­sent af því verði sem sauð­fjár­bóndi á Aust­ur­landi fær fyrir afurðir sínar næsta haust. Gríð­ar­legt verð­fall varð á afurða­verði til bænda á árunum 2016 og 2017 og lætur nærri að sauð­fjár­bændur hafi vegna þess tapað um sex millj­örðum króna í afurða­tekjur á þriggja ára tíma­bili. Verð fyrir lamba­kjöt til bænda hefur þá alls ekki fylgt almennri verð­lags­þróun heldur vantar þar mikið upp á. Gróa Jóhanns­dóttir, bóndi á Hlíð­ar­enda í Breiðdal, segir ekk­ert verða eftir þegar búið er að gera upp kostnað og veltir því alvar­lega fyrir sér hvort hún eigi að bregða búi. „Sauð­fjár­bændur hafa í raun engar tekjur, það er ekki hægt að reikna tekjur af rekstr­inum.“

Gríð­ar­legar verð­hækk­anir eru orðnar, og fyr­ir­séðar, á til­búnum áburði og hefur verðið því sem næst tvö­fald­ast frá fyrra ári. Ástæð­anna er einkum að leita í hærra hrá­efn­is­verði, hækkun á orku­verði og áhrifum heims­far­ald­urs Covid-19 kór­óna­veirunnar á fram­boð í heim­inum en allur til­bú­inn áburður er fluttur inn til lands­ins. Íslenskir bændur eru veru­lega háðir notkun á til­búnum áburði á tún sín, ekki bara svo að upp­skera verði nægj­an­leg að magni heldur að efna­inn­hald þess fóð­urs sem bændur upp­skera sé ásætt­an­legt fyrir búfénað.

Ríkið styrkir bændur um 700 milljónir

Í umsögn Bænda­sam­taka Íslands við fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2022 kom fram að hækki áburð­ar­verð um 50 pró­sent mynd það þýða kostn­að­ar­auka fyrir bændur upp á 1,3 millj­arða króna miðað við að keypt magn á þessu ári yrði hið sama og var á síð­asta ári. Hækkunin virð­ist hins vegar vera enn meiri, eða allt að 100 pró­sent. Þannig nemur hækkun á áburð­ar­verð­skrá SS 98 pró­sentum milli ára. Meiri­hluti fjár­laga­nefndar Alþingis lagði til í des­em­ber að bændur yrðu styrktir um 700 millj­ónir króna vegna hækk­un­ar­innar. Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans kom fram að ef hækkun á áburð­ar­verði myndi fylgja áburð­ar­vísi­tölu Alþjóða­bank­ans, sem hefur hækkað um 93 pró­sent milli ára, myndi það þýði 2,5 millj­arða kostn­að­ar­auka fyrir bændur. Tillagan um 700 millj­óna króna stuðn­ing var sam­þykkt á fjár­lögum.

„Þegar ég fór að setja þetta upp í Excel varð allt hins vegar skugga­lega raun­veru­legt“

Gróa Jóhanns­dóttir býr á Hlíð­ar­enda í Breiðdal ásamt Arnaldi Sig­urðs­syni manni sínum en þar reka þau sauð­fjárbú með um 300 vetr­ar­fóðruðum kindum. Bæði vinna þau vinnu utan bús­ins eins og lík­lega flestir sauð­fjár­bændur á Íslandi. Um síð­ustu helgi hugð­ist Gróa panta áburð fyrir kom­andi vor, með­vituð um þær hækk­anir sem orðið hefðu. „Þegar ég fór að setja þetta upp í Excel varð allt hins vegar skugga­lega raun­veru­legt.“ Gróa segir að á síð­asta ári hafi 31,5 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem búið fékk frá slát­ur­húsi fyrir inn­legg sitt farið til áburð­ar­kaupa. Kaupi hún sama magn áburðar í ár færi 62,5 pró­sent afurða­verðs síð­asta hausts til að greiða áburð­inn. Vissu­lega geti orðið hækk­anir á afurða­verði næsta haust en það séu þó fuglar í skógi en ekki í hendi.

Hrun á afurðaverði fyrir fimm árum

Árið 2016 og einkum árið 2017 varð algjört hrun á afurða­verði til bænda. Frá árinu 2007 til 2013 hafði afurða­verð farið nokkuð hækk­andi ár frá ári og árið 2013 fengu bændur 594 krónur fyrir kíló af lamba­kjöti. Verðið hélst á svip­uðum slóðum næstu tvö ár og árið 2015 var kíló­verðið 604 krónur. Haustið 2016 lækk­aði afurða­verð á lamba­kjöti hins vegar um 9,1 pró­sent og árið eftir, 2017, um 30 pró­sent. Það haust fengu bændur 387 krónur fyrir kíló af lamba­kjöti, aðeins 64 pró­sent þess verðs sem feng­ist hafði tveimur árum áður.

Heldur ekki í við verð­lags­þróunTölur Hag­stof­unnar sýna að eftir verð­fallið sem varð á árunum 2016 og 2017 hefur þróun á kíló­verði fyrir kinda­kjöt verið langr frá því að halda í við almenna verð­lags­þróun.

Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið um afkomu sauð­fjár­bænda á Íslandi og skilað var í maí á síð­asta ári má gera ráð fyrir að verð­fallið hafi numið um 6 millj­örðum króna í afurða­tekjum til bænda á árunum 2017 til 2019. Árið 2019 var beinn fram­leiðslu­kostn­aður bónda á kíló af lamba­kjöti 1.133 krónur. Það ár var með­al­verð frá slát­ur­húsi til bænda 469 krónur á kíló. Í sömu skýrslu kemur fram að að með­al­tali tap­aði sauð­fjárbú á Íslandi 103 þús­und krónum árið 2018.

Verð hefur stigið síðan þá, en síð­asta haust var það þó enn langt frá því sem var þegar hæst var árið 2015. Síðasta haust var kíló­verð 532 krónur, eða 88 pró­sent af því verði árs­ins 2015. Hefði afurða­verð fylgt almennri verð­lags­þróun frá árinu 2013 hefði það átt að vera um 725 krónur síð­ast­liðið haust, um 27 pró­sent hærra en var.  

Ekkert upp úr búskapnum að hafa

Bara ynd­isarðurGróa segir að það verði ekk­ert eftir þegar búið er að greiða fyrir öll aðföng sem búskap­ur­inn krefst.

Gróa segir að jörðin Hlíð­ar­endi beri ekki að dregið verði úr áburð­ar­notkun til að vinna gegn kostn­að­ar­auk­anum. Land á Aust­fjörðum sé frekar rýrt og þar af leið­andi áburð­ar­frekt. „Það er mjög áleitin spurn­ing hvað við eigum eig­in­lega að gera.“

Spurð hvort 700 millj­óna króna stuðn­ingur stjórn­valda til bænda breyti engu þar um svarar Gróa því til að auð­vitað hjálpi stuðn­ing­ur­inn. Hins vegar sé fátt sem bendi til þess að áburð­ar­verðs­hækk­anir verði gengnar til baka á næsta ári og auk þess sé ljóst að önnur aðföng muni einnig hækka. „Í hvaða stöðu er atvinnu­grein ef hún þarf alltaf að leita til rík­is­valds­ins ef eitt­hvað bjátar á? Þarf þá ekki að breyta ein­hverju, þannig að við séum ekki alltaf í síð­asta gati á belt­inu? Síðan 2017, þegar veru­legt verð­fall varð á lamba­kjöti, höfum við í raun ekk­ert haft upp úr þessu nema ynd­isarð­inn. Þá hlýtur maður að hugsa að hvort maður næði ekki sama ynd­isarði þó maður hætti sauð­fjár­bú­skap sem atvinnu og fækk­aði bara fé niður í nokkra tugi. Vissu­lega er maður að reyna að nýta fjár­fest­ingar en til hvers er að nýta þær ef maður hefur ekk­ert upp úr því.“

„Það verður ekk­ert eftir“

Áburð­ar­kaup eru fjarri því að vera eini kostn­að­ar­lið­ur­inn við rekstur sauð­fjár­búa. Það þarf olíu á vélar, heyrúlluplast, kjarn­fóður, raf­magn, við­hald og end­ur­bætur á húsum auk ótal margra ann­arra þátta sem skapa kostnað. Ljóst er að flestir þessa kostn­að­ar­liða hafa hækkað eða munu hækka á næst­unni, þannig er verð á kjarn­fóðri til að mynda tengt við áburð­ar­verð. Spurð hvað verði þá eftir af því sem slát­ur­húsin greiða fyrir kjötið þegar allir kostn­að­ar­liðir hafi  greiddir er Gróa snögg til svars:

„Það verður ekk­ert eftir. Fyrir utan greiðslur fyrir kjöt kemur til rík­is­stuðn­ingur en það er í sjálfu sér sama, það er ekk­ert eftir. Sauð­fjár­bændur hafa í raun engar tekjur, það er ekki hægt að reikna tekjur af rekstr­inum. Tekjur sem fólk er að fá af vinnu utan bús­ins fara síðan inn í búrekst­ur­inn. Það er aðvitað alveg klikkað, það er í raun bilun í manni að vera að standa í þessu.“

Afskaplega dýrt áhugamál

Sauð­fjár­bú­skapur er, miðað við lýs­ingar Gróu, því far­inn að líkj­ast og afskap­lega dýru áhuga­máli. „Auðvitað er það það,“ segir Gróa og bætir við: „Það var vissu­lega afar klaufa­legt hjá Krist­jáni Þór Júl­í­us­son fyrr­ver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra þegar hann sagði að sauð­fjár­bú­skapur væri lífstíll. En er það ekki þannig að fólk velur sér oft á tíðum störf vegna lífs­stíls. Er ekki lífstíll hjá þér að vera blaða­maður, starf sem þú velur að vera í vegna þess að þú hefur ástríðu fyrir því? Það er rétt eins og saufjár­bú­skap­ur­inn, fólk hefur ástríðu fyrir því. Það þyrfti hins vegar að vera hægt að lifa af því.“

„Ég held bara að þetta sé að verða von­laust“

Spurð hvort hún sjái ein­hverjar leiðir út úr þeim ógöngum sem búgreinin er komin í verður fátt um svör hjá Gróu. Hún nefnir þó að hún telji mik­il­vægt að slát­ur­húsum verði gert kleift að vinna saman rétt eins og afurða­stöðvum í mjólkur­iðn­aði er heim­ilt, með því mætti draga úr kostn­aði við slátrun og mark­aðs­setn­ingu sem aftur ætti að skila sér til bænda. Það dugi þó tæp­ast til. Spurð hvort hún telji að mögu­lega væri rétt að beita styrkjum til að stuðla að búsetu, svo land hald­ist í byggð, en slíkir styrkir eru þekktir með ýmsu móti innan Evr­ópu­sam­bands­ins til að mynda, svarar Gróa því til það væri hugs­an­legur mögu­leiki. „Það er ein leiðin en ég held að það þurfi alltaf ein­hvern vegin að styrkja þennan búskap líka. Það skiptir máli að fram­leiða mat­væli hér á landi og það þarf líka mann­líf til sveita. Sauð­fjár­bú­skapur er líka sam­fé­lags­leg ábyrgð, um leið og einn dettur út eykst vinnu­á­lag á öðrum bændum í sveit­inni.“

Gróa segir að hún sé alvar­lega farin að velta fyrir sér að hætta búskap. „Maður hugsar í alvöru, þetta gengur ekki lengur Gróa. Svo kemur maður í fjár­húsin og horfir á féð og hugsar með sér: Nei, ég get ekki hætt, þetta er bara ég. Ég vil vera sauð­fjár­bóndi, hjartað er þar. Mig langar að telja mér trú um að það sé hægt að hafa lífs­við­ur­væri af því en ég held bara að þetta sé að verða von­laust. Mig langar ekki til að vera svart­sýn en því miður sé ég bara ekki hvernig á að láta þetta dæmi ganga upp og sú spurn­ing leitar á mig hvort þetta verði í síð­asta skipti eða næst síð­asta skipti sem ég sest niður til að panta áburð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn Ingimarsson skrifaði
    Er þá ekki bara að snúa sér að einhverju öðru?
    0
  • Guðjón Sigurbjartsson skrifaði
    Svo er framleiðsla lambakjöts líklega óumhverfisvænasta kjötframleiðsla í veröldinni þegar þess er gætt að bústofninn nagar allann nýgræðing og fær að ganga laus við þá iðju.
    0
  • ÁJ
    Ágúst Jónatansson skrifaði
    Fyrrverandi landbúnaðarráðherra sagði nú Sauðfjárrækt lífstíl frekar en atvinnugrein ?
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Enn og aftur, Sauðfjárbændur eru of margir, allt of margir. Það er offramleiðslu á kjöti. þið bændur sem búið á háhitasvæðum, breytið fjárhúsunum og hlöðu í gróðurhús. Ræktið korn og kál á túnum, grænmeti og ávexti í húsum.
    0
  • Jóhann Arnaldsson skrifaði
    Flott grein
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár