638. spurningaþraut: Hér er spurt um fíl, taflmann, Cohen og fleira

638. spurningaþraut: Hér er spurt um fíl, taflmann, Cohen og fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða ár verður næst kosið til for­seta Íslands?

2.  Hvaða starfi gegndi Sveinn Björns­son áður en hann varð rík­is­stjóri og síðar fyrsti for­seti Íslands?

3.  Hvaða ár var Empire State Building í New York tekin í notkun? Hér má skeika tveim árum til eða frá.

4.  Hversu lengi gengur Afr­íku­fíll­inn með unga sína? Hér má muna einum mán­uði til eða frá.

5.  Hvaða tafl­maður getur aðeins gengið í eina átt — nema þegar hann drepur tafl­mann and­stæð­ings­ins?

6.  FIFA eru alþjóða­sam­tök sem snú­ast um ... hvað?

7.  „Cohen“ er mjög algengt og gam­alt eft­ir­nafn Gyðinga. Hvað skyldi það þýða?

8.  Frægt dóms­mál í Banda­ríkj­unum er kallað Roe vs. Wade. Um hvað snýst það?

9.  Lilja Pálma­dóttir er kunn lista-, athafna- og hesta­kona. En hún er, ásamt vin­konu sinni Stein­unni Jóns­dóttur, líka kunn fyrir ákveðna bygg­inga­fram­kvæmd. Hvað liggur eftir þær á því sviði?

10.  Karl­maður nokkur skrif­aði í upp­hafi 20. aldar bréf til tveggja kvenna sem hann var skot­inn í, fyrst Felice Bauer og síðan Milenu Jesenská. Bréfin hafa verið gefin út. Hvað hét hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða staf­róf má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  2024.

2.  Hann var sendi­herra í Kaup­manna­höfn.

3.  1931, svo rétt telst vera allt frá 1929 til 1933.

4.  Í 22 mán­uði svo rétt telst vera allt frá 21 mán­uði til 23.

5.  Peðin.

6.  Fótbolta.

7.  Prestur.

8.  Þung­un­ar­rof.

9.  Sundlaug.

10.  Kafka.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Beethoven.

Á neðri mynd­inni er hebr­eska staf­rófið. Ég gef líka rétt fyrir ísra­elska staf­rófið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár