639. spurningaþraut: Hvar eru Donald og Melania stödd?

639. spurningaþraut: Hvar eru Donald og Melania stödd?

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan prýddi aug­lýs­ingaplakat fyrir hvaða bíó­mynd?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Vinir tveir hétu Alexandrescu og Iordanescu. Frá hvaða landi er langsenni­leg­ast að þeir séu ætt­aðir?

2.  Hvaða fljót rennur milli amer­ísku ríkj­anna New Jersey og New York?

3.  Hvenær hófust bygg­inga­fram­kvæmdir í Breið­holts­hverfi I í Reykja­vík? Hér má muna fjórum árum til eða frá.

4.  Í hvaða sjón­varps­s­er­íum eig­ast þær við, ætt­irnar Stark og Tar­g­ar­yan?

5.  Hvaða dýra­teg­undum til­heyra allra smæstu hrygg­dýrin?

6.  Í hvaða hafi segir veð­ur­fyr­ir­brigðið El Nino reglu­lega til sín?

7.  Hin svo­nefndu „Fljúg­andi virki“ komu mjög við sögu síð­ari heims­styrj­aldar. Hvaða ríki hélt úti þessum fljúg­andi virkjum?

8.  Hvar nam land­náms­mað­ur­inn Skalla­grímur land?

9.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Tuvalu?

10.  Pierre Gassendi hét franskur heim­spek­ingur og vís­inda­maður sem uppi var á fyrri hluta sautj­ándu aldar. Hann fékkst við ýmis­legt og varð fyrstur til að reyna að mæla ákveðið fyr­ir­brigði. Til mæl­ing­anna þurfti hann að fá lán­aðar all­nokkrar fall­byssur hjá franska kóng­inum. Hvað var Gassendi að mæla, eða reyna að mæla?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvar eru Donald og Melania Trump stödd á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Rúmeníu.

2.  Hudson.

3.  1967, svo rétt er 1963-1071. Sjá hér, bls. 39.

4.  Krúnu­leik­unum, Game of Thrones.

5.  Froskum.

6.  Kyrra­haf­inu.

7.  Banda­ríkin.

8.  Í Borg­ar­firði.

9.  Eyjaálfu.

10.  Hraða hljóðs­ins.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Bíó­myndin er Gone With the Wind, eða Á hverf­anda hveli.

Þau Trump-hjónin eru stödd við Taj Mahal graf­hýsið á Indlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár