634. spurningaþraut: Hvað gerir Valdimar þegar hann nennir ekki að horfa á klukkuna?

634. spurningaþraut: Hvað gerir Valdimar þegar hann nennir ekki að horfa á klukkuna?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Sælir eru hóg­værir, því þeir munu erfa landið.“ Hver mælti svo?

2.  En hvernig er fram­haldið á orðum sem við­komndi sagði líka: „Sælir eru sorg­bitnir því þeir munu ...“

3.  Þegar söngv­ar­inn Valdimar er orð­inn leiður á að horfa á klukk­una, þótt vís­arnir fær­ist varla úr stað, og líka að horfa á mal­bik sem storknar seint, og að mála strik og passa að það sé beint, og þegar hann vill forð­ast allt púl og vill gera sem minnst og reynir að halda þetta út ... hvað gerir Valdimar þá?

4.  Hver tók við sem þjóð­höfð­ingi Bret­lands 10. júní 1837?

5.  Rúmri hálfri öld síðar var alræmdur morð­ingi hins vegar á ferð í höf­uð­borg Breta­veldis. Enginn veit hver hann var en hvaða nafn fékk hann í fjöl­miðlum?

6.  Hvaða hverfi er á milli Haganna og Hring­brautar í Reykja­vík?

7.  Hvaða fræga kanadíska popp­stjarna kom til Íslands árið 2016 og hélt tvenna tón­leika við heil­mikla gleði gesta?

8.  Hvaða lið varð Evr­ópu­meist­ari í fót­bolta karla 2016 þrátt fyrir að lang­sterkasti maður liðs­ins þyrfti að fara meiddur af velli mjög snemma leiks?

9.  Út af hvaða nesi má finna Eldey?

10.  Banda­ríkja­for­setar eru 45 tals­ins. Í fimm til­fellum hafa tveir for­setar borið saman eft­ir­nafn. Þau til­felli eru talin upp hér að aftan, ásamt einu nafni sem EKKI hefur verið borið af tveim for­setum. Hvaða nafn á sem sagt ekki heima innan um hin fimm að þessu leyti? — Bush, Adams, Harrison, Johnson, Roosevelt, Taylor.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan er lógóið hjá splunku­nýju banda­rísku fyr­ir­tæki sem heldur utan um nokkur önnur aðeins eldri fyr­ir­tæki. Hvað er stærsta og áhrifa­mesta fyr­ir­tækið undir hand­ar­jaðri þessa nýja fyr­ir­tækis?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Jesú frá Nasaret.

2.  „ ... hugg­aðir verða.“

3.  Hann stimplar sig út. 

4.  Viktoría drottn­ing.

5.  Jack the Ripper.

6.  Melarnir.

7.  Justin Bieber.

8.  Portúgal.

9.  Reykja­nesi.

10.  Taylor. En það mun­aði litlu því einn hét Taylor en annar Tyler.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Karlinn á efri mynd­inni er Diego sál­ugi Maradona.

Lógóið á neðri mynd­inni er lógó Meta sem heldur meðal ann­ars utan um Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár