633. spurningaþraut: Hér er meðal annars sögð saga kvennamála karls nokkurs

633. spurningaþraut: Hér er meðal annars sögð saga kvennamála karls nokkurs

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver skrif­aði bók­ina Skálda­tíma, sem fól meðal ann­ars í sér upp­gjör við stuðn­ing höf­undar við komm­ún­ismann?

2.  Árið 1920 hóf starf­semi sína í traust­byggðu húsi við Skóla­vörðu­stíg í Reykja­vík stofnun sem þótti mik­il­vægt merki þess að Ísland væri nú orðið full­valda ríki. Hvaða stofnun var það?

3.  Hvað nefn­ist það svæði í Reykja­vík þar sem Norræna húsið stendur?

4.  Skíris­skógur eða Sherwood Forrest heitir skógur einn í miðju Englandi. Hvaða borg stendur þar nærri?

5.  Árið 1954 and­að­ist rúm­lega átt­ræð kona í París. Henni var neitað um greftrun í vígðri mold af kirkj­unni af því hún hafði skilið tví­vegis en franska ríkið greip þá inn í og sá henni fyrir veg­legri útför á vegum rík­is­ins. Hún var fyrst kvenna í Frakk­landi sem fékk þann heiður. Hún hét Sidonie-Gabrielle Colette og hvað fékkst hún við í líf­inu?

6.  Í hvaða landi eru Salvador, Fortaleza, Belo Horizonte og Manaus í 4.-7. sæti yfir fjöl­menn­ustu borg­irnar?

7.  Bít­ill­inn John Lennon var tví­kæntur. Hvað hét síð­ari eig­in­kona hans?

8.  En sú fyrri?

9.  „Snert hörpu mína, him­in­borna dís, / svo hlusti englar guðs í Paradís.“ Hver orti kvæðið sem hefst svo?

10.  Karl einn fædd­ist 1952. Hann gekk í hjóna­band um þrí­tugt og eign­að­ist tvær dætur með konu sinni. Með tím­anum fór að slitna upp úr hjóna­band­inu og 2003 er sagt að hann hafi eign­ast þriðju dótt­ur­ina utan hjóna­bands. Það hefur þó ekki verið stað­fest. Nokkru seinna skildi hann form­lega og þá skýrði blað nokk­urt frá því að hann væri trú­lof­aður fim­leika­stjörnu sem er 30 árum yngri en hann, og hefði eign­ast með henni nokkur börn. Því neit­aði hann. Blaðinu var lokað skömmu síðar. Ljóst er þó að á und­an­förnum árum hefur hann vissu­lega verið í sam­bandi við fyrr­nefnda fim­leika­konu sem hefur nú borið honum að minnsta kosti þrjú börn. Hver er karl­inn?

 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða ríki til­heyrir svæðið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Halldór Laxness.

2.  Hæsti­réttur.

3.  Vatns­mýri.

4.  Nott­ing­ham. Til að allrar nákvæmni sé gætt, þá hlýt ég raunar að gefa rétt fyrir Sheffi­eld líka.

5.  Hún var rit­höf­undur.

6.  Brasilíu.

7.  Yoko Ono.

8.  Cynthia.

9.  Davíð Stef­áns­son.

10.  Vladimir Pútin.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá kryddið túr­merik í ýmsu formi.

Á neðri mynd­inni er Marm­ara­hafið sem til­heyrir Tyrk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár