627. spurningaþraut: Hver hoppaði upp og niður í sófanum hjá Ophru Winfrey?

627. spurningaþraut: Hver hoppaði upp og niður í sófanum hjá Ophru Winfrey?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá aðal­leikkon­una í vin­sælli Netflix-mynd sem heitir Don't Look Up. Hvað heitir leik­konan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  En hvað er það sem fólk á að forð­ast að sjá með því að líta EKKI upp í þess­ari mynd?

2.  Hvaða þrír þétt­býl­is­staðir urðu partar af sveit­ar­fé­lag­inu Árborg árið 1998?

3.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Trípólí?

4.  Hvað hét franski Nóbels­höf­und­ur­inn sem samdi skáld­sög­urnar Útlend­ing­inn, Fallið og Pláguna?

5.  Árið 2005 mætti alþjóð­leg film­stjarna af karl­kyni í við­tals­þátt til Ophru Winfrey og þegar hann fór að lýsa ást sinni á heit­konu sinni varð hann svo heit­fangur að hann stökk upp í sófa og hopp­aði upp og niður góða stund, Winfrey til mik­illar furðu. Hvaða leik­ari var svona ást­fang­inn?

6.  Í raun var leik­ar­inn kom­inn í við­tals­þátt­inn til að aug­lýsa nýja mynd sem hann hafði leikið í, War of the Worlds eða Innrásin frá Mars hét hún. Hver skrif­aði skáld­sög­una sem sú kvik­mynd (og margar fleiri) voru gerðar eftir?

7.  Fræg útvarps­leik­gerð var líka gerð eftir þeirri sömu sögu. Hún þótti svo sann­fær­andi að fjöldi áheyranda trúði því að geim­verur væru í raun­inni að gera inn­rás á Jörðina. Hver samdi þessa leik­gerð og leik­stýrði?

8.  Hver er vin­sæl­asti sam­skipta- og sam­fé­lags­mið­ill­inn nú um stundir?

9.  Lista­mað­ur­inn Nína Tryggva­dóttir gerði eina kunn­ustu alt­ar­i­stöflu lands­ins enda prýðir hún eina af helstu kirkjum lands­ins, þar sem auk guðs­þjón­usta eru gjarnan haldnir tón­leikar og jafn­vel aðrir við­burðir. Hvaða kirkja er það sem Krists­mynd Nínu prýðir?

10.  Í hvaða skáld­verki þurfa Kamilla og Tommi að tipla var­lega kringum geð­vonda frænku hinnar fyrr­nefndu? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Vöru­merki hvaða fyr­ir­tækis má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hala­stjörnu sem er í þann veg­inn að rekast á Jörðina.

2.  Selfoss, Eyr­ar­bakki og Stokks­eyri.

3.  Líbýu.

4.  Camus.

5.  Tom Cruise.

6.  H.G.Wells.

7.  Orson Welles.

8.  Facebook.

9.  Kirkjan er í Skál­holti.

Alt­ar­istafla Nínu í Skál­holts­kirkju

10.  Kar­dimommu­bær­inn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Leik­konan heitir Jennifer Lawrence.

Vöru­merkið er eign íþrótta­vöru­fyr­ir­tæk­is­ins Adidas.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár