628. spurningaþraut: Lotukerfið, brandí, Sveinn Björnsson, margt fleira

628. spurningaþraut: Lotukerfið, brandí, Sveinn Björnsson, margt fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er hið svo­nefnda Sto­nehenge?

2.  Um hvern skrif­aði Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri ævi­sögu í þrem bindum?

3.  Ef við nefndum flór, strá og mola — hvaða orði væri þá hæg­lega unnt að skjóta aftan við þau öll?

4.  Hvað heitir stærsta borgin í Kasakstan, þar sem átök hafa staðið að und­an­förnu?

5.  Hversu mörg eru frum­efni lotu­kerf­is­ins: 13, 86, 118 eða 213?

6.  Hvað fékkst Virginia Woolf við í líf­inu?

7.  Hver er syðstur hinna eig­in­legu Vest­fjarða er snúa út að Græn­lands­sundi?

8.  Af hverju reidd­ust stjórn­mála­leið­togar lands­ins við Svein Björns­son rík­is­stjóra (og verð­andi for­seta) 1942?

9.  Brandí er sér­stök teg­und af sterkum vínum. Í hvaða hér­aði í hvaða landi er þekktasta brandíið fram­leitt?

10.  Eitt af vin­sælli lögum árs­ins á Íslandi árið 2021 heitir Rólegur kúreki. Hver syngur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fána má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Englandi, Bret­landi.

2.  Stein­grím Her­manns­son.

3.  Sykur.

4.  Almatí.

5.  118.

6.  Ritstörf.

7.  Pat­reks­fjörður.

8.  Hann skip­aði utan­þings­stjórn.

9.  Héraðinu Cognac í Frakk­landi.

10.  Bríet.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Ingi­björg H. Bjarna­son, fyrsta konan á Alþingi Íslend­inga.

Á neðri mynd­inni er fáni Nepals.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár