618. spurningaþraut: Hversu breitt er Ísland?

618. spurningaþraut: Hversu breitt er Ísland?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða ríki á þann fána, sem sést hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða evr­ópski mál­ari end­aði ævina á Atuona í Markesa-eyja­kla­s­anum í Kyrra­hafi?

2.  Árið 1414 varð uppi­stand við hirð keis­ar­ans í Kína þegar þangað var flutt í fyrsta sinn dýr nokk­urt sem kon­ungur í Bengal á Indlandi sendi keis­ar­anum sem virð­ing­ar­vott. Kín­verjar höfðu aldrei fyrr séð annað eins furðu­dýr. En þótt dýrið bær­ist til Kína frá Indlandi, þá hafði það ber­sýni­lega verið flutt til Indlands frá Afríku, því þetta maka­lausa dýr hefur aldrei búið af sjálfs­dáðum ann­ars staðar en í Afríku. Hvaða dýr skyldi þetta vera?

3.  Hvað heitir Andrés Önd á sænsku?

4.  Í hvaða frægu hljóm­sveit á ofan­verðri 20. öld voru — þegar mest var — þrír með­limir sem hétu Taylor og voru þó ekki skyldir?

5.  Herbert von Karajan hét virtur en þó svo­lítið umdeildur lista­maður sem lést árið 1989. Hver var hans list­grein?

6.  Hver er sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra í núver­andi rík­is­stjórn?

7.  En hvað heitir for­seti Alþingis?

8.  Hvað hét Íslend­ing­ur­inn sem fyrstur var skip­aður jarl yfir Íslandi í kjöl­far þess að Nor­egs­kon­ungur náði hér völdum?

9.  Hversu breitt er Ísland? Miðað er við beina línu frá vest­asta odda lands­ins á Vest­fjörðum og út á austasta odda Aust­fjarða. Hér má muna 30 kíló­metrum til að frá.

10.  Hvaða popp­stjarna stóð manna mest fyrir Live Aid-tón­leik­unum árið 1984?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Það er oft við­kvæmt mál fyrir leik­ara að túlka þroska­heftar per­sónur. Leik­ar­anum hér að ofan þótti takast það frá­bær­lega vel. Hver er leik­ar­inn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Gauguin.

2.  Gíraffi.

3.  Kalle Anke.

4.  Duran Duran.

5.  Hljóm­sveit­ar­stjóri.

6.  Svandís Svav­ars­dóttir.

7.  Birgir Ármanns­son.

8.  Gissur Þor­valds­son.

9.  Bein lína frá Látra­bjargi að Gerpi mælist 515 kíló­metrar. Rétt skal því vera 485 til 545.

10.  Bob Geldof.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fáni Sádi-Arabíu.

Á neðri mynd­inni er Leonardo DiCaprio í hlut­verki sínu í mynd­inni What's Eating Gilbert Grape?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár