617. spurningaþraut: Marvin Lee Aday og Mark Drakeford, þið þekkið þá, ikke?

617. spurningaþraut: Marvin Lee Aday og Mark Drakeford, þið þekkið þá, ikke?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er myndin hér að ofan (hún er reyndar sam­sett)?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Marvin Lee Aday heitir söngv­ari einn en er reyndar fyrst og fremst þekktur undir lista­manns­nafni sínu, en það þykir reyndar ekki sér­lega list­rænt. Aday teng­ist leð­ur­blökum, sem voru svo ill­skeyttar að þær þóttu komnar beina leið frá kölska sjálfum, en að para­dís leit­aði hann hins vegar við föla skímu mæla­borðs­ins. Hvað er lista­manns­nafn hans?

2.  Gryf­findor. Hufflepuff. Ravenclaw. Slytherin. Hvað er þetta?

3.  Mark Dra­keford heitir for­sæt­is­ráð­herra í Evr­ópu­landi einu. Hann tók við emb­ætti sínu af Carwyn Jones fyrir þremur árum síðan. Senni­lega er Dra­keford ekki ýkja þekktur á alþjóð­legum vett­vangi, enda er landið sem hann stýrir ekki að fullu sjálf­stætt — þótt það njóti ákveð­innar sjálf­stjórnar innan stærra ríkis. Hvar er Dra­keford for­sæt­is­ráð­herra?

4.  Hvaða fyr­ir­bæri er NASA? — og það er ekki átt við tón­leika­stað við Aust­ur­völl!

5.  Í sept­em­ber árið 2020 varð Mohamed Hussein Roble verk­fræð­ingur for­sæt­is­ráð­herra í ríki einu í Afríku. Hann gegnir starf­inu enn, þótt hann eigi í vax­andi deilum við for­seta lands­ins. Það merki­lega var að hann er sænskur rík­is­borg­ari en hann yfir­gaf land sitt árið 1992 þegar ógur­legar róstur hófust í land­inu og stóðu í rúman ára­tug. Hussein Roble varð rík­is­borg­ari í Svíþjóð 1997 og er það enn. Þegar frið­sam­legra varð í heima­landi hans sneri hann þó þangað aftur. Landið er ... ?

6.  Hver leikur leik­skóla­stjór­ann í Ver­búð­inni?

7.  Hvað nefnd­ist keis­ara­ynja sú sem stýrði Rúss­landi 1762 til dauða­dags 1796?

8.  Kona ein er nú tæp­lega sex­tug en var á sínum tíma róm­að­asta hlaupa­kona Íslands í hinum lengri vega­lengdum og keppti í Mara­þon­hlaupi á ólymp­íu­leik­unum árið 2000. Upp á síðkastið hefur hún látið nokkuð að sér kveða í and­ófi gegn Covid-bólu­setn­ingum barna. Hvað heitir hún?

9.  Þegar karl­menn eru heiðraðir á Bret­landi eru þeir útnefndir „sir“. Konur sem fá sams­konar við­ur­kenn­ingu eru nefndar “dame“ eða „dömur“. Hvaða breski rit­höf­undur var útnefnd dama árið 1971 eftir langan og giftu­ríkan feril við skriftir?

10.  Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir sett­ist á þing sem vara­maður rétt fyrir ára­mót. Hún er 19 ára og yngst allra sem hafa sest á Alþingi. Fyrir hvaða flokk er hún á þingi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn til vinstri á mynd­inni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Meat Loaf.

2.  Heima­vistir við skóla Harry Potters.

3.  Í Veils.

4.  Geim­ferða­stofnun Banda­ríkj­anna.

5.  Sómalía.

6.  Unnur Ösp.

7.  Katrín.

8.  Martha Ernsts­dóttir.

9.  Agatha Christie.

10.  Pírata.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin á að minna á kvik­mynd­ina Guð­föð­ur­inn 3. Talan 3 verður að vera rétt!

Á neðri mynd­inni heilsar Dönitz flota­for­ingi upp á Hitler rétt fyrir stríðs­lok 1945.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár