616. spurningaþraut: Hvar spiluðu Bítlarnir, hvar spila menn fótbolta, ekki gleyma heldur nótum á píanói

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét klúbbur sá í Liverpool-borg þar sem Bítl­arnir spil­uðu gjarnan á sínum fyrstu árum?

2.  En í hvaða borg utan Bret­lands léku þeir líka gjarnan og sungu þau árin?

3.  Napster hét tækni­fyr­ir­tæki eitt sem var mjög í sviðs­ljós­inu á fyrsta ára­tug ald­ar­innar og var á sinn hátt braut­ryðj­andi. Um hvað sner­ist starf­semi Napster?

4.  Christy nokkur Tur­lington heldur í dag upp á 53 ára afmælið. Hún er fædd í Banda­ríkj­unum og var á sínum tíma í fremstu röð í heim­inum sem ... hvað?

5.  Sonia Zorilla var auðug kona sem lést árið 2002. Á hverju auðg­að­ist hún helst?

6.  Hversu margar eru nót­urnar á venju­legu píanó­borði, bæði þær svörtu og hvítu? Hér má skeika átta nótum til eða frá.

7.  Hvað er óvenju­legt við kett­ina á eyj­unni Mön?

8.  Í hvaða hafi er ann­ars þessi eyja með hina óvenju­legu ketti?

9.  Heims­meist­ara­mót karla í fót­bolta verður haldið á árinu sem nú er nýhafið. Hvar?

10.  En hvar var síð­asta mót haldið?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heita dýrin á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Cavern.

2.  Hamborg.

3.  Tónlist.

4.  Fyr­ir­sæta.

5.  Fjár­fest­ingum, hluta­bréfa­við­skiptum.

6.  Nóturnar eru 88 svo rétt er allt frá 80 til 96.

7.  Þeir eru rófu­lausir.

8.  Írlands­hafi.

9.  Katar.

10.  Rúss­landi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Beyonce.

Á neðri mynd­inni eru náhvalir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár