614. spurningaþraut: Síðasti dagur ársins! Spyrjum svolítið um hann!

614. spurningaþraut: Síðasti dagur ársins! Spyrjum svolítið um hann!

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan er eitt af afmæl­is­börnum dags­ins. Hver er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað þýðir orðið des­em­ber?

2.  Þann 31. des­em­ber árið 192 var róm­verskur keis­ari myrtur af óvinum sínum. Hann var sonur eina heim­spek­ings­ins á keis­ara­stóli, Marcusar Aureli­usar, en hafði sjálfur mestan áhuga á bar­dögum og glímum hvers konar, og naut þess að koma fram sem skylm­inga­þræll eða gladi­ator. Hann kemur mjög við sögu í hinni frægu Hollywood-mynd The Gladi­ator. En hvað hét hann?

3.  Þann 31. des­em­ber 1964 lést í Reykja­vík 72ja ára gam­all maður, fæddur í Borg­ar­nesi og einn sig­ur­sæl­asti stjórn­málafor­ingi lands­ins. Hann varð til dæmis for­sæt­is­ráð­herra fimm sinnum, oftar en nokkur annar. Hvað hét hann?

4.  Þann 31. des­em­ber 1965 hóf her­for­ingi einn upp­reisn í heima­landi sínu og gekk hún að óskum svo dag­inn eftir var hann orð­inn for­seti lands­ins. Árið 1976, þegar hann hafði verið við völd í ára­tug, steig hann hið mjög svo óvænta skref að útnefna sjálfan sig keis­ara. Ekki þótti honum farn­ast vel sem keis­ari og var hrak­inn frá emb­ætti þremur árum síðar. Seinna var hann dæmdur til dauða fyrir ýmsa glæpi í heima­landi sínu en var sýkn­aður af ákæru um mannát. Dauða­dómnum var ekki full­nægt og hann dó að lokum frjáls maður 1996. Hvað hét hann

5.  Þann 31. des­em­ber 1937 fædd­ist piltur einn í Veils. Hann gerð­ist leik­ari og er almennt við­ur­kenndur sem einn af þeim betri í heimi. Hann hefur tví­vegis unnið Ósk­arsverð­laun fyrir besta karl­hlut­verkið, fyrst árið 1992 þegar hann lék frægan sæl­kera og svo nú á árinu sem er að líða, en þá lék hann Alzheimer-sjúk­ling í mynd­inni The Father. Hvað heitir hann?

6.  Karl einn fædd­ist í Skotlandi 31. des­em­ber 1941. Árið 1986 var hann ráð­inn til til­tek­inna starfa og þótt gengi hans væri upp og ofan fyrstu árin náði hann ákveðnum eft­ir­sóttum áfanga vorið 1993. Næstu 20 árin voru nær sam­felld sig­ur­ganga hjá honum í starfi og sumum fannst það alveg ótíma­bært þegar hann lét af störfum árið 2013. Svo mikið er víst að fyr­ir­tæki það sem hann stýrði hefur hvergi nærri náð við­líka árangri eftir að hann hætti. Hvað heitir mað­ur­inn?

7.  Leikari einn enskur fædd­ist 31. des­em­ber 1943. Faðir hans var af ind­verskum ættum en fæddur í Afr­íku­rík­inu Keníu, og son­ur­inn náði mestri frægð og frama í hlut­verki Indverja sem reyndar bjó líka um tíma í Afríku en varð svo einn fræg­asti maður heima­lands­ins. Hvað heitir þess­ari leik­ari?

8.  Rit­höf­undur einn fædd­ist 31. des­em­ber árið 1957. Hann sat reyndar á þingi þangað til í haust. Hvað heitir hann?

9.  Þann 31. des­em­ber 1970 birt­ist í Morg­un­blað­inu grein sem varð víð­fræg og var á sinn hátt heil­mik­ill áfangi í umhverf­is­bar­áttu á Íslandi. Miklar deilur spruttu af grein­inni, sem bar fyr­ir­sögn­ina „Hern­að­ur­inn gegn land­inu“, en höf­undur hennar átti því reyndar að venj­ast að skrif hans kveiktu sterk við­brögð. Hver var hann?

10.  Þann 31. des­em­ber 2008 kom til mót­mæla í Reykja­vík og not­aði lög­regla piparúða óspart til dreifa mót­mæl­endum. Þeir höfðu notað upp­töku á sjón­varps­þætti nokkrum til að vekja athygli á mál­stað sínum. Hvaða sjón­varps­þáttur var það? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

31. des­em­ber 1999 lét karl­inn hér að neðan af emb­ætti sem hann hafði gegnt í tæpan ára­tug. Hvað hét hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tíundi mán­uð­ur­inn — sem des­em­ber var á tímum Rómverja.

2.  Commodus.

3.  Ólafur Thors.

4.  Bokassa.

5.  Anthony Hopkins.

6.  Alex Ferguson.

7.  Ben Kingsley.

8.  Guð­mundur Andri Thorsson.

9.  Halldór Laxness.

10.  Krydd­síldin.  

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir.

Á neðri mynd­inni er Borís Jeltsín fyrrum for­seti Rúss­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár