615. spurningaþraut: Svarað fyrir nýtt ár

615. spurningaþraut: Svarað fyrir nýtt ár

Fyrri auka­spurn­ing: Hver er sá hinn byssuglaði?

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða stjörnu­merki dýra­hrings­ins ræður ríkjum þann 1. jan­úar ár hvert?

2.  Þann 1. jan­úar árið 159 fyrir Krist var ákveðið að fram­vegis skyldi nýárs­dagur vera sá dagur þegar tveir helstu emb­ætt­is­menn­irnir í til­teknu ríki tækju við störfum á hverju ári. Hvaða ríki skyldi það hafa verið?

3.  Þann 1. jan­úar árið 1500 var portú­galski sæfar­inn Pedro Cabral úti að sigla á skipi sínu. Þá sigldu hann og félagar hans fram á strönd á land­svæði einu sem Evr­ópu­menn höfðu ekki áður vitað að væri til. Hvaða land er nú á þessu svæði sem þeir Cabral ráku fyrstir augun í af Evr­ópu­mönnum?

4.  Þann 1. jan­úar 1801 fann ítalskur prestur að nafni Guiseppe Piazzi hlut sem eng­inn hafði séð áður. Hlut­ur­inn var síðar nefndur Ceres, og Piazzi er nú helst minnst fyrir að hafa fundið hlut­inn. Þótt Piazzi væri prestur, þá kom Ceres krist­in­dómnum ekk­ert við — raunar þvert á móti, því Ceres fannst milli tveggja heið­inna guða. Hvar fannst Ceres?

5.  Þann 1. jan­úar 1877 var Viktoría Breta­drottn­ing í ofaná­lag við drottn­ing­ar­titil sinn útnefnd keis­ara­ynja („empress“) í landi einu víð­lendu. Hvaða land var það?

6.  Á ofan­verðri 19. öld hafði inn­flutn­ingur fólks til Banda­ríkj­anna auk­ist hratt og 1. jan­úar 1892 tóku Banda­ríkja­menn í notkun inn­flytj­enda­mið­stöð á smá­eyju einni við New York, þar sem tekið var á móti nýjum inn­flytj­endum. Þessi eyja varð síðan eins konar hlið inn­flytj­enda að Banda­ríkj­unum næstu ára­tug­ina. Hvað heitir eyjan?

7.  Þann 1. jan­úar 1912 fædd­ist einn fræg­asti njósn­ari Sov­ét­ríkj­anna, breskur maður sem var innsti koppur í búri í njósn­a­hring á Vest­ur­löndum, og flúði að lokum yfir járn­tjaldið til Sov­ét­ríkj­anna þegar upp um hann komst. Hann var gjarnan kall­aður „þriðji mað­ur­inn“. Hvað hét hann?

8.  Þann 1. jan­úar 1967 fædd­ist einn Greif­anna. Hann hefur síðan komið víða við og skemmt bæði börnum og full­orðnum, og komið við sögu Eurovision hin seinni ár. Hvað heitir hann?

9.  Þann 1. jan­úar 1994 and­að­ist á Íslandi maður nokkur, 86 ára gam­all, sem hafði gert garð­inn frægan erlendis í meira mæli en flestir Íslend­ingar aðrir um hans daga. Og hann hafði svo sann­ar­lega ekki farið í felur með þjóð­erni sitt. Eig­in­lega þvert á móti. Hver var þessi maður?

10.  Þann 1. jan­úar 1995 gengu þrjú ný lönd í Evr­ópu­sam­bandið. Nefnið að minnsta eitt þeirra. Þeir sem geta nefnt öll þrjú fá flug­elda­stig að auki!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi íslenski mynd­list­ar­maður fædd­ist 1. jan­úar 1961. Hann lést fyrir aldur fram en hvað hét hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Stein­geitin.

2.  Róma­veldi.

3.  Brasilía.

4.  Ceres er loft­steinn í loft­steina­belt­inu milli Júpíters og Mars.

5.  Indland.

6.  Ellis.

7.  Kim Philby.

8.  Felix Bergsson.

9.  Stefán Íslandi.

10.  Svíþjóð, Finnland og Aust­ur­ríki voru löndin þrjú.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er J.Edgar Hoover for­stjóri alrík­is­lög­regl­unnar FBI í Banda­ríkj­unum.

Á neðri mynd er Georg Guðni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár