606. spurningaþraut: 6. júní 1783 og 5. maí 1789, hvað gerðist þá?

606. spurningaþraut: 6. júní 1783 og 5. maí 1789, hvað gerðist þá?

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá vin­sæla íslenska hljóm­sveit eins og hún leit út fyrir tæpum tíu árum. Hvað heitir hljóm­sveitin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvar er Ingólfur Arnarson sagður hafa komið fyrst að landi þegar hann kom í land­náms­ferð sína hingað til lands?

2.  Hvar á land­inu er Lunda­reykja­dalur?

3.  Fjögur svæði eða ríki mynda hið Sam­ein­aða kon­ungs­ríki — United Kingdom — sem við köllum yfir­leitt bara Bretland. Hvert þeirra er fámenn­ast?

4.  Árið 1929 sam­ein­uð­ust Íhalds­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndi flokk­ur­inn á Íslandi og mynd­uðu ... hvaða flokk?

5.  Hver er nú vara­for­maður þess flokks?

6.  Hvaða á rennur stærst til sjávar í Reykja­vík?

7.  Hvað heitir höf­uð­borg Kína?

8.  Hvað hófst 8. júní 1783?

9.  En 5. maí 1789?

10.  Tvær vísur Hávamál hefj­ast á orð­unum: „Deyr fé, / deyja frændur, / deyr sjálfur hið sama.“ Hvernig er fram­haldið í þeirri vísu sem fræg­ari er? Og svo meg­iði sæma ykkur lár­við­ar­stigi ef þið þekkið fram­haldið í hinni vís­unni líka!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá einn af fræg­ustu munkum og síðar dýr­lingum kaþ­ólsku kirkj­unnar. Hvern þá?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Við Ing­ólfs­höfða.

2.  Í Borg­ar­firði.

3.  Norður-Írland.

4.  Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

5.  Þórdís Kolbrún.

6.  Elliða­árnar.

7.  Beijing.

8.  Skaft­ár­eldar, gosið í Laga­gígum.

9.  Franska bylt­ingin.

10.  „En orðstír / deyr aldregi, / hveim [þeim] er sér góðan getur.“ Hin vísan endar svona: „Eg einn veit / að aldrei deyr / dómur um dauðan hvern.“

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Hljóm­sveitin er Nýdönsk.

Dýr­ling­ur­inn er Frans frá Assisí. Hann pré­dik­aði yfir fuglum eins og alkunna er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár