607. spurningaþraut: Aðfangadagsspurningar snúast um atburði 24. desember

607. spurningaþraut: Aðfangadagsspurningar snúast um atburði 24. desember

Fyrri auka­spurn­ing er um eitt af afmæl­is­börnum dags­ins sem prýðir mynd­ina hér að ofan. Þetta er ekki Jesú, heldur fædd­ist hann 24. des­em­ber 1974 og heitir ...?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Þann 24. des­em­ber 1871 var ein af fræg­ustu óperum óperu­sög­unnar frum­flutt í Kæró í Egifta­landi. Hvað skyldi hún hafa heitið?

2.  Þann 24. des­em­ber 1956 komu hingað til lands um 50 flótta­menn frá ákveðnu landi, þar sem stríðs­á­stand hafði geisað tæpum tveim mán­uðum fyrr. Hvaða land var það?

3.  Á aðfanga­dags­kvöld árið 1613 fór­ust hins vegar 50 manns eða þar um bil í snjó­flóði í firði einum á Íslandi en þar var fólk á leið til kirkju út á nes eitt. Hver var fjörð­ur­inn?

4.  Á þessum degi árið 1818 var frum­flutt lag eftir þýska tón­list­ar­kennar­ann Franz Gruber í bænum Obernd­orf í Aust­ur­ríki. Hvað köllum við þetta lag?

5.  Þann 24. des­em­ber 1951 fékk land eitt sjálf­stæði en hafði lengi verið undir evr­ópskt nýlendu­veldi sett. Ídris 1. var lýstur kon­ungur hins nýja lands og ríkti hann allt til 1969 þegar her­for­ingjar undir stjórn ofursta eins steyptu kóng­inum af stóli. Ofur­st­inn var svo við völd í rúm 40 ár en var þá sjálfum steypt af stóli. Hvaða land er þetta?

6.  24. des­em­ber 1968 unnu þrír geim­farar í banda­ríska geim­far­inu Apollo 8. afrek sem aldrei hafði verið unnið áður. Þeir hétu Borman, Lovell og Anders. Hvað gerði Apollo 8. á þessum degi?

7.  Á aðfanga­dag árið 2008 and­að­ist á Bret­landi leik­rita­höf­undur sem hlotið hafði Nóbels­verð­launin í bók­menntum fáeinum árum fyrr. Hann var mest í sviðs­ljós­inu um og upp úr 1970. Mörg leik­rita hans hafa verið sýnd á Íslandi, svo sem Afmæl­is­veislan, Heim­koman o.fl. Hvað hét þessi sál­ugi leik­rita­höf­undur?

8.  Ilham Aliev heldur í dag upp á sjö­tugs­af­mælið sitt. Hann hefur frá 2003 verið for­seti í einu hinna fyrr­ver­andi Sov­étlýð­velda og þykir harð­stjóri heil­mik­ill. Nýlega stóð hann í stríði við nágranna­ríki. En í hvaða landi er hann for­seti?

9.  Á þessum degi árið 1166 fædd­ist Jón nokkur eða Jóhann sem varð kon­ungur Englands árið 1199 þegar bróðir hans Ríkarður ljóns­hjarta dó. Jón eða Jóhann er frægastur fyrir að hafa verið neyddur til þess af léns­herrum sínum að skrifa undir plaggið Magna Charta. En hvert var við­ur­nefni kon­ungs þessa? 

10.  Síðasti jóla­sveinn­inn kem­ur­gefa  til byggða í dag. Hér er röð hinn þrettán klass­ísku jóla­sveina: Stekkja­staur, Giljagaur, Stúfur, Þvöru­s­leikir, Potta­sleikir, Askasleikir, Hurða­skellir, Bjúgna­krækir, Glugga­gægir, Gátta­þefur, Ket­krókur og Kerta­sníkir. En þetta voru reyndar aðeins tólf. Hvern vantar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á aðfanga­dag árið 1979 hófst ákveðin hern­að­ar­að­gerð sem hér að neðan sést mynd frá. Myndin virð­ist til kynna að allt farið fram með friði og spekt en það var nú eitt­hvað annað. Þarna hófst atburða­rás sem umheim­ur­inn hefur enn ekki sopið seyðið af, né löndin sem aðgerðin snerti bein­línis. Hvaða tvö ríki komu við sögu aðgerð­ar­innar 24. des­em­ber 1979.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Aída.

2.  Ung­verja­land.

3.  Siglu­fjörður.

4.  Heims um ból.

5.  Líbýa.

6.  Fór á braut um tunglið.

7.  Pinter.

8.  Aserbædjan.

9.  Land­lausi.

10.  Skyrgámur — eða Skyrjarmur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Ryan Seacrest sem lengi stýrði American Idol.

Neðri myndin er frá inn­rás Sov­ét­ríkj­anna í Afganistan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár