Fyrri aukaspurning:
Á myndinni hér að ofan má sjá vinsæla íslenska hljómsveit eins og hún leit út fyrir tæpum tíu árum. Hvað heitir hljómsveitin?
***
Aðalspurningar:
1. Hvar er Ingólfur Arnarson sagður hafa komið fyrst að landi þegar hann kom í landnámsferð sína hingað til lands?
2. Hvar á landinu er Lundareykjadalur?
3. Fjögur svæði eða ríki mynda hið Sameinaða konungsríki — United Kingdom — sem við köllum yfirleitt bara Bretland. Hvert þeirra er fámennast?
4. Árið 1929 sameinuðust Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn á Íslandi og mynduðu ... hvaða flokk?
5. Hver er nú varaformaður þess flokks?
6. Hvaða á rennur stærst til sjávar í Reykjavík?
7. Hvað heitir höfuðborg Kína?
8. Hvað hófst 8. júní 1783?
9. En 5. maí 1789?
10. Tvær vísur Hávamál hefjast á orðunum: „Deyr fé, / deyja frændur, / deyr sjálfur hið sama.“ Hvernig er framhaldið í þeirri vísu sem frægari er? Og svo megiði sæma ykkur lárviðarstigi ef þið þekkið framhaldið í hinni vísunni líka!
***
Seinni aukaspurning:
Hér að neðan má sjá einn af frægustu munkum og síðar dýrlingum kaþólsku kirkjunnar. Hvern þá?

***
Svör við aðalspurningum:
1. Við Ingólfshöfða.
2. Í Borgarfirði.
3. Norður-Írland.
4. Sjálfstæðisflokkinn.
5. Þórdís Kolbrún.
6. Elliðaárnar.
7. Beijing.
8. Skaftáreldar, gosið í Lagagígum.
9. Franska byltingin.
10. „En orðstír / deyr aldregi, / hveim [þeim] er sér góðan getur.“ Hin vísan endar svona: „Eg einn veit / að aldrei deyr / dómur um dauðan hvern.“
***
Svör við aukaspurningum:
Hljómsveitin er Nýdönsk.
Dýrlingurinn er Frans frá Assisí. Hann prédikaði yfir fuglum eins og alkunna er.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir