605. spurningaþraut: Hverjir veiddu lúðu út af Vestfjörðum?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða hljóm­sveit gaf út plötu með þeirri ljós­mynd af sér sem sjá má að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða fjörður er fyrir sunnan Ísa­fjarð­ar­djúpið á Vest­fjörðum?

2.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Malí?

3.  Hvað hét fyrri eig­in­kona Napól­e­ons Frakka­keis­ara?

4.  Margar þjóðir hafa stundað fisk­veiðar við Ísland gegnum tíð­ina. Laust fyrir 1900 birt­ist skip frá ákveð­inni þjóð á Vest­fjörðum og hófust þá umfangs­miklar lúðu­veiðar sem stóðu í nokkur ár. Þessi þjóð hafði ekki sést áður á Íslands­miðum og heldur ekki síðan. Hvaða þjóð var þetta?

5.  Hvað hét trommu­leik­ari Bítlanna?

6.  Björk hóf sól­ó­feril sinn erlendis með plötu árið 1993. Hvað hét hún?

7.  En hvað hét næsta plata hennar sem kom út tveim árum síðar?

8.  Skáld­saga ein frá 1986 heitir Grá­mos­inn ... hvað?

9.  Hver skrif­aði þessa skáld­sögu?

10.  Hver er vísinda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fjall­garð má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Súg­anda­fjörður.

2.  Afríku.

3.  Jósefína.

4.  Banda­ríkja­menn.

5.  Ringo Starr.

6.  Debut.

7.  Post.

8.  Glóir.

9.  Thor Vil­hjálms­son.

10.  Áslaug Arna.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Hljóm­sveitin er Queen.

Fjall­garð­ur­inn er Pýrenea­fjöll á mótum Frakk­lands og Spánar.

***

Hér að neðan er svo hlekkur á næstu þraut á undan, og svo þá þarnæstu og þarnæstu og þarnæstu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Laumupúkinn... er það ekki fulllangt seilst að segja Súgandafjörð vera fyrir sunnan Ísafjarðardjúp? Hann er reyndar rétt sunnan við mynni Ísafjarðardjúps en Djúpið sker sig langt suður inn á kjálkann.
    Kollafjörður væri líklega skynsamlegasta svarið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár