603. spurningaþraut: „Eldi heitari brennur með illum vinum“

603. spurningaþraut: „Eldi heitari brennur með illum vinum“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mál­verkið sem sést hér að ofan (því miður ekki í sér­lega góðri upp­lausn)? Og lár­við­ar­stig er í boði fyrir að vita hvað mál­verkið heitir!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Jakútía er stórt hérað sem til­heyrir hvaða ríki?

2.  Antony Blinken heitir valda­maður einn. Hvaða starfi gegnir hann um þessar mundir?

3.  Berglind Ósk Guð­munds­dóttir heitir nýr þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis. Í hvaða stjórn­mála­flokki er Berglind Ósk?

4.  Ricky nokkur Gervais sló í gegn fyrir tutt­ugu árum. Fyrir hvað?

5.  Hversu mörg eru guð­spjöllin?

6.  Gömul gáta byrjar svo: „Ingi­mundur og hans hundur ...“ Hvernig er næsta lína?

7.  Otto Bismarck hét karl einn. Hvaða starfi gegndi hann þegar ver­ald­legur frami hans varð mestur í líf­inu?

8.  Jacql­ine Moss­berg Moun­kassa heitir sænsk söng­kona. Fyrir hvað er hún þessa dag­ana fræg­ust á Íslandi?

9.  Í Háva­málum segir: „Eldi heit­ari / brennur með illum vinum ...“ hvað?

10.  Hver er ann­ars Hávi sá eða Hár sem Hávamál eru kennd við?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá söng- og leikkon­una Lady Gaga. Hún er þarna stödd í nýrri kvik­mynd sem heitir ... já, hvað heitir kvik­myndin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Rúss­landi.

2.  Utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna.

3.  Sjálf­stæð­is­flokknum.

4.  Sjón­varps­s­er­í­una Office.

5.  Fjögur.

6.  Sátu báðir og átu. Hafi fólk lært „átu báðir og sátu“ telst það líka rétt.

7.  Kanslari Þýska­lands.

8.  Fyrir að hafa orðið í öðru sæti á eftir Birki Blæ í sænska Idolinu á dög­unum.

9.  Friður fimm daga.

10.  Óðinn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Hall­grímur Helgason mál­aði verkið Guð á Sæbraut­inni.

Á neðri mynd­inni er Lady Gaga að leika í mynd­inni House of Gucci.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár