602. spurningaþraut: Eyþór Arnalds, Geirmundur heljarskinn og Ásta Sóllilja

602. spurningaþraut: Eyþór Arnalds, Geirmundur heljarskinn og Ásta Sóllilja

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn með yfir­skeggið?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fyrir hvaða flokk situr Eyþór Arnalds í borg­ar­stjórn Reykja­víkur?

2.  Í hvaða hljóm­sveit voru Eyþór og Björk Guð­munds­dóttir bæði hér fyrr á tíð?

3.  Hversu margar ser­íur af Ófærð hafa verið gerðar til þessa?

4.  Í júní síð­ast­liðnum tók Bennett nokkur við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í landi einu. Hvaða land er það?

5.  Í hvaða sögu Halldórs Laxness kemur Ásta Sóllilja við sögu?

6.  En hvað heitir „kamp­ur­inn“ sem segir frá í nokkrum bókum eftir Einar Kárason?

7.  Windhoek heitir höf­uð­borg í Afr­íku­ríki einu sem reglu­lega kemur upp í umræð­unni á Íslandi hin síð­ustu ár. Hvaða ríki er það?

8.  Hvaða reiki­stjarna í sól­kerfi okkar hefur flest tungl?

9.  „Einhver hlýtur að hafa verið að bera út óhróður um [NAFN], því dag nokkurn var hann hand­tek­inn án þess að hafa nokkuð til saka unnið.“ Hvað hét sögu­per­sónan sem þarna var hand­tekin?

10.  Geir­mundur helj­ar­skinn hét einn land­náms­manna, að því er sögur herma. Hvað hét bróðir hans sem einnig nam hér land, og var lika kall­aður helj­ar­skinn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir PERSÓNAN vinstra­megin á mynd­inni hér að neðan? Ekki leik­konan, heldur per­sónan.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

2.  Tappa tík­arrass.

3.  Þrjár.

4.  Ísrael.

5.  Sjálf­stæðu fólki.

6.  Thule-kampur.

7.  Namibíu.

8.  Júpíter.

9.  Jósef K.

10.  Hámundur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Adolf Hitler.

Persónan á neðri mynd­inni nefn­ist Scully.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár