Í mótþróa gegn sjálfum sér

Ljóða­bókin Álf­heimar eftir Brynjar Jóhann­es­son fjallar um tíma­bilið þegar þú ert orð­inn full­orð­inn en finnst það kannski ekki alveg sjálfur.

Bók

Álf­heimar

Höfundur Brynjar Jóhannesson
Benedikt bókaútgáfa
64 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Álf­heimar er ljóða­bók sem ég var að gefa út sem fjallar um ákveðið tíma­bil í mínu lífi en kannski í víð­ara sam­hengi, lífi margra,“ segir rit­höf­und­ur­inn Brynjar Jóhann­es­son. „Þetta er tíma­bilið sem fólk hefur verið að upp­lifa sem ákveðið nýtt milli­bils­á­stand þar sem fólk er orðið full­orðið en finnst það ein­hvern veg­inn ekki vera orðið full­orðið, það býr, eins og ég bjó, með vinum sínum. Það var tíma­leys­is­á­stand þar sem maður hafði ekki neina beina stefnu en var samt rosa­lega mikið í núinu og mikið inni í sér og pínu að upp­götva sjálfan sig og heim­inn sem full­orðin mann­eskja.“ 

Hann segir að Álf­heimar sé líka bók sem er skrifuð um og í miklum mót­þróa. „Mótþrói gegn sjálf­hjálp sem hún er samt stöðugt að iðka. Þetta er mót­þrói gegn sjálfum sér. Hún er um það að vera alltaf að pota í sig með ákveðna galla, og er að reyna að bæta sig en í mót­þróa gegn því.“

Skáldaferð til Ísafjarðar

Elsta ljóðið er skrifað í skálda­ferð um vorið 2018. „Ég var í meist­ara­námi í rit­list í Háskóla Íslands og það var farin skálda­ferð til Ísa­fjarðar, þar sem við vorum í eins konar læri yfir helgi hjá Eiríki Erni Norðdahl.

Ljóðið verður þannig til að ég var frekar þunnur uppi í koju á gisti­heim­ili og við höfðum fengið verk­efnið að skrifa lyga­sögu. Ljóðið heitir Ég er ekki alki. Það var kannski mót­þróa­kennd leið til að tækla þetta því þetta var mín til­raun til að skrifa ljóð sem væri upp­fullt af lygum án þess að ljúga beint á neinn hátt eða þannig.

Upp frá því fór ég að vinna það ljóð sem skipt­ist á sjón­ar­nafn­inu ég eða per­sónu­for­nafn­inu ég og við, þar sem ég-ið er oft í mót­sögn með hópnum sem það til­heyrir. Ég fór að vinna að hand­riti út frá þeirri pæl­ingu. Svo þró­að­ist það. Það var lengi með vinnu­tit­il­inn Lufsutesta­mentið, sem er vísun í Ísak Harð­ar­son sem var með Ræflatesta­mentið, en það þró­að­ist í aðeins aðrar áttir frá þeim vinnu­titli. En í bók­inni hafa ljóðin ekki titla, þau renna inn í hvert annað.“

Algjör þögn í tvær vikur eftir útgáfu

„Til­finn­ingin að gefa út bók er smá fyndið ferða­lag. Það var útgáfu­hóf og slatti af fólki kom og keypti bók­ina. Svo var maður í bara algjörri þögn í svona tvær vikur þar sem maður var í efa um að ein­hver hefði lesið þetta. Maður var að bíða rftir að fá eitt­hvað til baka, ein­hvers konar end­ur­gjöf. En svo fór hún að streyma til mín, fólk var að senda mér skila­boð um hvernig það hefði fílað bók­ina, og fá aðeins umfjall­anir. Og ég er bók­aður á upp­lestra. Það er að koma. Þetta er farið að vera alveg raun­veru­legt að hún er komin út og hún er til og er þarna.“

Best að hafa nægan tíma 

„Þegar ég er að skrifa finnst mér best að hafa nógan tíma, sér­stak­lega tíma sem er ekki of nið­ur­negldur. Ég á mjög erfitt til dæmis ef ég á að mæta eitt­hvert klukkan þrjú, þá finnst mér erfitt að vinna frá tólf til tvö. Mér finnst mjög gott að hafa þennan tíma og pláss, sem þarf ekki að vera mikið pláss en það þarf samt að vera pláss þar sem maður er ekki trufl­aður. Það er ekki verið að kalla eftir athygli manns. Fyrst og fremst skiptir mestu máli að vera að vinna í ein­hverju, það ger­ist ekk­ert ef maður er ekki aktívt að vinna, maður fær engar hug­myndir ef maður er ekki byrj­aður eða að fara af stað.

Bókin er byggð upp af tveimur þráðum sem tvinn­ast saman. Það er ann­ars vegar tal um okkur, og það er ákveð­inn hópur sem að ljóð­mæl­and­inn til­heyrir, og svo er það þú þar sem ljóð­mæl­and­inn er að ávarpa sjálfan sig og er ekki endi­lega alltaf rosa­lega vin­veittur sér. Ég ætla að lesa ljóð sem sýna fram á hvernig það virkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hug­leiðslu

Í bók­inni Allir fuglar fljúga í ljósið riðl­ast til­vera ráfar­ans Bjartar og lífs­saga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og skap­ari sög­unnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hug­leiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draum­ur­inn kom­inn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár