Hendir öllu frá sér og lokar sig af

„Rétt­inda­bréf í bygg­ingu skýja­borga, ja um hvað er hún? Hún er svona ferða­lag fram og til baka, eins og í flestum mínum bókum þá er stokkið úr einu í annað,“ segir rit­höf­und­ur­inn Eyþór Árnason.

Bók

Rétt­inda­bréf í bygg­ingu skýja­borga

Höfundur Eyþór Árnason
Veröld
72 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Rétt­inda­bréf í bygg­ingu skýja­borga, ja, um hvað er hún? Hún er svona ferða­lag fram og til baka, eins og í flestum mínum bókum þá er stokkið úr einu í annað,“ segir rit­höf­und­ur­inn Eyþór Árnason. „Ég er kannski að lenda í Skaga­firði í upp­hafi bók­ar­innar, svo þvælist ég um landið aðeins, fer á Vest­firði, stoppa í Reykja­vík í kringum pest­ina ogsvo  enda ég í Skaga­firði aftur. Ég held að það megi segja það. En um hvað hún nákvæm­lega er. Það er eins og margar ljóða­bækur, alla­vega mínar ljóða­bækur, það er farið fram og til baka og erfitt að henda reiður á því hvert ég er að fara.“ 

Þegar hann gaf út fyrstu bók­ina var alltaf mark­miðið að það kæmi bók frá honum annað hvert ár. „Ég var svo bjart­sýnn, hélt að þetta bara kæmi alveg af sjálfu sér. Það hefur ekki alveg gengið eftir, en á þessum tólf árum hafa komið sex bækur út, þannig að ég er mjög nálægt þessu. Ekki alveg en þetta er í átt­ina. Mig vantar þarna aðeins upp á. Ég veit ekki af hverju, þetta er bara eitt­hvað sem ég beit í mig. En svo er þetta þannig að þú ert búinn með bók eins og þessa og þá svo sem er ekk­ert, þá er bara autt blað, ein­hver kannski tvö-þrjú ljóð sem liggja og bíða. Svo heldur maður áfram að safna og svo kannski líða tvö ár, kannski fimm ár, maður veit ekki hvort næsta bók er til­búin. Þetta er bara orðin árátta, maður heldur bara áfram.“

Stundum líða mánuðirnir án þess að nokkuð gerist

Þegar hann er að skrifa vill hann helst vera einn, en þótt ferlið sé gef­andi þá kemur þetta í köstum. „Maður holar sér ein­hvers staðar niður einn og situr og skrifar og reynir að koma sér í stemn­ingu. Reynir að koma sér í stuð. Þetta er svo­lítið óreglu­legt hjá mér af því ég er nátt­úr­lega í annarri vinnu, ég vinn ekki við það að skrifa, svo að ég verð að nota frí­tíma, dauðan tíma í þetta. Þetta kemur svo­lítið í bylgjum, maður fær svona köst og þá kemst maður í stuð og þá skrifar maður á hverjum degi alveg á fullu. Bara um leið og maður kemur úr vinn­unni þá hendir maður öllu frá sér og lokar sig af, og það er mjög skemmti­legt. En svo kannski líður hálft ár og ekk­ert ger­ist.“ 

Nú þegar bókin er komin út líður honum mjög vel. „Maður er alltaf glaður að fylgja þessu barni úr hlaði, þetta eru börnin manns. Allt í einu eru þau bara komin í bóka­búð­ina og þar bara eru þau. Það er kannski helst að maður fari í bóka­búðir og færi hana framar í rekk­anum svo fólk sjái hana, það er svo­lítið gott. Manni þykir vænt um börnin sín og maður vill þeim allt hið besta. Ekki er verra ef ein­hver kaupir þetta og hælir manni fyrir. Jú jú, sumir kannski kvarta og segja að þetta sé nú ekki alveg nógu gott hjá þér en það er bara þannig. Þú ert alla­vega búinn að sleppa þessu og búinn að missa tökin á þessu, það er bara þannig. Það er voða­lega góð til­finn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hug­leiðslu

Í bók­inni Allir fuglar fljúga í ljósið riðl­ast til­vera ráfar­ans Bjartar og lífs­saga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og skap­ari sög­unnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hug­leiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draum­ur­inn kom­inn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár