Vann bókina í gegnum ósjálfráð skrif

Brynja Hjálms­dóttir not­aði hug­ar­flæði við skrif á bók­inni Kona lítur við, sem leiðir les­and­ann í gegnum ákveðið ferða­lag.

Bók

Kona lítur við

Höfundur Brynja Hjálmsdóttir
Una útgáfuhús
80 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Bókin mín Kona lítur við er ljóða­bók í þremur hlutum. Hún er ákveðið ferða­lag en hlut­arnir standa samt sér,“  segir Brynja Hjálms­dóttir rit­höf­undur. „Fyrsti hluti heitir Óra­mað­ur­inn, annar hluti heitir Kona lítur við og þriðji hluti heitir Í borg skækj­unnar. Ferða­lagið er þannig að í fyrsta hluta förum við á myrkan stað og öðrum hluta nokk­urs konar limbó, myndi ég vilja kalla það, og í loka­hlut­anum förum við inn í útópíu eða ein­hvern stór­kost­legan stað. Og við förum út þaðan.“

Fyrstu setn­ing­arnar urðu til nokkrum mán­uðum eftir að Brynja gaf út fyrstu bók­ina, Okfrumuna. „Eftir að ég skrif­aði hana og gaf hana út skrif­aði ég ekki neitt í dálít­inn tíma en svo allt í einu byrj­aði þetta að koma til mín. Ég vann hana í gegnum hug­ar­flæði, str­eam of consciousness, ósjálf­ráð skrif. Þaðan í raun og veru kom síðan efni sem ég vann áfram sem varð að þess­ari loka­út­komu.“

Hún vinnur ekki endi­lega á einum stað og einum tíma í algjörri rútínu. „ Það er líka öðru­vísi að skrifa ljóð og prósa. Mér finnst gott að vinna með penna og blað. Ég skrifa óheflað og end­ur­skrifa, ég vinn mikið þannig. Ég er með skrif­stofu, svo skrifa ég heima, uppi í rúmi og á kaffi­húsi. Það kemur ekki endi­lega rosa­lega gott stöff á kaffi­húsum en þá líður manni kannski eins og maður sé alvöru rit­höf­undur,“ útskýrir hún.  

„Mér finnst alltaf lítið áfall að gefa út bók. Alltaf segi ég, þetta er í annað skiptið. Bæði skiptin hafa verið þannig að þegar ég fæ bók­ina í hend­urnar þá heldur maður að það sé sig­ur­mó­ment en það er líka áfalla móment því … hvað hef ég gert? Og nú er ekki hægt að hætta við. En svo þarf maður kannski tvo daga, nokkra daga og þá verður það bara venju­legt og skemmti­legt. 

Maður er að gera þetta til að fá bók í hend­urnar og von­andi að ein­hver lesi. Og ég er bara mjög glöð og þetta er bara flott bók.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hug­leiðslu

Í bók­inni Allir fuglar fljúga í ljósið riðl­ast til­vera ráfar­ans Bjartar og lífs­saga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og skap­ari sög­unnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hug­leiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draum­ur­inn kom­inn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár