Það sem hverfur þegar við deyjum

Umfram­fram­leiðsla eftir Tómas Ævar Ólafsson fjallar um það sem gengur af.

Bók

Umfram­fram­leiðsla

Höfundur Tómas Ævar Ólafsson
Una útgáfuhús
76 blaðsíður
Gefðu umsögn

Umfram­fram­leiðsla er þegar fram­leiðslu­fyr­ir­tæki fram­leiðir of mikið af þeirri neyslu­vöru sem það vill fram­leiða. Þannig að þegar eitt­hvað gengur af selst það oft á góðu verði af því að það er umfram eft­ir­spurn. „Þessi bók er umfram og hún er á mjög góðu verði í til dæmis Eymunds­son eða Bóksölu stúd­enta og svo er líka hægt að leigja hana á bóka­söfnum. Ég hef fengið ágætis við­brögð við henni. Hún er best til aflestrar seint á kvöldin, kemur manni til svefns og einnig mjög góð til þess að svæfa börn,“ segir rit­höf­und­ur­inn Tómas Ævar Ólafsson. 

„Bókin fjallar um það sem gengur af. Hún eltir svo­lítið rann­sóknir vís­inda­manns­ins Duncan MacDougall sem gerði fræga rann­sókn árið 1907 þar sem hann vigtaði sex mann­eskjur á stund dauð­ans og komst að því, eða því orsaka­sam­hengi, að mann­eskja létt­ist um 21 gramm, eða 3/4 hluta úr únsu, þegar hún deyr. Hann ákvað með sjálfum sér og skrif­aði grein um það að sál manns­ins væri því efn­is­leg og þetta þung og hyrfi úr lík­am­anum á stund dauð­ans. 

Við myndum lík­lega ekki sam­þykkja þessa rann­sókn í dag vegna þess að þetta voru aðeins sex mann­eskjur og aðeins þrjár af þeim tóku þyngd­ar­breyt­ingum á stund dauð­ans. Ég held að aðeins tvær þeirra hafi lést um akkúrat 21 gramm en hin um eitt­hvað þar í kring. Hann sann­próf­aði nið­ur­stöður sínar á hundum og hundar létt­ast hvorki né þyngj­ast á stund dauð­ans. En þessi sál, sem við teljum mann­eskjur hafa, virð­ist búa í okkur og hverfa þegar við deyjum.“

Ljóð sem enda í angist

Ef hann man rétt fædd­ist verkið haustið 2018. „Þá var ég að skrifa ljóð sér­stak­lega fyrir ljóða­sam­keppn­ina Ljóð­stafur Jóns úr Vör sem Kópa­vogs­bær heldur utan um. Þar rambaði ég niður á ljóð sem bókin hverf­ist um, sem heitir 21 gramm, þótt tit­ill­inn sé horf­inn. Þar er ég að reyna að orða það sem gengur af eða það sem hverfur úr okkur þegar við deyjum, á mjög beinan hátt sem er samt eig­in­lega ómögu­legt. Úr því fæð­ist síðan syst­ur­ljóð sem er alveg eins upp­byggt og reynir þetta aftur og endar á allt öðrum stað. En bæði þessi ljóð enda í ein­hvers konar ang­ist. Annað endar í heim­þrá og hitt í áhyggjum af óreglu. 

Á undan þessum ljóðum kemur þessi kviða eða bálkur, það fæð­ist aðal­per­sóna sem er í vanda­málum með sjálfa sig eða sjálft sig, og það er þetta sjálf eða þessi sál sem er að þvæl­ast fyrir mann­eskj­unni sem er að valda henni vanda­málum. Hún ber þau vanda­mál á borð þriggja kvenna. Bókin endar á að skoða þá hlustun þess­ara þriggja kvenna á aðal­per­sónu bókar sem er ekki kynjuð en reynir samt að orða þessa umfram­fram­leiðslu innra með sér, sem er þá sjálfið og jafn­vel þessa sál sem við höfum verið að tala um í árþús­und. Bókin endar á því að vera skoðun á hlustun og við­brögðum ann­arra mann­eskja við því þegar við reynum að orða okkur sjálf.“

Kallar möppuna kistuna 

Þegar hann skrifar ljóð hefur hann enga aðferð og segir að það sé örugg­lega ekki hollt. „Yfir­leitt er það þannig að hug­myndin bankar upp á, ég þarf að hripa hana niður og hripa niður hug­myndir. Öðru hverju safna ég þeim í folder í tölv­unni minni sem ég kalla Kistan. Þegar kemur að því að búa þau raun­veru­lega til, þetta eru yfir­leitt bara tvær-þrjár setn­ingar, eitt mjög slæmt erindi kannski sem safn­ast fyrir í fold­erið, og mörg skjöl. Síðan þarf ég að finna tíma til að setj­ast niður og horfa á þetta. Helst þurfa að vera liðnar svona tvær vikur frá frum­skrif­unum sjálfum þannig að hug­ur­inn geti byrjað að melta hrá­efnið og setja það saman. Þá hefst ferlið að vinna úr hrá­efn­unum eins og maður sé að elda eitt­hvað, setja saman ein­hverja upp­skrift. Það tekur yfir­leitt tvo til trjá tíma fyrir hvert ljóð að stilla því upp. Þannig er komið hrá­efni. Svo hendir maður því í ein­hvers konar form, stillir því upp og ef maður heldur áfram með lík­ing­una um að þetta sé upp­skrift og maður sé að elda, þá kemur að því að maður þarf að stinga því inn í ofn eða setja það á hell­una og bíða eftir hit­anum. Þannig að þegar því hefur verið upp­stillt og það er komin ein­hver hugsun sem rennur í gegnum það, þá þarf það oft að bíða aftur í svona tvær vikur, kannski mánuð. Ég má helst ekki sjá eða hugsa of mikið um það, það þarf bara að vera hérna aft­ast í koll­inum og hrær­ast aðeins. Þegar ég kem síðan aftur að því þá sé ég allt sem mér finnst ekki gott og ég reyni að stroka það út. Bæta kannski inn ein­hverju sem kemur þá jafn­vægi á það sem fer út. Þá endar maður, eða ég, með nokkurn veg­inn fullunna vöru.

Það er sögu­þráður í gegnum alla þessa bók, þannig að þegar ég setti hana saman þurfti ein­hvern veg­inn að móta ljóðin fyrir sögu­þráð­inn þótt þau hafi verið full­unnin áður en ég fór að gera bók­ina. Það varð í raun­inni auka­ferli ofan á þetta allt saman og tók mjög langan tíma og flækti allt saman. Ég fór að taka þau öll í sundur og setja þau upp upp á nýtt og þannig.

Þegar ég skrifa prósa, smá­sögur, og svo er ég að að vinna að skáld­sögu núna, þá er það meira kannski átta tíma vinnu­dagur. Yfir­leitt svona fjórir til fimm. Þá er maður alveg búinn á því eftir að hafa horft á skjalið og reynt að búa eitt­hvað til. Þá þarf maður bara að sitja og fram­leiða og nota svo þessa aðferð að bíða þegar maður finnst maður vera með eitt­hvað full­unnið, eða alla­vega ein­hvers konar hug­mynd sem gæti staðið. Þá legg ég það til hliðar í minnst tvær vikur í ofn­inum og síðan kem ég aftur að því og end­ur­skrifa það.“

Enn að reyna að sleppa henni

Hann segir að það hafi verið skrítið að fá Umfram­fram­leiðslu í hend­urnar. „Einar Kári, útgef­and­inn minn hjá Unu útgáfu­húsi, bank­aði upp á með prufu­ein­tak af bók­inni og rétti mér. Sú bók leit reyndar ekki svona út, hún var miklu ljós­ari, hálf­hvít, þar af leið­andi ákváðum við að dekkja hana. Þannig að þetta trámat­íska ferli að þurfa að gang­ast við þess­ari bók fékk svona vinnufund­ar­legri blæ sem hjálp­aði mér mikið. Af því að ég gat horft á kápuna og sagt: Ja, hún þarf að kannski að vera aðeins dekkri. Og þurfti ekki að taka inn þessa stóru hug­mynd að hérna væru komnar ein­hverjar til­raunir mínar til að lýsa ein­hverjum innri kjörnum mann­eskj­unnar. Þykjast vera ein­hver heim­spek­ingur um lífið sem er erfitt og leið­in­legt og maður vill ekki gang­ast við. Þó manni finn­ist á þeim stundum sem ljóðin banki upp á að maður skilji allt í einu eitt­hvað og svo hverfur það bara.

Að fá svo safnið af þeim hugs­unum í hend­urnar og setj­ast niður með bók­inni þá hugs­aði ég: Jæja, nú þarf ég að læra að sleppa. Ég er enn þá að reyna að sleppa henni. Það gengur bæri­lega. Örlítil þján­ing, ekki meira en það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hugleiðslu
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hug­leiðslu

Í bók­inni Allir fuglar fljúga í ljósið riðl­ast til­vera ráfar­ans Bjartar og lífs­saga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og skap­ari sög­unnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hug­leiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draum­ur­inn kom­inn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár