„Ég er búin að vera með þessar sögur heima hjá mér“

Kristín Ómars­dóttir segir frá Borg bróður míns, stuttum smá­sögum sem ger­ast í borg. Per­són­urnar koma oft þegar hún fer í göngutúr eða hjólar um.

Bók

Borg bróður míns

Höfundur Kristín Ómarsdóttir
Benedikt bókaútgáfa
208 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Þetta er nýja bókin mín, hún heitir Borg bróður míns,“ segir Kristín Ómars­dóttir rit­höf­undur. „Nafnið fékk ég af mynd sem heitir sama nafni. Og flestar sög­urnar ger­ast í borg, ekki í sveit. Ég tók þá sögu út sem gerð­ist í sveit. Þær eiga það sam­eig­in­legt, en ég vildi samt ekki kalla þetta borg­ar­sögur. Þetta eru líka nokkrar sögur sem eru svo­lítið eins og Senur úr hjóna­bandi eftir Ingmar Bergman. Nokkrar sögur eru eins og senur. Aðrar eru eins og við álítum að sögur séu. En flestar eru þær stuttar, þær eru allar stuttar, þetta eru ekki langar smá­sögur, þetta eru stuttar smá­sögur.“

Sögurnar tengjast teikningum

Hún byrj­aði að skrifa þessar sögur stuttu eftir að skáld­saga kom út fyrir tveimur árum og heims­far­ald­ur­inn fór af stað. „Þær tengj­ast líka mjög mikið teikn­ing­unum sem ég var að teikna á sama tíma. Ég var eins og að búa til borg. Eins og ég væri að leika mér í ein­hverjum tölvu­leik. Að búa til borg og skrifa svo inn sögur fyrir þessa borg. Sögur sem eru sagðar með orðum.“

Henni finnst skemmti­legt að skrifa heima við skrif­borðið sitt, „eða ég veit ekki hvort ég eigi það. Og mér finnst best að skrifa í hönd­unum en ég geri það ekki alltaf. Sumar sög­urnar eru skrif­aðar fyrst í hönd­unum. Hug­mynd­irnar koma ekk­ert endi­lega þegar ég sit við skrif­borðið. Oft í göngutúr eða hjóla­túr þá koma per­són­urnar. Og ein­hverjar kannski per­sónur eða þessi per­sóna og ég veit hvað hún vill og svo fer ég heim og skrifa um hana.“ 

Verður vör við óraunveruleika

„Mér finnst ég taka betur eftir því núna hvernig mér líður þegar þessi bók kemur út heldur en áður. Mér fannst ég verða vör við ein­hvers konar óraun­veru­leika. Það er líka nátt­úr­lega það að ég er búin að vera með þessar sögur heima hjá mér bara í hausnum á mér. Og á tölv­unni og í papp­írum og hand­ritum. Og það er dálítið plat. Það er svona ímynd­aður heimur. Þetta er eins og kannski ef að dúkku­húsið manns myndi vera allt í einu gefið út. Þegar þetta er orðið allt í einu að hlut, að fyr­ir­bæri, að bók. Þá er allt í einu hægt að koma við hana og aðrir geta lesið. Þá þarf maður ein­hvern veg­inn að brúa þennan óraun­veru­leika og raun­veru­leika saman eða sauma það saman og ég hef verið að labba yfir þessa brú. Og ég fékk smá svima­köst á leið­inni. Ég held að ég sé alveg að koma yfir inn í raun­veru­leik­ann. Átta mig á að hún er til í alvör­unni, bókin.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hug­leiðslu

Í bók­inni Allir fuglar fljúga í ljósið riðl­ast til­vera ráfar­ans Bjartar og lífs­saga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og skap­ari sög­unnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hug­leiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draum­ur­inn kom­inn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár