Þótt kjör alþýðu í Frakklandi, verkamanna og launþega fyrirtækja, væru oft á tíðum harla bág, gátu þessir menn þó borið höfuðið hátt, þeir voru hluti af voldugri stétt sem stóð saman og hafði sína sterku formælendur, verkalýðssambandið CGT, sennilega stærsta verkalýðssamband landsins, og svo kommúnistaflokkinn sem CGT var reyndar í mjög nánum tengslum við. Verkamaður var ekki einangraður náungi úti í horni sem enginn hlustaði á og enginn tók mark á, ef hann vildi koma á framfæri einhverju sem snerti hans líf og kjör gat hann átt von á að CGT talaði fyrir hann, kannske kommúnistaflokkurinn líka. Og það heyrðist. Ef eitthvað mikið bjátaði á, skipulagði verkalýðssambandið hörð verkföll. Þar fór allt fram með röð og reglu, menn báru kröfuspjöld með vígorðum sem áður höfðu verið rædd og samþykkt, og ef einhverjir óeirðarseggir reyndu að hleypa þeim upp, kannske efna til slagsmála við lögguna, var handföstum öryggisvörðum að mæta, og …
Einar Már Jónsson
Sjálfsvirðing
Þegar menn renna augum yfir þann margvíslega ófagnað sem „bylting frjálshyggjunnar“ hefur leitt yfir almenning, nefna menn stöku sinnum hvernig alþýðustéttir hafa misst þá sjálfsvirðingu og reisn sem þær nutu áður, og jafnframt þá sérstöku virðingarstöðu sem þær höfðu í þjóðfélaginu. Þetta er afskaplega augljóst í Frakklandi en breytinguna má sjá mun víðar, og er stærra fyrirbæri en margir gera sér grein fyrir. Í raun og veru ætti það að vera ofarlega á blaði.
Mest lesið

1
Kennari á hátekjum: „Hef verið að halda vel utan um mitt“
Skógræktar- og ferðaþjónustubóndinn og kennarinn, Jóhanna Halldóra Sigurðardóttir, situr í þriðja sæti hátekjulistans á Vesturlandi. „Þetta kemur mér verulega á óvart. Það eru margir stórlaxar á svæðinu,“ segir hún. Jóhanna vill helst að skattar hennar fari í málefni fatlaðra og betri vegi í Dalabyggð.

2
„Ég var settur út úr ráðherradómnum“
Guðmundur Ingi Kristinsson segir úrsögn sína úr Flokki fólksins tengjast því hvernig staðið var að brotthvarfi hans úr ráðherraembætti meðan hann glímdi við alvarleg veikindi.

3
Sigrún Huld Sigrúnar
Hvað ef við höfðum rangt fyrir okkur?
Finnskur geðlæknir syrgir þátt sinn í þróun sem leiddi til stóraukinnar notkunar þunglyndislyfja. Á Íslandi hefur hlutfall þeirra sem fá slík lyf nær tvöfaldast frá 2007. Er kominn tími til að endurskoða hvernig við nálgumst mannlega þjáningu?

4
„Við munum grípa til aðgerða í þágu réttláts og varanlegs friðar“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir boðar aðgerðir gegn ísraelskum landnemum. Alls skrifa tólf ríki undir yfirlýsingu þess efnis.

5
Trump lætur 9/11 snúast um sig
Í Hvíta húsinu var viðbragðsaðila sem létust í hryðjuverkaárásum á Bandaríkin árið 2001 minnst. Donald Trump lét viðburðinn og söguna snúast um sjálfan sig. „Aftur,“ segir AFP og bendir á að frásögn forsetans hafi tekið breytingum í gegnum árin og verið dregin í efa af björgunaraðilum á vettvangi.

6
Trump bannar kanadískt áfengi í nýrri lotu tollastríðs
Enn harðnar viðskiptadeila Bandaríkjanna og Kanada með nýjum tollum, innflutningsbanni og hótunum gegn kanadískum fyrirtækjum. Mark Carney segir Kanada tilbúið að axla kostnaðinn af minni efnahagstengslum við Bandaríkin.
Mest lesið í vikunni

1
Kennari á hátekjum: „Hef verið að halda vel utan um mitt“
Skógræktar- og ferðaþjónustubóndinn og kennarinn, Jóhanna Halldóra Sigurðardóttir, situr í þriðja sæti hátekjulistans á Vesturlandi. „Þetta kemur mér verulega á óvart. Það eru margir stórlaxar á svæðinu,“ segir hún. Jóhanna vill helst að skattar hennar fari í málefni fatlaðra og betri vegi í Dalabyggð.

2
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“
Þóra Jakobína Olsen Hrafnsdóttir fékk spurningu sem hún gat ekki svarað, fór heim og íhugaði svarið. Í kjölfarið breytti líf hennar um stefnu.

3
Dekk og líkamsrækt skila milljónum í kassann
Framkvæmdastjóri Dekkjahallarinnar og eigandi líkamsræktar verma toppsætin yfir þau tekjuhæstu á Austurlandi í ár.

4
Seldu fjöldskylduútgerð fyrir tvo milljarða í „fjandsamlegu umhverfi“
Fjölskylduútgerð á Árskógssandi var seld til Húsavíkur með tveimur bátum og kvóta í byrjun árs 2025. Fyrri eigendur eru ofarlega á Hátekjulista Heimildarinnar, en framkvæmdastjóri sagði ástæðu sölunnar fjandsamlegt rekstrarumhverfi smærri útgerða og stefnu nýmyndaðrar ríkisstjórnar.

5
Meðaljón hátekjulistans er miðaldra Jón
Til að komast inn á hátekjulistann eru líkurnar með þér ef þú heitir Jón og ert á sextugsaldri. Heimildin tók saman áhugaverða tölfræði.

6
Skattakóngur Skagafjarðar vill meira til nærsamfélagsins
Gunnar Þór Gestsson, sem seldi fyrirtækið sitt til Origo í fyrra, segir það vandamál að fjármagnstekjuskattur og skattar á fyrirtæki renni nær eingöngu til ríkisins en ekki sveitarfélaga.
Mest lesið í mánuðinum

1
Hvað gerðist á Krýsuvíkurvegi?
Ökumaður bifreiðar sem hafnaði utan vegar á Krísuvíkurveginum, þar sem þrennt lét lífið, var á 233 kílómetra hraða samkvæmt appi sem ungmenni nota sín á milli til þess að fylgjast með hraðatölum.

2
Skattadrottning með 1,4 milljarða í árstekjur
Aðalheiður S. Gunnarsdóttir er eina konan með yfir milljarð í árstekjur á Hátekjulista Heimildarinnar í ár. Fjórar af tíu tekjuhæstu konum landsins tengjast útgerðum.

3
Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu
„Þú ert allt sem skiptir mig máli,“ sagði aðstoðarkona Bandaríkjaforseta við hann. „Þegiðu,“ sagði Trump við fréttakonu sem spurði út í málið.

4
Fjárfestir í foreldrahúsum
Markús Máni Skúlason er 24 ára og því yngsti karlmaðurinn á hátekjulistanum í ár. Hann byrjaði að fjárfesta 18 ára og segir að á yngri árunum sé mikilvægt að „vera duglegur að endurfjárfesta“ og ekki eyða því sem maður hefur safnað.

5
Þegar nei-ið náði yfirhöndinni
Halldór Benjamín Þorbergsson fór af árshlutafundi Heima yfir á sviðið á Austurvelli, þar sem hann gat fagnað viðsnúningi unga fólksins.

6
Þrjú ungmenni látin eftir slys á Krýsuvíkurvegi
Piltur og tvær stúlkur létust í slysi í nótt.

































Athugasemdir