Aron Einar vill ræða við lögreglu og gagnrýnir útilokunarmenningu

Lands­liðs­fyr­ir­lið­inn í knatt­spyrnu karla sendir frá sér yfir­lýs­ingu eftir að hann var ekki val­inn í lands­liðs­hóp­inn af „utan­að­kom­andi ástæðum“. Hann fer fram á að fara í skýrslu­töku hjá lög­reglu vegna kvölds fyrir ell­efu árum.

Aron Einar vill ræða við lögreglu og gagnrýnir útilokunarmenningu
Aron Einar Gunn­ars­son Vill ræða við lög­regl­una um kvöld eitt fyrir ell­efu árum. Mynd: afp

„Það sem nú við­gengst er slauf­un­ar­menn­ing eða úti­lok­un­ar­menn­ing og hana ætti ekki að líða,“ segir Aron Einar Gunn­ars­son, lands­liðs­fyr­ir­liði í knatt­spyrnu karla, um ákvörðun lands­liðs­þjálf­ar­ans, Arnars Þórs Við­ars­sonar, um að velja hann ekki í lands­liðs­hóp­inn vegna „utan­að­kom­andi aðstæðna“.

Aron seg­ist í yfir­lýs­ingu ekki hafa fengið að skýra mál sitt vegna ásak­ana dóm­stóls göt­unnar. Hann seg­ist ekki ætla að vera með­virkur dóm­stóli göt­unnar.

Segist ekki hafa fengið tækifæri til að ræða málið

„Á sam­fé­lags­miðlum hefur verið til umræðu atburður sem sagt er að hafi átt sér stað í Kaup­manna­höfn 2010. Ég hef ekki fengið tæki­færi til að ræða málið form­lega við KSÍ, eða verið gef­inn kostur á standa á rétti mínum gagn­vart ávirð­ing­unum, og því sárnar mér þessi fyr­ir­vara­lausa ákvörðun um að verða settur út úr lið­inu. Í ofaná­lag hefur lög­regla aldrei haft sam­band við mig vegna nokk­urs máls. Ég hef engar til­kynn­ingar fengið um að ég hafi á ein­hverjum tíma­punkti verið undir grun og aldrei verið boð­aður í yfir­heyrslu,“ segir Aron Einar, sem vill nú vera boð­aður til skýrslu­töku hjá lög­reglu.

„Vegna þessa alls hef því ákveðið að óska eftir því við lög­reglu­yf­ir­völd að fá að gefa skýrslu um þetta kvöld fyrir ell­efu árum.“

Aron Einar seg­ist vilja opna umræð­una og kveðst ekki hafa farið fram á neinn trúnað. 

„Fyrir mig, og fjöl­skyldu mína og vini sem þekkja til mín, er mjög sárt að KSÍ, sem ég hef í 97 lands­leikjum gefið alla mína krafta skuli setja mig til hliðar vegna krafna sem byggj­ast á óljósum orðrómi um lands­liðs­menn. Þetta er óverj­andi staða.“

Landsliðsþjálfarinn segir ákvörðunina sína

Arnar Þór Við­ars­son lands­liðs­þjálf­ari sagði á blaða­manna­fundi í dag að hann hefði ákveðið að velja hann ekki í hóp­inn. „Eins og ég sagði áðan var það mín ákvörðun að velja hann ekki,“ sagði Arnar Þór. „Hvað fram­tíðin ber í skauti sér get ég ekk­ert spáð fyrir  um.“ 

Hann vildi ekki skýra nánar ástæðu þess að Aron var ekki val­inn, en sagði hana tekna í sam­ráði við Aron Einar. „Ég ætla ekki að fara nánar út í það. Ég bið ykkur um að virða það. Þetta er lands­liðs­fyr­ir­lið­inn okkar. Við erum að vinna okkur saman gegnum þessar utan­kom­andi aðstæður. Þegar tím­inn er réttur munum við koma til baka og útskýra það.“ 

Lands­liðs­mað­ur­inn Gylfi Sig­urðs­son er sem stendur í far­banni í Bret­landi vegna rann­sóknar á meintu broti gegn ólög­ráða stúlku. Hann er ekki heldur í lands­liðs­hópnum sem mætir Armeníu og Liechtenstein í októ­ber.

Kona sagði sögu sína á instagram

Það sem Aron Einar vísar til með „kvöldi fyrir ell­efu árum“ virð­ist vera umræða á sam­fé­lags­miðlum, sem hófst á því að ung kona sagði frá því að tveir menn hefðu brotið alvar­lega gegn henni árið 2010. Konan sagði sögu sína í maí síð­ast­liðnum. „Ég ætl­aði að kæra, fékk lög­fræð­ing, fór í skýrslu­töku hjá lög­reglu en hvar sem ég kom var mér sagt að þetta væri erfitt mál, annað land og þeir tveir gegn mér. Ítrekað var ég spurð hvort ég vildi leggja þetta á mig. Eftir margra mán­aða bið ákvað ég svo að leggja málið niður, var ekki nógu sterk, gat ekki lagt meira á mig and­lega. Þessir menn voru þekktir, annar þeirra þjóð­þekktur í dag.“ Þá sagði hún að hún mætti ekki nafn­greina menn­ina. „Ég má segja frá, ég má bara ekki nafn­greina. Mig langar ekki að burð­ast með þetta ein í hjart­anu, mig langar ekki að hugsa í hvert skipti sem ég fer á meðal fólks: „Ætli þau viti þetta, ætli þau trúi mér.“ Því það er ógeðs­lega íþyngj­andi og heft­andi félags­lega. Ég er alltaf á varð­bergi.

Yfirlýsing Arons Einars í heild

Settur saklaus til hliðar í nýrri útilokunarmenningu KSÍ

„Eins og kom fram í fréttum í dag var ég ekki í hópi leik­manna sem Arnar Þór Við­ars­son, þjálf­ari íslenska lands­liðs­ins, valdi fyrir kom­andi lands­leiki. Sú ákvörðun kemur í kjöl­far þess að ég lýsti því yfir gagn­vart KSÍ að ég gæfi kost á mér, væri í góðu formi og búinn að jafna mig að fullu af nýlegum veik­indum. Að auki lýsti ég því yfir að ég hefði ekk­ert gert af mér og var þá að vísa í nýlega umræðu um mein­tan ofbeld­iskúltúr innan KSÍ. 

Á blaða­manna­fundi var hins vegar spurn­ingum um ástæður vals­ins lítið svarað. Ég get aðeins dregið þá ályktun að kom­andi sjálf­kjörin stjórn KSÍ hafi umboðs­laus beitt sér fyrir því að mér yrði slaufað eins og fram hefur komið í fréttum á DV.is. Árangur lands­liðs­ins hefur ekki verið þannig að skyn­sam­legt sé að setja reynd­ustu menn­ina til hliðar og því er það ekki ástæðan. Ég hef heldur ekki beðið Arnar Þór um trúnað um þær ástæður að hann velji mig ekki.

Fyrir mig, og fjöl­skyldu mína og vini sem þekkja til mín, er mjög sárt að KSÍ, sem ég hef í 97 lands­leikjum gefið alla mína krafta skuli setja mig til hliðar vegna krafna sem byggj­ast á óljósum orðrómi um lands­liðs­menn. Þetta er óverj­andi staða. 

„Því sárnar mér þessi fyr­ir­vara­lausa ákvörðun um að verða settur út úr lið­inu“

Á sam­fé­lags­miðlum hefur verið til umræðu atburður sem sagt er að hafi átt sér stað í Kaup­manna­höfn 2010. Ég hef ekki fengið tæki­færi til að ræða málið form­lega við KSÍ, eða verið gef­inn kostur á standa á rétti mínum gagn­vart ávirð­ing­unum, og því sárnar mér þessi fyr­ir­vara­lausa ákvörðun um að verða settur út úr lið­inu. Í ofaná­lag hefur lög­regla aldrei haft sam­band við mig vegna nokk­urs máls. Ég hef engar til­kynn­ingar fengið um að ég hafi á ein­hverjum tíma­punkti verið undir grun og aldrei verið boð­aður í yfir­heyrslu.

Sem fyr­ir­liði hef ég fyrir löngu lært að axla ábyrgð og það sem nú við­gengst er slauf­un­ar­menn­ing eða úti­lok­un­ar­menn­ing og hana ætti ekki að líða. Um leið og ég hafna öllu ofbeldi þá lýsi ég því yfir að ég hef aldrei gerst brot­legur gagn­vart neinum eða neinni. Ég ætla mér ekki að vera með­virkur gagn­vart dóm­stól göt­unnar varð­andi atvik sem á að hafa átt sér stað fyrir ell­efu árum síðan. Hafi ein­hver eitt­hvað út á mig að setja þá bið ég við­kom­andi vin­sam­leg­ast að hlífa mér ekki, ásaka mig frekar og nafn­greina og gefa mér kost á að verja mig. Það er heið­ar­legt.

Vegna þessa alls hef því ákveðið að óska eftir því við lög­reglu­yf­ir­völd að fá að gefa skýrslu um þetta kvöld fyrir ell­efu árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár