Landsliðsþjálfarar: „Við erum mótfallnir öllu ofbeldi“

Lands­liðs­þjálf­arar íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta tóku afstöðu gegn ofbeldi. Lands­fyr­ir­lið­inn Aron Ein­ar Gunn­ars­son var ekki val­inn í hóp­inn þrátt fyrir að hann hefði gefið kost á sér vegna „ut­an­að­kom­andi að­stæðna“, sem voru ekki skýrð­ar nán­ar. Þar sem Kolbeinn Sig­þórs­son var meiddur var ekki talin þörf á að taka afstöðu til stöðu hans innan lands­liðs­ins.

Landsliðsþjálfarar: „Við erum mótfallnir öllu ofbeldi“

Arnar Þór Við­ars­son og Eiður Smári Guðjohn­sen tóku afstöðu gegn ofbeldi á blaða­manna­fundi í dag þar sem nýr lands­liðs­hópur var kynntur fyrir næstu tvo leiki íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta í und­ankeppni HM. 

Kolbeinn Sig­þórs­son og Rúnar Már Sig­ur­jóns­son eru ekki í hópnum, en það er lands­liðs­fyr­ir­lið­inn Aron Einar Gunn­ars­son ekki heldur. 

Utanakomandi aðstæður 

Utan­að­kom­andi ástæður réðu því að Aron Einar var ekki val­inn í lands­liðið fyrir næstu tvo leiki karla­lands­liðs­ins í und­ankeppni HM. „Ég ætla ekki að fara nánar út í það. Ég bið ykkur um að virða það,“ segir Arnar Þór Við­ars­son lands­liðs­þjálf­ari sem kynnti hóp­inn rétt í þessu. Sú ákvörðun hefði verið tekin í sam­ráði við Aron. „Þetta er lands­liðs­fyr­ir­lið­inn okkar. Við erum að vinna okkur saman gegnum þessar utan­kom­andi aðstæður. Þegar tím­inn er réttur munum við koma til baka og útskýra það.“ 

Þá kom fram á fund­inum að Aron Einar hefði gefið kost á sér í verk­efnið. „Eins og ég sagði áðan var það mín ákvörðun að velja hann ekki,“ sagði Arnar Þór. „Hvað fram­tíðin ber í skauti sér get ég ekk­ert spáð fyrir  um.“ 

Vef­mið­ill­inn 433.is birti hins vegar frétt skömmu áður en blaða­manna­fundur lands­liðs­ins hófst þar sem full­yrt var að stjórn KSÍ, sem tekur við til bráða­birgða um kom­andi helgi, hefði bannað Arnari Þór að velja Aron í lands­liðs­hóp­inn.

Þurftu ekki að taka afstöðu til Kolbeins

Kolbeinn Sig­þórs­son var tek­inn úr lands­lið­inu fyrir síð­asta leik sam­kvæmt ákvörðun stjórnar KSÍ, í kjöl­far ábend­inga um með­ferð knatt­spyrnu­sam­bands­ins á máli er varð­aði kærur á hendur Kolbeini vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni og lík­ams­árása. Kærunum lauk með sátt á milli Kolbeins og þeirra kvenna sem sök­uðu hann um ofbeldi, og greiddi hann þeim bæði bætur og lagði fé inn á Stígamót til að bæta fyrir fram­komu sína.

Kolbeinn er meiddur og því kom ekki til þess að taka þyrfti ákvörðun um aðkomu hans að lands­lið­inu. Sagði Arnar óþarft að velta því frekar fyrir sér hvort hann hefði verið val­inn í hóp­inn, ef og hefði. 

Einfaldlega ekki valinn 

Rúnar Már Sig­ur­jóns­son var einnig tek­inn úr hópnum fyrir síð­asta leik, sam­kvæmt ákvörðun stjórnar, og er heldur ekki í hópnum núna. Þjálf­ar­inn útskýrði það ekki nánar, sagði að hann hefði ein­fald­lega ekki verið val­inn.

Í milli­tíð­inni hefur stjórnin ákveðið að hætta störfum, en á fund­inum kom fram að þjálf­ur­unum hefði ekki verið bannað að velja „einn né neinn“. Ákvarð­anir um leik­menn hafi því verið þeirra. 

Miklar áskoranir framundan

Áður en hóp­ur­inn var kynntur ávarp­aði Arnar Þór umræð­una um með­ferð ofbeld­is­mála innan KSÍ og ásak­anir á hendur lands­liðs­mönnum. „Eins og þið vitið þá stendur íþrótta­hreyf­ingin frammi fyrir miklum áskor­unum næstu vikum og í náinni fram­tíð. Það er margt sem við höfum gert mjög vel lengi en það eru að sjálf­sögðu hlutir sem við viljum laga og munum laga og það er sem betur fer komið í ákveðið ferli.“

Vinna væri hafin við að laga ákveðna verk­ferla. Lands­liðs­þjálf­arar hefðu kallað eftir ramma til að vinna eftir, en nú væru þeir staddir í milli­bils­á­standi, þar til ný stjórn og nýr for­maður taka við störfum næst­kom­andi laug­ar­dag. Þá verða verk­ferlar kláraðir sem ættu að auð­velda þeim að takast á við þá mik­il­vægu vinnu sem er fyrir höndum. 

„Við erum að sjálf­sögðu mót­fallnir öllu ofbeldi og erum stoltir af því að geta tekið þátt í íþrótta­hreyf­ingu sem er til­búin til að laga sitt starf og vinna þá vinnu sem þarf að vinna til að geta stigið vel inn í fram­tíð­ina.“

Gagnrýndir fyrir afstöðuleysi

Áður hafa for­svars­menn KSÍ verið gagn­rýndir fyrir að taka ekki afger­andi afstöðu gegn ofbeldi á meðan þessi umræða stendur yfir.

Kristín S. Bjarna­dóttir skrif­aði meðal ann­ars færslu fyrr í sept­em­ber, þar sem sagði: „Á meðan engri auð­mýkt er enn andað frá KSÍ fólki, þrátt fyrir fyr­ir­heit um annað; á meðan eng­inn knatt­spyrnu­maður treystir sér á heilum mán­uði til að taka skýra afstöðu gegn ofbeldi; á meðan fólk eys skömmum yfir Þórhildi og aðra þolendur í athuga­semda­kerfum fjöl­miðla, í boði þögg­unar fólks­ins sem áður var talið upp hér að ofan; þá, á meðan, eru þó nokkuð margar ungar konur, þolendur, sem líða vít­isk­valir vegna við­bragða og við­bragða­leysis sam­fé­lags­ins.“

Þór­hildur Gyða Arn­ar­dóttir steig fram til að greina frá sam­skiptum sínum og fjöl­skyldu sinnar við KSÍ vegna kæru á hendur Kolbeini. 

Ekkert heyrt í Gylfa

Annar lands­liðs­maður, Gylfi Þór Sig­urðs­son, var hand­tek­inn í Bret­landi vegna gruns um kyn­ferð­is­brot gagn­vart ólög­ráða stúlku. Honum var sleppt gegn trygg­ingu en rann­sókn máls­ins stendur enn yfir. Aðspurður hvort hann hefði verið í sam­skiptum við Gylfa Þór, sagði Arnar ein­fald­lega: „Nei.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár