Skýrar línur í fullyrðingum um efnahagsmál

Almennt virð­ast þátt­tak­endur í Kosn­inga­prófi Stund­ar­innar þeirrar skoð­unar að hækka ætti skatta á hina efna­meiri og afla rík­is­sjóði meiri tekna. Þá virð­ast þátt­tak­endur einnig á því að styðja eigi við fólk í meira mæli.

Skýrar línur í fullyrðingum um efnahagsmál
Hafa áhyggjur af stöðu íslensk­unnar Þátt­tak­endur í Kosn­inga­prófi Stund­ar­innar vilja að hið opin­bera styrki betur við íslensk­una. Mynd: Pressphotos

Yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra sem tekið hafa kosn­inga­próf Stund­ar­innar telja að leggja ætti stór­eigna­skatt á fólk sem á yfir 200 millj­ónir króna í hreinni eign. Að sama skapi telur svipað hlut­fall að rétt sé að hækka skatta á arð­greiðslur fyr­ir­tækja til eig­enda þeirra. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti telur líka að hækka eigi per­sónu­af­slátt veru­lega, alls 83 pró­sent. Þá eru 70 pró­sent á því að bjóða eigi upp afla­heim­ildir í sjáv­ar­út­vegi og afla með því rík­is­sjóði tekna með mark­aðs­verði fyrir fisk­veiði­kvóta.

Þetta er meðal þeirra nið­ur­staðna þar sem greina má hvað skýrastar línur í afstöðu fólks sem tekið hefur kosn­inga­próf Stund­ar­innar fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2021. Prófið er mjög ítar­legt, alls 68 spurn­ingar. Efstu fimm fram­bjóð­endum þeirra tíu flokka sem bjóða fram á lands­vísu var boðið að senda sín svör inn, alls 300 manns, og svör­uðu um tveir þriðju fram­bjóð­enda boð­inu. Tíu þús­und manns höfðu tekið prófið þegar Stundin fór í prentun í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.

14 mín. lestur

Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár