Kristrún skilur gagnrýnina á kauprétti Kviku en nýtti sér þá sjálf og hagnaðist

Kristrún Frosta­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, nýtti sér kaup­rétti í Kviku en vill ekki gefa upp upp­hæðir og hagnað sinn. Hún skilur gagn­rýni fólks á kaup­rétt­ar­kerfin en telur svarið við þeim vera að skatt­leggja hagnað og eignir efna­fólks sem mynd­ast í slíkum við­skiptum.

Kristrún skilur gagnrýnina á kauprétti Kviku en nýtti sér þá sjálf og hagnaðist
Tekur undir gagn­rýni á kaup­rétti en hefur nýtt sér þá Kristrún Frostasdóttir skilur og tekur undir gagn­rýni á kaup­rétt­ar­samn­inga en hefur sjálf nýtt sér slíka samn­inga.

„Þetta er bara mjög kon­kret dæmi um það sem ég ræddi hérna áðan, þar sem þessi hagn­aður sem þarna mynd­ast hefur ekk­ert að gera með effort heldur með stöðu,“ segir Kristrún Frosta­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður, í við­tali við Stundina þegar hún er spurð um það hvað henni finn­ist um nýlegar fréttir þess efnis að stjórn­endur Kviku hafi nýtt sér kaup­rétti sem þeir áttu í bank­anum í lok síð­asta mán­aðar.

Þessir starfs­menn, meðal ann­ars for­stjór­inn, Marinó Tryggva­son, keyptu hluta­bréf í bank­anum langt undir mark­aðsvirði og seldu svo hluta­bréf sama dag á mark­aðsvirði og inn­leystu hagnað upp á tugi millj­óna króna.  

Þegar Stundin tók við­talið við Kristrúnu, þann 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, vissi blaða­maður ekki að Kristrún hefði sjálf fengið slíkan kaup­rétt­ar­samn­ing í Kviku þegar hún var aðal­hag­fræð­ingur bank­ans. Þess vegna gat blaðið ekki spurt hana út í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár