Segir að það sé ekki ný umræða að lögreglumenn þurfi að hafa hærri laun

Gestir Stóru mál­anna að þessu sinni eru þeir Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, og Vil­hjálmur Árnason, þing­maður og vara­for­maður þing­flokks Sjálf­stæð­is­manna. Í þætt­inum ræða þeir um laun lög­reglu­manna, mann­eklu innan lög­regl­unnar og eft­ir­lit með störfum lög­reglu.

Í Stóru mál­unum var rætt um lög­regl­una á Íslandi. Lög­reglu­þjónar hér á landi hafa gagn­rýnt í langan tíma hversu illa sé borgað fyrir þessa mik­il­vægu vinnu. Þá kvarta margir undan því að það sé ein­fald­lega ekki nægi­legir margir lög­reglu­þjónar að störfum og skapar það meira álag á lög­reglu­þjóna. Eftirlit með lög­reglu var einnig til umræðu, en engin sér­stök eft­ir­lits­stofnun er til staðar á Íslandi sem sinnir ein­göngu eft­ir­liti og rann­sóknum á störfum lög­regl­unnar hér á landi, en árlega koma upp fjöldi til­fella þar sem lög­reglan er rann­sökuð vegna starfa sinna.

Gestir Stóru mál­anna að þessu sinni eru þeir Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, og Vil­hjálmur Árnason, þing­maður og vara­for­maður þing­flokks Sjálf­stæð­is­manna. 

Vil­hjálmur segir að lög­reglu­menn geti að mörgu leiti fengið ágætis laun, en við­ur­kennir að stóra vanda­málið sé í raun grunn­launin þeirra.

„Lög­reglu­menn geta að mörgu leyti oft fengið ágætis laun, það er að segja heild­ar­laun. Stóra vanda­málið hefur hins verið verið að grunn­launin hafi ekki verið nægj­an­lega mikil. Þannig að það er búið að vera svo­lítið verk­efni að færa meira inn í grunn­launin. Svo hefur ekki ekki náðst sátt, innan lög­regl­unnar, um svo­kall­aða stofn­ana­samn­inga og annað slíkt. Ég sé það að þær opin­beru stéttir sem eru í vakta­vinnu, stéttir sem hafa farið í þessar svoköll­uðu stofn­ana­samn­inga, hafa verið að taka fram úr lög­regl­unni. Ég er að von­ast til þess að lög­reglan á ein­hverjum tíma nái að vinna það upp og sama tíma erum við nátt­úru­lega búin að breyta líka mennta­kerfi lög­regl­unnar.“

Helgi Hrafn segir að laun lög­reglu­manna sé ekki ný umræða og bendir á að ein af ástæðum þess að laun lög­reglu­manna séu eins og þau eru í dag sé vegna þess að þeir eru ekki með verk­falls­rétt eins og lang stærstur hluti þjóð­ar­innar. Þá segir Helgi Hrafn að

„Það er ekki ný umræða að lög­reglu­menn þurfi að hafa hærri laun en segja þetta alla vega frá því að ég byrj­aði á þingi 2013, það er langur tími. Það eru nokkrar ástæður fyrir því að þeir eru á lágum launum. Ein er sú að þeir eru ekki með verk­falls­rétt. Til að mynda hef ég, og fleiri á þing­inu, lagt það til að hann verði end­ur­heimtur. Annað er það að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, með fullri virð­ingu, hefur meira eða minna verið með af fjár­laga­valdið. Við heyrum alltaf í þess­ari umræðu að þegar það á að fara að kalla eftir hærri launum fyrir mik­il­væga starfs­stéttir þá er alltaf sagt að það þurfi bara að nýta pen­inga betur. Þegar það kemur að lög­regl­unni sér­stak­lega, þá þurfum við að þurfa að huga að eðli starf­sem­innar.“

Lög­reglu­menn geta að mörgu leyti oft fengið ágætis laun
Vil­hjálmur Árnason

Þá segir Helgi Hrafn að lög­reglu­þjónar hafi mikil völd og starfið sé virki­lega erfitt. Skiptir því miklu máli að þeir séu vel laun­aðir.

„Lög­reglu­menn eru með ofboðs­lega mikil völd og geta nýtt þau mjög mikið, auð­vitað eftir aðstæðum, en líka eftir geð­þótta líka eftir því hvernig þeir líta á málin, hvernig aðstæð­urnar birt­ast þeim og svo fram­vegis. Þetta eru jú mann­eskjur þegar allt kemur til alls og það skiptir máli fyrir rétt­indum borg­ar­anna og eft­ir­litið að lög­reglu­menn séu nógu vel laun­aðir, og að þeir séu nógu margir. Það er hinn ásinn sem gleym­ist alltaf líka í þess­ari umræðu, vegna þess að því lægri sem launin eru. Eða öllu heldur því van­þakk­lát­ara sem starfið er og því erf­ið­ara sem það er að sinna því, án þess að beita vopna­valdi eða vald­heim­ildum eða ein­hverju slíku. Þá breyt­ast lík­urnar á því að lög­reglu­menn telja sig til­neydda til að beita ein­hverjum völdum og heim­ildum sem við viljum kannski ekki að þeir beiti í of miklu magni.“

Mér þætti mjög áhuga­vert að sjá hvernig kjara­samn­ingar færu lög­reglu­menn fengju aftur verk­falls­rétt
Helgi Hrafn Gunn­ars­son

Helgi Hrafn bendir á það sé hlut­verk yfir­valda að fjár­magna grunn­stoðir sam­fé­lags­ins, eins og lög­regl­una

„Mér þætti mjög áhuga­vert að sjá hvernig kjara­samn­ingar færu lög­reglu­menn fengju aftur verk­falls­rétt, þeir búa við þær aðstæður í dag að þeir verða að sam­þykkja kjara­samn­inga sem þeim býðst, eða bara hætta að vera lög­reglu­menn, vegna þess að það vantar þennan verk­falls­rétt. Á meðan staðan er þannig þá er ég ekki von­góður um það að þessi yfir­völd muni bæta úr mál­inu. Því það er svo­lítið bak­lands speki hjá Sjálf­stæð­is­flokknum, að ákveðnar stofn­anir rík­is­ins almennt séu alltaf ófjár­magn­aðar, að það þurfi alltaf ein­hvern veg­inn að nýta fjár­magnið betur og að það megi aldrei gefa í, það er alltaf litið á það sem sóun. En það er hlut­verk yfir­valda að fjár­magna grunn­stoð­unum sam­fé­lag­inu nógu vel. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur aldrei staðið sig nógu vel í því.“

Segir mikilvægt að hafa ytra aðhaldskerfi til að halda utan um vald lögreglunnar.

Eftirlit með lög­reglu hefur verið gagn­rýnt und­an­farin ár og segir Helgi Hrafn að það sé mik­il­vægt að það sé haft aðhald með valdi lög­regl­unnar.

„Okkur í Pírötum finnst það ofboðs­lega mik­il­vægt að hafa ein­hvers­konar ytra aðhalds­kerfi, til þess að halda utan um það vald sem lög­reglu­menn hafa. Það þarf að vera aðhald með valdi, þetta er ákveðin grund­vall­ar­at­riði. Fíl­ing­ur­inn hérna á Íslandi hefur hins vegar alltaf verið sá að löggan sé ein­fald­lega alltaf góði kall­inn í sög­unni og raun­veru­leik­inn er ein­fald­lega flókn­ara en það. Auðvitað er hún almennt. Fólk er almennt gott, lög­reglu­menn eru almennt góðir. En þegar hlut­irnir klikka þá þarf að vera eitt­hvað kerfi sem tekur utan um þann mögu­leika og horf­ist í augu við þann mögu­leika og getum brugð­ist við honum. Þetta kerfi í dag, að mínu mati, er svo gott sem ekki til.“

Vil­hjálmur segir að eft­ir­lit með lög­reglu sé orðið tölu­vert sýni­legra. Hann segir að eft­ir­litið sé að byggj­ast hægt og rólega upp.

„Mér finnst að eft­ir­litið hefur orðið tölu­vert sýni­legra. Eins og Helgi segir þá erum við alltaf að reyna að þróa þetta. Við erum að reyna að læra af þessu. Við gerum ein­hverja laga­breyt­ingu og svo dugar hún ekki alveg, svo við gerum aðra til að bæta. Þannig að við erum að byggja þetta hægt og rólega upp og reyna að finna að hvernig náum við sem bestum árangri. Það eru alveg lög­reglu­menn sem hafa verið dæmdir fyrir spill­ingu og það eru lög­reglu­menn sem hafa verið sagt upp störfum án dóms. Þannig að þessum málum er búið að fjölga tölu­vert og eft­ir­litið er orðið miklu meira en það var og við erum áfram að þróa það og ég held að það sé bara rétti far­veg­ur­inn. Það er eng­inn að reyna ýta þessu frá sér og er engin stoppa þetta einn eða neinn hátt.“

Þáttinn má sjá í heild sinni hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár