488. spurningaþraut: Hér er spurt um tvo virðulega herra á veðreiðum

488. spurningaþraut: Hér er spurt um tvo virðulega herra á veðreiðum

Fyrri mynda­spurn­ing:

Hvað heitir áin sem fellur til sjávar á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Kabúl? 

2.  Moshe Dayan var einu sinni her­for­ingi og síðar varn­ar­mála­ráð­herra í hvaða landi?

3.  Við hvaða plánetu heita stærstu tunglin Titan, Rhea og Iapetus?

4.  Ein besta og virtasta leik­kona Banda­ríkj­anna lék árið 2016 hlut­verk Florence Foster Jenkins í sam­nefndri bíó­mynd og hlaut mikið lof fyrir, enda er leik­konan ein sú marg­verð­laun­að­asta vest­an­hafs. Hvað heitir hún?

5.  Fyrr­nefnd Florence Foster Jenkins var raun­veru­leg per­sóna, og var fræg — eða öllu heldur alræmd — fyrir að vera ... hvað?

6.  Kona nokkur sett­ist á Alþingi 2009 og sat þar til 2017 í nafni Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar, Hreyf­ing­ar­innar og loks Pírata. Hvað heitir hún?

7.  Hvað hétu aðal­per­són­urnar í sjón­varps­þátt­unum X-Files? Nefna þarf bæði.

8.  Í Þýska­landi ber eitt fót­boltalið höfuð og herðar yfir önnur í karla­flokki og hefur unnið meist­ara­tit­il­inn sam­fleytt frá 2013. Hvaða lið er það?

9.  Þar áður hafði annað lið í Þýska­landi unnið meist­ara­tit­il­inn tvö ár í röð undir stjórn hins vin­sæla þjálf­ara Jürgens Klopps. Hvaða lið var það?

10.  En hvaða lið í Þýska­landi vann síð­ast meist­ara­tit­il­inn í karla­flokki — fyrir utan þessi tvö stór­lið? Þess má geta að það lið hefur verið síð­ustu árin verið sér­lega öfl­ugt í kvenna­flokki og okkar eigin Sara Björk lék með lið­inu í fjögur ár og varð Þýska­lands­meist­ari kvenna jafn oft.

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Ljós­myndin hér að neðan sýnir karla tvo sem hitt­ust á kapp­reiðum og báru saman veð­mála­bækur sínar. Hvaða karlar eru þetta? Hafa verður nöfnin á þeim báðum rétt.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Afganistan.

2.  Ísrael.

3.  Satúrnus.

4.  Meryl Streep.

5.  Mjög vond söng­kona.

6.  Birgitta Jóns­dóttir

7.  Mulder og Scully.

8.  Bayern München.

9.  Dortmund.

10.  Wolfsburg.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni fellur Ölfusá til sjávar.

Á neðri mynd­inni eru þeir Charlie Chaplin og Walt Disney.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár