487. spurningaþraut: Hvað var tekið í notkun 15. ágúst 1914?

487. spurningaþraut: Hvað var tekið í notkun 15. ágúst 1914?

Fyrri mynda­spurn­ing:

Fáni hvaða ríkis blaktir hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Við hvaða hverfi er Hverf­is­gata í Reykja­vík kennd?

2.  Hver skrif­aði skáld­sagna­bálk­inn Fjall­kirkj­una?

3.  Á hvaða tungu­máli var Fjall­kirkjan skrifuð?

4.  Hver þýddi hana fyrstur á íslensku?

5.  Undir hvaða nafni er Marshall Bruce Mathers III þekkt­astur?

6.  Þann 15. ágúst 1914 var fyrri heims­styrj­öldin nýhafin í Evrópu. Því bar minna en ella á fréttum af opnun gríð­ar­lega mik­il­vægs sam­göngu­mann­virkis sem lengi hafði verið unnið við og átti eftir að breyta miklu. Hvaða mann­virki var það?

7.  Annað mann­virki, hátt í þús­und ára gam­alt, varð fyrir miklum skemmdum í bruna í apríl 2019 og vakti heims­at­hygli. Hvaða mann­virki var það?

8.  Við hvað starfar Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir?

9.  Hvað hét tíma­ritið sem Jónas Hall­gríms­son og þrír félagar hans hófu útgáfu á árið 1835?

10.  Hvaða rit­höf­undur hefur skrifað röð bóka um lög­reglu­mann­inn Hörð Grímsson, jafn­framt öðrum verkum?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er þetta skjá­skot?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Skugga­hverfið.

2.  Gunnar Gunn­ars­son.

3.  Dönsku.

4.  Halldór Laxness.

5.  Eminem.

6.  Panama­skurð­ur­inn.

7.  Notre Dame dóm­kirkjan.

8.  Frétta­maður hjá RÚV.

9.  Fjölnir.

10.  Stefán Máni.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Fáninn er fáni Sviss.

Kvik­myndin er Shining, mynd Kubricks.

***

Lítið á hlekki hér að neðan!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár