486. spurningaþraut: Tequila, Vonarstræti og tómatsósa

486. spurningaþraut: Tequila, Vonarstræti og tómatsósa

Fyrri mynda­spurn­ing:

Karlinn hér að ofan átti skamm­vinnt tíma­bil frægðar og hylli fyrir rétt rúmum 50 árum. Hvað heitir hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hversu mörg skip hefur Eim­skipa­fé­lag Íslands átt og rekið undir nafn­inu Gullfoss?

2.  „Efst á [ÓNEFNDUM HÆÐUM] / oft hef ég fáki beitt. / Þar er allt þakið í vötum / og þar heitir Rétt­ar­vatn eitt.“ Hverjar eru hæð­irnar?

3.  Hvaða kvik­mynda­leik­stjóri gerði fyrir nokkrum árum hina mögn­uðu kvik­mynd Von­ar­stræti?

4.  En hvers vegna heitir Von­ar­stræti í Reykja­vík þessu nafni?

5.  Hver er lang­mest selda tómatsósan í Banda­ríkj­unum — og þar með lík­lega heim­inum öllum líka?

6.  Hver lék aðal kven­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Casablanca?

7.  Gustav Klimt hét maður sem fædd­ist 1862. Hvaða list­grein fékkst hann við?

8.  Hvað þýðir heitið landa­heitið Ástralía?

9.  Árið 1796 birt­ist fyrst afar merki­legt rit sem heitir Mann­fækkun af hall­ærum. Höfundur var biskup í Skál­holti og hét ... hvað?

10.  Í hvaða landi er borgin Tequila, sem sam­nefndur rótá­fengur drykkur er kenndur við?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hvað heitir konan hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tvö.

2.  Arn­ar­vatns­hæðum.

3.  Baldvin Z.

4.  Vegna þess að þar gerðu Reyk­vík­ingar sér lengi vonir um að stræti yrði reist á land­fyll­ingu, en það dróst og dróst.

5.  Heinz.

6.  Ingrid Bergman.

7.  Mál­ara­list.

8.  Suð­ur­land.

9.  Hannes Finnsson.

10.  Mexíkó.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er ástr­alski leik­ar­inn George Lazenby sem skaust fram í sviðs­ljósið þegar hann lék í einni James Bond-mynd árið 1969.

Á neðri mynd­inni er banda­ríska fim­leika­stjarnan Simone Biles.

***

Hlekkur á þraut­ina frá í gær er hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár