489. spurningaþraut: Hvar er Przedmieście Szczebrzeszyńskie?

489. spurningaþraut: Hvar er Przedmieście Szczebrzeszyńskie?

Fyrri mynda­spurn­ing:

Leik­konan til vinstri á mynd­inni hér að ofan var ein sú vin­sælasta í ver­öld vorri á næst­síð­asta ára­tug 20. aldar. Hvað heitir hún? Þið fáið ekk­ert stig fyrir að vita hver er til hægri á mynd­inni en megið þó vera ánægð með ykkur ef þið vitið það líka.

***

1.  Í landi einu er tæp­lega 400 manna þorp sem heitir Przedmieście Szczebrzeszyńskie, og er Przedmieście Szczebrzeszyńskie lengsta stað­ar­heitið í því landi. Hvaða land ætli það sé?

2.  Hversu gömul varð Elísabet Breta­drottn­ing þann 21. apríl síð­ast­lið­inn?

3.  Til hvaða heims­álfu telst ríkið Vanuatu?

4.  Röddum söng­kvenna er yfir­leitt skipt í þrjár týpur. Hér þurf­iði að nefna tvær til að fá stig.

5.  Karlarómum er hins vegar yfir­leitt skipt í fernt. Nefnið þrjár radd­týpur. Þótt þið hafið allar fjórar réttar, þá fæst aðeins eitt stig.

6.  Og fyrst við erum að nefna söng, hvað heitir óperu­húsið fræga í Mílanóborg?

7.  Hver sagð­ist flögra eins og fiðr­ildi en stinga eins og býfluga?

8.  Hver samdi aftur á móti óperu um konu eina sem var greini­lega ótta­legt fiðr­ildi?

9.  Hver er lang­vin­sæl­asti þýski bíll­inn um þessar mundir? Hér þarf nokkuð nákvæmt svar, það er að segja bæði fram­leið­anda og týpu.

10.  Hvað nefn­ist hót­el­keðjan sem er að reisa lúx­us­hótel við hlið Hörpu við Reykja­vík­ur­höfn?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hvað nefn­ist (á alþjóð­legum málum) pizzan sem á mynd­inni hér að neðan sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Pólland.

2.  95 ára.

3.  Eyjaálfu.

4.  Sópran, mezzosópran og contralto, eða alt.

5.  Kontra­tenór, tenór, barítón og bassi.

6.  La Scala.

7.  Muhammed Ali.

8.  Puccini — átt er við óper­una Madame Butt­er­fly.

9.  Volkswagen Golf.

10.  Marriott.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Jessica Lange vinstra megin.

Hægra megin er Dustin Hoffman.

Á neðri mynd­inni er Calzone-pizza.

***

Hér neðar eru hlekkir á fleiri þrautir!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu