443. spurningaþraut: Eyjar undan Reykjavík og annað smálegt

443. spurningaþraut: Eyjar undan Reykjavík og annað smálegt

Fyrri auka­spurn­ing:

Skoðið vand­lega mynd­ina hér að ofan. Hvað heitir þessi brosmildi karl?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða íslenska skáld er átt við með orð­unum „lista­skáldið góða“?

2.  Black Widow eða Svarta ekkjan heitir vin­sæl ofur­hetju­mynd sem mjög er sýnd um þessar mundir. Leik­konan, sem leikur ekkj­una, hefur gert það oft áður í öðrum ofur­hetju­myndum. Hvað heitir hún?

3.  Í dýra­rík­inu nefn­ast nokkrar teg­undir „svarta ekkjan“ en þær eru allar ... hvers konar dýr?

4.  Beint framundan höfn­inni í Reykja­vík er eyja ein sem virð­ist ekki stór en þar voru þó nokkur býli hér áður fyrr og fræg ætt er kennd við eyj­una. Hvað heitir eyjan?

5.  Í austur af eyju þess­ari er önnur, öllu stærri, og þar var líka búið. Reyndar voru þar stór­býli og meira að segja klaustur í kaþ­ólskri tíð. Hvað heitir þessi eyja?

6.  Í vestur af fyrst­nefndu eyj­unni er hins vegar enn ein eyja, lág­lend og grösug en ekki nema 6,6 hekt­arar að stærð og ekki er vitað til að þar hafi verið búið. Hins vegar er þar tölu­vert æðar­varp og þar verpa kríur, lundar og margir aðrir fuglar. Hugs­an­lega var korn­rækt í eyj­unni ein­hvern tíma í fyrnd­inni. Hvað heitir þessi eyja?

7.  Hér er spurt um upp­finn­ingu. Árið 1886 gerði Þjóð­verj­inn Hertz upp­götvun sem síðar mátti nota til að þróa þessa upp­finn­ingu en rúmum ára­tug síðar hóf Rússinn Popov að feta sig út á þá braut sem svo leiddi til upp­finn­ing­ar­innar. Það má þó segja að Þjóð­verj­inn Hüls­meyer hafi orðið fyrstur til að gera raun­veru­legar til­raunir með vísi að þess­ari upp­finn­ingu árið 1904, en seinna tóku Bretar for­yst­una í þróun upp­fin­inn­g­ar­innar — Þjóð­verjum reyndar til heil­mik­ils tjóns. Hver er upp­finn­ingin?

8.  Hvað heitir fjöl­menn­asta borg Mið- og Vestur-Evrópu?

9.  Hvert er mik­il­væg­asta hrá­efnið í fæðu­teg­und­inni Blutwurst í Þýska­landi?

10.  Hver skrif­aði bækur um Öðruvísi daga, Öðruvísi fjöl­skyldu og Öðruvísi sögu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða ríki á fána þann sem hér að neðan sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Jónas Hall­gríms­son.

2.  Scarlett Johansen.

3.  Kóngulær.

4.  Engey.

5.  Viðey.

6.  Akurey.

7.  Ratsjá.

8.  London.

9.  Blóð.

10.  Guðrún Helga­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Donn­ar­umma mark­vörður ítalska fót­boltalands­liðs­ins í karla­flokki.

Á neðri mynd­inni er fáni Tékk­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár