442. spurningaþraut: Katrín Tanja á Route 66 með Ísis og Radíusbræðum við Bajkal-vatn

442. spurningaþraut: Katrín Tanja á Route 66 með Ísis og Radíusbræðum við Bajkal-vatn

Fyrri auka­spurn­ing:

Á hvaða hljóð­færi er konan hér að ofan að spila?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Katrín Tanja Dav­íðs­dóttir er afreks­kona í ... ja, í hverju?

2  Route 66 heitir frægur þjóð­veg­a­spotti í Banda­ríkj­unum og liggur frá mið­ríkj­unum og vestur á bóg­inn. Í hvaða borg upp­hefst Route 66? Og svo meg­iði sæma ykkur lár­við­ar­stigi ef þið vitið í ofaná­lag í hvaða borg þessum 4.000 kíló­metra langa vegi lýkur!

3.  Ísis heitir gyðja ein. Aðdáun á henni varð að lyktum útbreidd, en í hvaða landi var hún upp­runnin?

4.  Frægur tón­list­ar­maður gaf út lag sem heitir Isis um miðjan átt­unda ára­tug­inn. Þar syngur hann um hjóna­band sitt og kon­unnar Isis sem hann kallar „mystical child“. Lagið hefst svona: „I married Isis on the fifth day of May / But I could not hold on to her very long / So I cut off my hair and I rode straight away / For the wild unknown country where I could not go wrong.“ Hvaða tón­list­ar­maður og/eða skáld flutti þetta lag um Isis?

5.  Einn íslenskur tón­list­ar­maður heitir Ísis. Það er nefni­lega milli­nafn korn­ungrar söng­konu sem vakið hefur athygli síð­ustu miss­erin. Hún ber ætt­ar­nafnið Elfar en er þekkt­ust undir fyrsta nafni sínu. Og það er ...?

6.  Hvaða sam­tök voru gjarnan kölluð Ísis til skamms tíma þótt sú nafn­gift hafi nú reyndar verið vafasöm?

7.  Hverjir voru Radíus-bræður? Nefna verður báða.

8.  Í hvaða landi er Bajkal-vatn?

9.  En hvar er Moskvu­haf hins vegar að finna?

10.  Google er lang­vin­sælasta leit­ar­vél inter­nets­ins. En hver er næst­vin­sælust?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða tón­list­ar­maður eða hljóm­sveit gaf út plötu sem seld var í umslagi því er að neðan sést hluti af?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Crossfit.

2.  Chicago. Lár­við­ar­stig fæst fyrir að vita að í vestri endar Route 66 í Santa Monica.

3.  Egifta­landi.

4.  Bob Dylan.

5.  Bríet. Hún heitir altso Bríet Ísis Elfar fullu nafni.

6.  Íslamska ríkið.

7.  Davíð Þór og Steinn Ármann.

8.  Rússland.

9.  Á tungl­inu.

10.  Bing.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni er að spila á óbó.

Plötuna á neðri mynd­inni gaf hljóm­sveitin Queen út.

Sjá hér:

***

Og hér eru svo hlekkir á fleiri spurn­inga­þrautir!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár